Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Blaðsíða 83
Um myndirnar.
Fyrir árið 1902.
Myndiraar í alman. Þvfl. fyrir árið 1802 komu svo seint
frá útlöndum í fyrra vor, að prentuninni var lokið, svo að
eigi var þá hægt að bæta við nokkrum orðum um myndirnar,
eru þau því sett hér.
Tveimur fyrstu myndunum (N. R. Finsen og W. K.
Röntgen) fylgdi stutt æfiágrip.
Þriðja myndin er af Alþingishússgarðinum. Haustið
1884 var iítið eitt byrjað á að laga garðstæðið; þá var
rúmur helmingur hans grjótmöl og sorphaugar, en hinn
parturinn Vo — l alin djúp tjörn; staðurinn var þá eigi á-
litlegur. Vorið 1895 voru steinlímdir steinveggir bygðir á tvo
vegu ogryfinn endi af geymsluhúsi,sem stóð þá á garðstæðinu.
Tjörnin var fylt upp með rusli því, sem fyrir var og svo flutt
mold og áburður ofan á. Grjóthóll er fyrir miðjum enda
garðsins 2'/2 á hæð, voru þar gróðursettar 108 tegundir
af ísl. grösum, sem vaxa á fjöllum, melum og móum, en
lítið var til að láta í garðinn sjálfan. Þó var tínt saman
og gróðursett dálítið af innlendum stórvöxnum blómplönt-
nm, 2 reiniviðar kræklur og nokkrar birkihríslur sunnan
úr Hafnaríjarðarhrauni, og fáeinir ribsviðarangar. Vorið
1890 var plantað í garðinn nokkrum innlendum viðarplönt-
um, en mest ýmsum viðartegundum frá Danmörku. —
Þrátt fyrir það þótt ýmislegt hafi dáið út í vorharð-
indum í garðinum, eru þó nú tilí honum með allgóðu lífi 1.
grenitrje(Piceaalba). sem staðið hefuríS ár og er nú 2J/2
al. á hæð. 7 innlendar birkihríslur (Betula odorata) þar
af 4 úr Fnjóskadal. 60 reiniviðartré (Sorbus aucuparia),
sömu tegundar, sem vex hér á landi á einstaka stað. 30
svonefndir Borgundarhólms reiniviðartré (Sorbus scandica).
4 tré „Gullregn“ (Cytisus) 2 álmviðartré (Ulnms carnp.). 2hvít,-
þyrnar (Cratægus). 2Elriviður (Alnus incana). 8 runnár
„Lonicera“, 2 litlend og 1 innlent gulvíðirtré (Salix phyli-
cifolia). 1 grávíðir (Salix lauata). 4 tegundir út-
lendar .rósir, (Bosa rugosa, Rosa fraksinafolia, liosa
rubrifolia, Bosa pimpinellafolia), lsin 5. er undan
(73) d