Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Side 38

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Side 38
staka framtakssemi og fyrirhyggju Tietgens ogmeðstjórn- enda hans. Arið 1866 kom liann þremur stærstu skips- eigendum og útgerðarmönnum Dana til þess að steypa saman útgerð sinni og stofna „Hið sameinaða gufuskipa- félag“. Félagið gafst vel og varð arðsamt hluthöfum. Hefir það síðan eflst og aukist og á nú 126 gufuskip auk nokkurra smærri báta. Höfuðstóll telagsins er 18 miljón- ir króna og 2800 manns eru í þjónustu þess. Á árunum 1868 — 70 setti Tietgen á stofn nokkur ritsímafélög. Síð- an steypti liann þeim öllum saman í „Norræna ritsímafé- lagið mikla“, sem er ef til vill eitthvert hið mesta afrek hans. Fyrstu árin átti félagið að stríða við mikla ervið- leika og samkeppni bæði hér í álfu og einkum í Austur- Asíu, og um tíma virtist það varla geta borið sig. En staðfestu og viturleik Tietgens tókst að yfirstíga örðug- leikana og nú er félagið orðið bæði mikið og auðugt og hlutábréf þess eru hvervetna í háu verði. Árin 1871 — 74 setti Tietgen enn á stofn ýms hlutafélög svo sem skipsmíða- stöð þá og vélagerð, sem kend er við Burnieister og Wain. Hafa þar verið smiðuð um 200 skipa og mesti fjöldavéla. Árið um kring hafa 2—3000 manna þar fasta atvinnu og verkalaun þau, er félagið greiðir á ári hverju nema 2 mil- jónum króna. Enn fremur má telja björgunarfélag Svvitz- ers. Hefir það bjargað mörgum skipum og tekið þau út af grynningum og boðum og getið sér góðan orðstír utan lands og innan. Loks má nefna „Sykurverksmiðjurnar dönsku“, er hafa haft mikil og heillarík áhrif á land- húnað Dana, og ölgerðarfélag það, sem kennt er við Tu- horg. Um sömu mundir gekkst Tietgen fyrir lagning nokkurra járnbrauta og lét sér einkar umhugað um að koma meira stórborgarsniði á Kaupmannahöfn með því að konm þar á sporvagnssamgöngum og stofna húsgerðar- félag, sem hefir látið reisa mörg nýtízku hús. Miliarðar þeir, er Frakkar höfðu orðið að gjalda Þj óðverj um í herkostnað eftir styrjöldina 1870—71 hleyptu nýju fjöri í öll viðskifti á Þýzkalandi og þaðan færðist gullstraumurinn til annara landa. En um 1874 (28)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.