Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1878, Side 32
Apríl 24. Landshöfðíngi hefir heyrt álit amtmanna um mál,
sem alþíng 1875 hafði vísað til hans, um skýring á 19.
gr. í sveitastjórnarlögunum 4. Mai 1872, einkum um á-
ætlanir sveitareiknínga.
— s. d. Boðun og áskorun um að stofna lestrarfélag og
bindindisfélag 1 Saurbæjarhrepp 1 Dala sýslu; heitið
verðlaunum fyrir beztu ritgjörð um bindindisfélög, sem
leggja skyldi undir nefndardóm.
— 25. Auglýsing um innköllun seðla innan ársloka 1876.
— s. d. Sjónleikur á Akureyri („Misskilnfngurinn").
— 26. Sýslufundur í Þíngnesi í Borgarf. um fjárkláðamálið.
— 27. Fylla, herskip, sem ætlað var til að vernda fiskiveiðar
Islendínga, kom til Reykjavlkur, foríngi Bille, kapteinn
í sjóliðinu.
— 28. sira Jón Jónsson í Bjarnanesi skipaður prófastur f
Austur-Skaptafells sýslu.
Mai 1. Jón Jónsson, prófastur og prestur í Bjarnanesi, skip-
aður af landshöfðíngja til umboðsmanns yfir Bjarnaness
umboðsjörðum.
— 3. Póstgufuskipið Arcturus kom til Reykjavlkur í annari
ferð; fór aptur 10. Mai. Ný áætlun kom um ferðir skipsins.
— Hafís fyrir öllu Norðurlandi; fylgdu þó höpp nokkur, svo
sem að 50 hnísur náðusi á Lánganesi, 92 höfrúngar við
Axarfjörð og 30—40 við Eyjafjörð. Tvítugan hval rak á
Tjörnesi og annan fertugan á Höfðaströnd, sem Jónatan
bóndi í Bæ vann. Selveiði í nótlöguin lftií.
— 8. sira Davíð Guðmundsson að Möðruvallaklaustri skip-
aður prófastur í Eyjafjarðar sýslu.
— s. d. Sira Þorsteinn Þórarinsson f Berufirði skipaður
prófastur í Suður-Múla sýslu.
— 9. Briggskip með kolafarmi til póstskipsins Díönu rak á
land undan ís og brotnaði í Breiðuvík í Borgarf. eystra.
Selar nokkrir náðust í ísnum f Borgarfirði í Austfjörðum,
og 24 höfrúngar hjá Hólmanesi í Reyðarfirði.
— s. d. Landshöfðíngi veitir styrk úr landssjóði tveimur
piltum að norðan, 200 krónur hverjum, til ao nema í
Noregi jarðyrkjufræði (sbr. 24. Juli).
— 10. Fundur í Reykjavfk af kjörnum mönnum úr nær-
sveitunurn, um fjárkláðamálið. Voru ályktuð almenn
vorböð þar f sveitum, kosnir menn til Þíngvallafundar.
— 11. Viðaukalög við Jónsbókar landsleigubálk 56. kap.
um friðun á laxi.
— 13. Magnús prestur Jónsson, sem hafði fengið Grenjað-
arstað, fékk leyfi til að vera kyr á Skorastað.
— s. d. Benedikt Sveinsson assessor fékk veitíng fyrir Þíng-
eyjar sýslu, þar sem hann hafði áður verið settur um
tvö ár.
— s. d. Benedikt Kristjánsson, prestur á Helgastöðum,
fékk konungsveitíngu fyrir Grenjaðarstað.
(30)