Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Page 44

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Page 44
hafi mest að þakka, að sullaveikin er nú stórum sjald- gæíari en fyrir mannsaldri síðan, og það er maklegt að .geta þess, að prófessor Krabbe kom með rannsóknum sin- um Fjord inn á þá braut, sem hann varð síðar heimsfræg- ur fyrir. Fyrstu rannsóknirnar voru um kjfitsuðu, bæði til heilnæmis og sparnaðar. Upp úr þeim tilraunum kom moðsuðan, sem víða er töluvert notuð, og Sveinn búfræð- ingur Sveinsson var einu sinni að kenna bér. I annan stað f'ann hann upp mjög ódýra notkun gufunnar við osta- gjörð o. fl. Verulegustu rannsóknir hans fyrir smjörgerð- ina hófust þá fyrst, er Tesdorpf, stóreignamaður á Falstri 'ög einhver verklegasti búnaðarfrömuður Dana, fékk hann :sér til aðstoðar við íshúsgjörð og til að finna haganleg- ustu not íssins í mjólkurmeðferðinni. Rannsóknirnar, sem að þrí lutu, tóku Fjord langan tíma, og fann hann þá fast lögmál fyrir því, hvað ísinn eyddist við geymslu og svo ó- dýran umbúnað allan, að stórfé sparaðist og smjörbúun- um varð vel kleift að eiga ís til aukinnar smjörframleiðslu. Skömmu fyrir 1880 fara skilvindurnar að koma til verulegra verklegra nota við smjórgerðina, og fékk Fjord þá nóg að gjöra, að kenna mönnum að nota þær oggjöra ýmsar umbætur til þæginda og sparnaðar. Alt þetta gjórð- ist með verklegum tilraunum víðsvegar um landið. Eftir •að Fjord var búinn að sýna það og sanna að eins mætti skilja mjólkina, þó að hún væri flutt og kólnaði á leið- inni, þutu upp samlagsbúin til smjörgerðar, en áður kom sölusmjörið góða bara frá stórbúunum eða „herragörðun- um“. Brátt reyndist það ónógur mælikvarði til að tryggja félagsskapinn að mæla mjólkina, sem til búsins var færð, í pottum eða pundum, hún var svo misfeit, og það hjá sama manninum feitari einn mánuðinn en annan, og það af ýmsum orsökum sem þurfti að komast fyrir. Listin hjá Fjord var yfir höfuð sú að finna litlu orsakirnar, sam- verkandi og gagnverkandi hverjar annari, og hann hafði dæmalaust glögt auga fyrir reynsluathugunum alþýðufólks, sem hann svo skildi og skýrði í Ijósi vísindanna. Eftir miklar rannsóltnir og tilraunir tókst Fjord að búa út hand-

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.