Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Qupperneq 38

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Qupperneq 38
62 TÍMARIT VFI 1966 fremur grófur sandur, straumlögóttur og tölu- vert harðnaður þannig, að hægt er að grafa í hann hella, sem standa nokkuð vel. Þegar sjór- inn fjaraði enn meir, byrjaði Þjórsá að grafa sig niður í sandinn, en berghöft á vissum stöð- um stóðu þó á móti. Aðalberghaftið er við Snjall- steinshöfða nokkurnveginn þar sem röð af jökul- urðum liggur yfir Rangá. Neðan þess hafts og niður að berghaftinu við Árbæjarfoss hafði áin grafið breiðan farveg í sandinn; ofan við Ár- bæjarfoss er hann um 150 m breiður, en er fylltur af mó að % hlutum en í Vs hluta hans liggur nú Ytri Rangá. Jf.3 Gos á Veiðivatnasvœðinu. í nágrenni við svæði það, sem nú eru Veiði- vötn og Vatnaöldur urðu á síðasta jökultíma sprungugos og hlóðust upp miklir móbergs- hryggir. En fyrir rúmlega 8.000 arum er landið orðið örísa þarna og verður þá sprungugos, sem gýs óhemjumiklu hraunmagni og rennur þá fyrsti hraunstraumurinn niður sundið milli Búr- fells og Sauðafells. Þessi hraunstraumur rann að Búðaröðinni á Landi og fór í gegnum hana á einum stað, eða við Skarðsfjail í Hreppum og þaðan niður á Skeið þar sem hann endaði við Urriðafoss og Þrengslin í Flóa á móts við Hest- fjall. Rennsli hraunsins sýnir, að vatnaskil hafa verið mjög lág á sandsléttunni suður af Búrfelli á milli Þjórsár, sem rann um hana austanverða og Fossár, sem rann um hana vestanverða og var þá þverá Hvítár. Við hraunrennslið hraktist Þjórsá úr farvegi sínum og leitaðist við að fylgja vesturjaðri hraunsins allt niður á Skeið þar sem nokkur hluti hennar flæmdist yfir hraunið og sameinaðist Hvítá, en nokkur hluti tók þann far- veg, sem nú hefur sigrað, niður með Skeiðum að austanverðu og í gegnum þrengslin við Urriða- foss. Rúmu árþúsundi síðar verður annað stórkost- legt flæðigos frá þessu svæði og rennur hraun þá alla leið til sjávar í Flóanum og mun það stærst allra hrauna frá Veiðivatnasvæðinu. Þessi tvö hraun mun ég nefna Þjórsárhraun. Síðara Þjórsárhraunið breytti enn vatnaskipan niður á Skeiðum. Þjórsá hætti að renna saman við Hvítá, og hraunið stíflaði upp stór vötn norð- an og austan jaðarsins á Skeiðum, og í gegnum þau rann Hvítá og síðan með hraunjaðrinum að vestan allt til sjávar. Rök þau sem liggja að þessari mynd eru mörg og tekur meira rúm að telja þau upp en svo að hægt sé að gera það hér, enda er ætlunin að birta þau annars staðar með miklu ýtarlegri sögu Þjórsár- og Mynd 6. Vatnakerfi Suðurlands. 1. Búðaröðin; 2. Óseyrar frá lokum ísaldar; 3. Fyrsta Þjórsárhraun; 4. Gos- sprungan við Vatnaöldur; 5. Annað Þjórsárhraun. Figure 6. Drainage system of Southern Iceland. 1. The Búðir End Moraine system; 2. The Thjórsá delta from finiglacial time. 3. The first Thjórsálava. 4. The eruptions fissures at Vatnaöldur. 5. Second Thjórsálava.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.