Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Side 88

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1903, Side 88
að á eftírmjöltum, lireitun (Hegelunds aðferð): Höndum er tekið utan um framspenana og þeim lyft upp, svo þær um leið grípa utan um neðri hluta júgursins, þrýstist þá mjólkin niður í mjólkurhólfið og niður um spenann. Þeg- ar á þennan hált er búið með framkirtlana, eru þessi handtök endurtekin þrisvar á hverjum júgurkirtli. Báðum hægri kirtlunum er þrýst hverjum á móti öðr- um þannig, að tekið er um aftari kirtilinn með vinstri hendi og framkirtilinn framanverðan með hægri hendi, þeim þrýst saman og lypt upp um leið. Hendurnar eru látnar síga niður til að þrísta út um spenann þeirri mjólk, sem sígur niður í júgrið. Þessi handtök eru endurtekin 3 sinnum. A sama hátt eru handtökin höfð við vinstri júgurkirtlana. Því næst er hægri kirtlunum þrýst saman á hlið 3 sinnum og þeim vinstri sömuleiðis. Þessi hand- tök eru þannig löguð, að þau verða ekki skýrð. Það eru vandasömustu handtökin. Að þessu búnu er tekið utanum framspenana, hend- inni haldið opinni að ofan og þannig þrýst upp undir júgrið dálítið þétt. I þriðja hvert skipti sem hendinni þannig er þrýst á kirtilinn er mjólkin, sem við það hefur safnast, mjólkuð niður um spenann. Þegar framspenarnir eru tæmdir, er eins farið með þá aftari. Er þá mjöltin húin. Þessi hreitun tekur ekki lengri tíma en 1 — íl/2 mínútu fyrir æfðan mann. An verklegra æfinga getur enginn lært þessa mjalta- aðferð. Þetta, sem hér er sagt, gefur að eins hugmynd um hana. Sig. Þórólfsson. Málshættir. Að sínu hyggja flestir fyrst. Af litlum neista verður oft mikið bál. Af óskum eru flestir jafn ríkir. Aldrei augu leyna, ef ann kona manni. Aldrei er gott oflaunað, nema með illu. Aldrei er svo brot bætt, að betra sé eigi heilt. (78)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.