Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Blaðsíða 63
Ág. 12. A. E. Nordenskjöld baron í Stokkhólmi. Frægur
norðurfari (69).
— 23. Gunnar Wennerberg, sænskt skáld og tönsn. (84).
Sept. 14. Mac Kinley Bandríkjafors. (úr sárum).
— 30. Vilh. Beck; forsprakki „innratrúboðsins11 í Dan.(72).
Okt. 19. C. F. Tietgen, fjármálafræðim. danskur (72).
Nóv. 6. Li-Hung-Cbang, stjórnskörungur Kinverja mesti
garpur (79).
— 22. Gamazo, fyrv. fjármálaráðhherra á Spáni (63).
Des. 27. Boilleau baron frá Hvítárvöllum. (Ræður sér
bana á ferð milli Edinborgar og Lundúna).
Ben. Sv.
Frá Færeyjum.
Á Færeyjum er enginn banki og engin talar enn opin-
berlega um að setja þar banka á stofn, en þó er varla
sá bóndi til á Færeyjum, sem getur eigi átt hlut í baf-
færu skipi til fiskiveiða. Árið 1900 lögðu Færeyingar einnig
80,000 kr. og árið 1901 200,000 kr. í félagsskap lil þess að
stofna hvalveiðafélag á eyjunum. Færeyingar hafa lika
reist þrennar skipsdráttarstöðvar og munu þær kosta um
100,000 kr. allar til samans. Tvær af þeim eru stofnaðar
í félagsskap (með hluturn), og er merkisbóndinn Olafur á
Heyjum forstöðumaður einnar stöðvarinnar, þeirrar sem
er við Vestmannahöfn. Stöðina í Trangisvogi eiga kaup-
menn, þeir bræður Mortensen.
Árið 1901 keyptu Færeyingar 15 fiskiskip á Englandi.
Þau kostuðu með aðgerð um 120,000 kr. Eign nú Fær-
eyingar 100 þilskip til fiskiveiða. Er það stærri skipastöll
og betri en skipastóll íslendinga, því þótt skip þeirra séu
nokkru fleiri, þá eru skip Færeyinga að meðaltali meira
en helmingi stærri en þilskip Islendinga.
Nú ætla Færeyingar einnig að fara að læra síldar-
veiði með reknetum. Ætla þeir að stunda þær bæði við
strendur Færeyja, Hjaltlands og Skotlands, og líklega ís-