Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Síða 52

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Síða 52
76 TlMARIT VPl 1966 Kísilgúrverksmiðjan við Mývatn í Ijósi rannsókna og tæknilegrar þróunar Eftir Baldur Líndal, efnaverkfræðing. Erindi flutt á fundi í Verkfræðingafélagi íslands 19. des. 1966. Á síðast liðnum 15 árum hafa okkur orðið æ ljósari þau verðmæti, sem Mývatn geymir. Þessi þróun byrjaði árið 1951, þegar leitað var að jarðefnum í grend Námafjalls, sem kynnu að hafa hagnýta þýðingu í sambandi við notkun jarðgufu þar og er nú komið að þáttaskilum með því að verið er að reisa verksmiðju til fram- leiðslu síunarefna á staðnum. Nærri frá upphafi átti þessi þróun sér stað í þremur meginþáttum, sem voru könnun hráefnis og nám, tækniþróun í vinnsluaðferðum og markaðskönnun. Fyrir fjór- um árum bættist síðan við f jórði þátturinn, sem var undirbúningsstarfsemi að stofnun verk- smiðju, og loks verksmiðjubyggingin sjálf. Könnun leðjunnar í Mývatni Enda þótt fjöldi borunarleiðangra hafi verið gerðir út á Mývatn, sumir fyrr og ennþá fleiri síðar, var yfirgripmesta rannsóknin á magni kísligúrsins framkvæmd af Tómasi heitnum Tryggvasyni vorið 1957. Vatnið var ísi lagt og gerði Tómas hátt á annað hundrað þykktarmæl- ingar. Notaði hann við þetta svonefndan móbor, sem var ýtt niður með handafli, enda er kísil- gúrlagið mjög gljúpt. Sumsstaðar í Syðri-Flóa urðu allföst ösku eða gjalllög fyrir bornum og var það þá reiknað sem botn. Samkvæmt því yfirliti, sem þannig fékkst, má reikna með, að kísilgúrinn í Mývatni nemi minnst 100 millj. m3. Hins vegar er þykktin misjöfn og er gúrinn ör- þunnur sums staðar, en mesta þykkt, sem mæld hefir verið, er meiri en 10 metrar. 1 vatninu mætti þó tilnefna þrjú aðalsvæði, þar sem gúr- inn er mestur og jafnastur. 1 Ytri-Flóa er þann- ig 3—7 metra þykkt á svæðinu út af Helgavogi og Bjargi í átt að Grímsstöðum. Þá er mjög þykkur gúr í svonefndum Bolum milli Hrúteyjar og lands út af austurströnd Mývatns. Loks er samfelldur 3—6 metra þykkur gúr utan eyja í aðalhluta Mývatns. Þykkt botnlagsins á takmörkuðu svæði á Ytri- Flóa var síðar mæld með þéttum borunum og auk þess hefir verið gerður fjöldi annarra könn- unarborana víðs vegar um vatnið. Engar þess- ara borana hafa þó raskað þeirri heildarmynd, sem fékkst vorið 1957. Könnun leðjunnar að því er varðaði efnainni- hald og kísilþörunga hefir að sjálfsögðu einnig farið fram. Margar þykktarmælingarnar voru jafnframt kjarnaborholur og auk þess hafa verið grafnir brunnar með grabba niður í gegmrni kísil- gúrinn til þess að ná stórum sýnishornum. Loks var dælt upp stáli af 7 metra þykkum gúr á 30x30 metra kafla sumarið 1965. Efsti metrinn í gúrsetinu er mjög gljúpur en setið er því þéttara í sér sem neðar dregur. Veggir brunna þeirra, sem gerðir hafa verið, hafa staðið án þess að síga inn. Ásigkomulag setsins má einnig nokkuð marka af því, að þeg- ar neðar dregur með gröftinn í þessum brimn- um, læsir grabbinn tönnunum í botninn og brýt- ur síðan efnið upp í stað þess, að hann hagar sér eins og í graut í efsta hluta setsins. Mestu óhreinindi í gúrnum stafa frá eldgos- um. Alls staðar hafa fundizt fleiri eða færri öskulög, þótt sum þeirra séu mjög þunn. Á milli þessara laga inniheldur gúrinn einnig töluverða ösku, sem gæti bent til þess, að botnlagið ýfist upp og blandist nokkuð saman. Árið 1964 voru gerðar nokkrar kjarnaboranir á svæðinu í Ytri- Flóa og allt suður í Boli til þess að kanna ösku- dreifinguna. Enda þótt setið væri misjafnlega þykkt á þessu svæði, reyndist meðalöskmnagn hvers þversniðs út af fyrir sig mjög líkt eða um 30% af þunga þurrefnis. Þar, sem þykktin er lítil, finnast færri öskulög en þar, sem þykktin er mikil. Þetta gæti bent til þess, að meðan kísil- gúrsetið er að myndast, skolist sá kísilgúr, sem fellur á grynningar, niður á meira dýpi í vatn- inu meðan slíkt er fyrir hendi. Hins vegar er

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.