Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Side 25

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Side 25
þegar í fyrndinni tókn menn eptir því, að tnnglkomurnai* bar 19. hvert ár upp á sömu daga (regla Mctons). Menn liafa því skift árunum í runur með 19 ár í hverri runu. í hverri runu eru árin táknuð með tölum í rjettri röð: 1,2 ... . 19. j>essar tölur heita tungltal eða ijyllinital, af því að þær voru í fornu rími ritaðar með gullnu letri. Hverju gyllinitali samsvarar ákveðinn mánaðardagur, er vortungl verður fullt, þ. e. fyrsta tunglfylling eptir 20. Marts. Næsti sunnudagur á eptir er páska- dagur, og því er næsta nýtungl á undau kallað páskatungl. í »gamla stílc voru þessar umræddu ákveðnu dagsetningar algerlega óumbreytanlegar. En þegar fram liðu stundir, leiddi af þessu villu, al því regla Metons var ekki fyllilega nákvæm. Hjá Rússum, sem enn brúka gamla stíl, ber vortunglfylling þá, sem miðast við gyllinitalið, í ár upp á 15. Apríl hjá oss, þarsem tunglið þó er orðið fullt 11. Apríl. 1 nýja stíl breytast því þessar umræddu ákveðnu dagselningar á vissu afarlöngu árabili, svo aö munar einum degi. Eptirfarandi skrá gildir fyrir öll árin 1900 -2199. Gyllini- tal Vortunglfylling Dag- stafur Gyllini- tal. Vortunglfylling Dag- stafur 1 14. Apríl f 11 25. Marts g 2 3. — b 12 13. Apríl e 3 23. Marts e 13 2. — a 4 11. Apríl c 14 22. Marts d 5 31. Marts f 15 10. Apríl b 6 18. Apríl c 16 30. Marts e 7 8. — g 17 17. Apríl b 8 28. Marts c 18 7. — f 9 16. Apríl a 19 27. Marts b 10 5. — d 1 14. Apríl f Leggi maður nú það til grundvallar, að árið 1900 er gyllini- talið 1, þá er ofurhægt að finna gyllinital einhvers annars árs. Árin 1900, 1919, 1938 .... er þannig gyllinitalið 1 og páska- tunglfylling því 14. Apríl. Árin 1903, 1922, 1941 . . . . er gyllinitalið 4 og páskatunglfyllingin því 11. Apríl o. s. frv. í þessu almanaki má og í raun og veru sjá, að í ár, 1903, er tungl- fylling einmitt 11. Apríl. I framanprentaðri skrá er jafnhliða hverri dagsetning til- færður dagstafur hennar. þetta er gert til þess, að hægt sje að finna, hve mörgum dögum síðar sje sunnudagur, með öðrum orðnm: páskarnir. í almanakinn fyrir 1902 er það skýrt, hvað dagstafirnir þýði, og hvernig eigi að fara að að finna sunnubagsbókstai einhvers árs. Árið 1905 er t. d. sunnudagsbókstafurinn A, svo að allir mánaðardagar, sem eiga stafinn a, eru sunnudagar. GyllinitaliK er 6, og ber því vortunglfylling upp á 18 Apríl. [icssi mánaðar- dagur á dagstafinn c. það hlýtur því að vera þriðjudagur, og næsta sunnudag á eptir, 23. Apríl, eru páskar. Næsta ár, 1904, ber páskana upp á 3. Apríl.

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.