Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Qupperneq 66

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1966, Qupperneq 66
90 TlMARIT VPl 1966 Gísli Halldórsson verkfræðingur Fæddur 14. febrúar 1907. Dáinn 24. ágúst 1966. Þegar árin færast yfir, hverfa samferðamenn okkar einn af öðrum, og oftast kemur það okk- ur á óvart — við erum sjaldan við því búin að missa félaga og vini. Fráfall Gísla Halldórssonar bar að með sviplegum hætti. Hann lézt snögg- lega af hjartabilun í Madrid á Spáni, en þar var hann á ferð ásamt konu sinni, frú Kolbrúnu Jónsdóttur. Gísli Halldórsson var fæddur og uppalinn í Reykjavík. Foreldrar hans voru Halldór raf- magnsfræðingur Guðmundsson, bónda og for- manns á Eyjarhólum í Mýrdal, Ólafssonar og k.h. Guðfinna Gísladóttir, verzlunarstjóra í Vest- mannaeyjum, Engilbertssonar. Halldór faðir Gísla hafði þegar á æskuárum sínum mikinn áhuga á tæknilegum nýjungum, og til þess að geta unnið að þeim málum brauzt hann til mennta. Hann lauk námi í jámsmíði í Reykjavík 1898 og fyrstur Islendinga lauk hann fullgildu vélstjóraprófi í Kaupmannahöfn árið 1901. Tveim árum síðar (1903) lauk hann, einnig fyrstur Islendinga, prófi í rafmagnsfræði í Berlín. Að námi loknu kom Halldór heim til íslands, og þótt landsmenn kynnu þá ekki allir að meta raforkuna, reisti hann á næstu árum allmargar rafstöðvar víða um landið, en lézt fyrir aldur fram 1924. Halldór Guðmundsson var víðsýnn maður, vel metinn og traustur og má telja hann meðal brautryðjenda í rafvirkjunum hér á Is- landi. Gísli var aðeins 17 ára, þegar faðir hans féll frá, og að ráði föður síns hafði hann þá ákveðið að læra verkfræði. Síðar mun hann fremur hafa kosið að leggja fyrir sig blaðamennsku eða rit- störf, en vildi ekki víkja frá ráðum föður síns. Hann lauk prófi í vélaverkfræði frá Danmarks tekniske Hojskole 1933, var framkvæmdastjóri Síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði 1935-37, framkvæmdastjóri Esbjerg Hermetikfabrik í Esbjerg á Jótlandi 1937-39, yfirverkfræðingur hjá C. A. Meadows í Toronto í Kanada 1951-52 og rak verkfræðiskrifstofu undir eigin nafni í Baltimore í Bandaríkjunum 1952-56. A:m- ars rak Gísli Halldórsson eigin verkfræði- og
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.