Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1923, Qupperneq 117
um aldri, einkum við pað aö sitja í röngum stelling-
um við að lesa, skrifa, teikna eða sauma. Snjóbirta
og hvítir skínandi veggir eða pil er mjög skaðlegt
angunum, og auðvitað eiga menn aldrei að horfa í
sólina eða stara í rafmagnsljós né lampa; enn frem-
ur er pað skaðlegt sjóninni að lesa eða sauma í miklu
sólskini, einkum ef sólargeislarnir falla beint á bók-
ina eða vinnuna. Yfirleitt er pað gott ráð til varnar
sjóninni að lypta augunum upp frá vinnunni við og
við; pað hvílir augun. Góð hvíld er að pví að loka
augunum við og við eða renna peim langt burt, líta
til himins eða út að sjóndeildarhring. Pað er heil-
næmt að baða augun kvelds og morgna úr heitu
eða volgu vatni, og er gott að hafa saman við dálítið
af bórsýru eða matarsalti, svo sem hálfa teskeið leysta
upp í einu glasi af vatni. Augum og taugum og yfir-
leitt heilsu manna er eitt hið bezta ráð til styrking-
ar rólegur svefn og hvíld.
6. Ungbarnameðferð. Með fátt er vandfarnara en
börn. Ró og mikill svefn er skilyrði fyrir proska
peirra, sterku taugakerfi ogjafnlyndi. Aldrei má leyfa
að rugga börnum, hrista pau eða kitla eða æsa pau
á nokkurn hátt með ærslum, sízt undir svefntíma.
Forðast skal allt, sem hræðir börn eða æsir, t. d.
ljótar sögur, eins og draugasögur og pess háttar, og
pað eins pótt börn séu stálpuð orðin. Vinkonum og
ættingjum hættir við að taka börn og leika sér við
pau í tíma og ótíma; en slíkt ætti ekki að leyfast.
Herbergi, sem börn eru i, skulu vera björt og lopt-
góð. Forðast skal ryk í peim; loptið sé hreint og
purrt. Á sumrum mega gluggar vera opnir daglangt,
en dyrunum lokað til pess að forðast súg.
7. Að gera efni vatnshelt. Ullarflíkur, ioðefni o. s.
frv. má gera vatnshelt engu síður en lérept. Af saum-
uðum flíkum verður að taka alla króka, hringjur og
knappa; óhreinindi skulu pvegin úr efninu, áður en
byrjað sé. Fylla skal baðker með jafnmiklu vatni
(85)