Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Síða 41
mun ervitt uð skera úr, hvort gœfa eða gjörfileiki var rík-
ari í lxfi lians. Mótgerðir mundi hann manna hezt og var
mótstöðumönnum sínum og keppinautum þungur í skauti og
þótti ekki ávalt nógu vandur uð meðulum til þess að koma
þeim á kné. Aftur á móti var hann minnugur á smá-
greiða og bjargvœttur vina sinna. I viðskiftalífinu átti
Tietgen fáa vini. Enda var það álit hans, að viðskifti og
vinátta gfetu lítt sanu'ýmst. Það bakaði honum á stund-
um óvinsældir, að hann sást lítt fyrir í sþurningum og
svörum. Hins vegar er því með réttu viðbrugðið, hversu
hann vur gagnorður, orðsnar og orðheppinn, og á aðal-
fundum félaga hans kom þessi gáfa honum einatt að góðu
haldi, er hann þurfti að stinga upp í andmælendur sína
eða stilla til friðar.
I fljótu bragði mun mörgum þykja æfistarf Tietgens
mjög fjölbreytt og sundurleitt, en í raun réttri er það, ef
betur er aðgætt, einþiett og óslitið. Hann stofnxxr fyrst
banka til þess að fti fjármagn til framkvæmda. Síðan
kemur hann á íot gufuskipafélagi í fósturlandi sínu, sem
ligg'ur einkar vel við verzlun og siglingum. Hann reisir
véla- og skipsmíðastöð til þess að landar hans geti sjálfir
gert skip sín og þurfi ekki að knupa þau af öðrum þjóð-
um fyi'ir ot' fjár. Hann sér og skilur, að gott ritsímasam-
band við önnur lönd og aðrar álfur, er skilyrði fyrir því,
að skipaútgerð og viðskifti Dana við ei'lend rfki geti bless-
ast, og hann stofnar (Norræna i'itsímafélagið mikla’. Loks
duldist honum ekki, að landbúnaðurinn er og verður að-
albjargræðisvegur Dana og að mikið er undir þvi komið,
að bændur geti greiðlega komið afurðum sínum á mark-
aðinn og gert þær íj ölbreyttari. Hann gekkst því fyrir
lagning margi'a járnbrauta og setti (Sykurvei'ksmiðjurnar
dönsku’ á stofn. En stofnun þeirra gaf aftur tilefni til
þess, að nektun sýkurrófunnar varð almenn og landbún-
aðurinn þar af leiðandi fjölbreyttari og arðsamari. Tiet-
gen æt.laðist til að lxin mörgu hlutafélög hans styddi hvert
annað og ynni að framfðrum og hagsæld þjóðarinnar, al-
veg eins og hjólin á margbrotinni vél grípa hvert annað
(31)