Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Page 39

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Page 39
fóru gullstraumarnir að tvístrast og grynnast, og aí' því leiddi af'tur deyf'ð i verzlun og viðskií’tum. Tietgen þurfti því oft að taka á allri forsjá sinni og fyrirhyggju til þess að halda uppi félögum þeim, er hann hafði stofnsett. Fór honum það yfirleitt vel úr hendi, þótt við marga örðug- leika vœri að etja, og má af’ því bæði marka dugnað hans og ekki síður hitt, hversu lifvænleg flest hin nýju hlutafélög voru. Kom honum það oft í góðar þax-fir að hann var bankastjóri, því að margt blakið bar liann af' börnum sínum, hinum nýstof’nuðu hlutafélðgum, með því að veita þeim hanklán, er þeim lá á. Stórkaupmenn þeir og auðmenn, er höfðu verið f'römuðir og' styrktarmenn þessara fyrirtækja reyndust líka Tietgen og hlutafelögunum prýðis vel, þegar einhver hætta var á ferðum. Aldrei haf'a þeir heldur, það vér vitnm, fundið Tietgen það tii foráttu, að hann væri að vasast í mörgu, og sama máii gegnii' um flesta hina hyggnari rnenn. Þeir sáu sem var, að hann var að vinna f'yrir allt þjóðfélagið og almennings- heillina og að hann bæði vildi og gat færst meira í fang og af’kastað meiru en aðrir menn. Eftir 1880 gengu nokkur góð ár yfir löndin og verzl- unar- og viðskiftahorfurnar bötnuðu af'tur. Tietgen tók þá aftur til óspiltra mála og hleypti ýmsum merkilegum hlutafélögum af' stokkunum, svo sem guf’uskipafélaginu (Þingvalla’, er rann seinna samaix við (sameinaða gufu- skipafélagið’, Faksekalknámum, hinum sameinuðu vínanda- verksmiðjum, talsímafélaginu i Kaupmannahöfn, samein- uða ölgerðurfélögunum o. s. fx-v. Þá var það og að Tiet- gen var allríkt í liuga að koma á ritsíma til íslunds. Kornst hann urn það leyti svo að orði við merkan ogmik- ilsvirtan Islending, að ritsíminn til Islands ætti að vera minnnisvarði sinn. Haf'ði hann nokkru áður ferðast víða um lönd og leitað undirtekta erlendra ríkja. En þær voru svo dauf'ar einkum hjá Englendingum og Frökkum, að málið f’órst fyrir. Um 1890 stóð hagur og vegur Tietgens með mestum blóma. Hann var sjálfkjörinn leiðtogi hinnar dönsku '(29)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.