Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Page 41

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Page 41
TÍMARIT VFl 1966 65 Mynd 8. Búrfell úr norðri. Sprungukerfi Búrfells sést greinilega og örvarnar benda á sprungur, sem enda við víxlgengissprungu í Skálafelli, en upprunalega voru þær ef til vill ein samfelld sprunga. Figure 8. Búrfell seen from the north. The fault system in Búrfell showes up well. The arrows point at two fissures which end at the strikeslip fault in Skálarfell, but originally they might have been one continuous fault. SD, Sauðafellsmóbergið og eftirjökultíma hraun- in. Sem sagt verulegur hluti af yfirborðslögum svæðisins. Næst að aldri er Búrfellsbólstrabergið, sem mun vera frá Matuyama-skeiðinu (öfug seg- ulstefna). Innskotið undir Sámsstaðamúla er þá frá sama skeiði. Það er því auöséð, að ísland hefur hulizt jökli að mestu fyrir rétt tæpri einni milljón ára. Hið stutta Jaramillo-skeið (rétt) var á þeim tíma sem efstu lög Sámsstaða- múlans voru að myndast. Eru það einungis 2 eða 3 lög. Á seinni hluta Matuyama skeiðsins mynduðust svo öll önnur lög Sámsstaðamúla- myndunarinnar. Eldri Búrfellsmyndunin er frá Gauss-skeiðinu og loks tel ég, að basaltið í suð- urenda Búrfells sé fremur frá Gilbert-skeiðinu (öfugt) heldur en Mammoth-skeiðinu, því þetta eru það mörg lög, að ótrúlegt er að þau séu mynduð á þeim stutta tíma, sem Mammoth- skeiðið náði yfir. Því má telja líklegt, að jarð- saga bergsins við Búrfell nái yfir um 3.5-4,0 milljónir ára. 7. Höggun og sprungur. 7.1 Jarðlagahalli. Jarðlagahalli getur orðið til á tvo vegu. Þannig eru hraun utan í eldfjöllum þegar í upp- hafi hallandi og öll hraun renna undan einhverj- um bratta, þótt hann sé oftastnær fremur lítill eða innan við gráðu. Annar háttur á myndun halla á jarðlögum er sá, að jarðlögin hafa hagg- azt frá upprunalegri legu og mun það oftast vera þannig um lög, sem hallar verulega. Jarðlögum á Búrfellssvæðinu hallar yfirleitt til norðurs eða austurs. Elzta berginu í suður- enda Búrfells hallar lang mest eða milli 5° og 10° til norðausturs. Eldri Búrfellsmynduninni hallar aðallega til norðurs eða jafnvel aðeins vestar en norður um 2-3°. SM lögunum hallar mest sunnarlega í Búrfelli um rúmar 2° til aust- norðausturs. I Sámsstaðamúla er hallinn miklu minni og innan við gráðu til suðausturs. Ekki er hægt að sjá neinn halla á grágrýtinu og er það sennilega mjög hallalítið. Greinilegt er, að hallinn er því minni, því yngri sem lögin eru og hefur því höggunin átt sér stað smám saman. Um orsakir jarðlagahallans eru menn ekki á eitt sáttir, en margir halda hann tilkominn við iso- statiska aðlögun er yngri lög leggjast ofan á eldri og pressa þau niður. Á því jarðlögunum að halla inn til yngri eldgosasvæðanna. Gröftur hefur sömu áhrif og skerpir þetta ennþá meir. Reynslan frá Búrfelli er í fullu samræmi við

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.