Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1927, Blaðsíða 68
Veiðibjalla, frá Rvik. Einn skipverja drukknaði Og
2 urðu úti, en hinir björguðust allir.
í p. m. kom tlóð í Hvítá í Árness-sýslu og fór-
ust 12 kindur í flóðinu. — Brunnu um 100 hestar
af heyi á Stóra-Hrauni í Hnappadalssýslu.
Des. 2 Brann mjólkurverksmiðjuhús og skúr á Beig-
alda í Borgarfirði. Mjólkurbirgðum varð bjargað
og flestu lauslegu.
— 6.—10. Stórviðri og blindhríð víða um land. Olli
miklu fjártjóni og hrossatjóni. — Rak upp í
Grundarfirði vélbát og brotnaöi hann í spón. —
Rak upp vélbát i Keflavík og annan í Dalvík, en
þeir skemdust lítið. — Skip, er var í vetrarlagi
við Flatey á Breiðafirði, rak á land og brotnaði
töluvert. — Skemdir urðu nokkurar á bátum á
Seyðisfirði.
— 7. eða 8. Urðu úti Sigurbjörn Magnússon bóndii Gler-
árskógum i Dalas., Lárus Jónsson bóndi á Hömrum
1 Laxárdal í sömu sýslu, enfremur vinnumaður
frá Hrafnabjörgum í sömu sýslu og unglingspiltur
frá Snartartungu i Bitrufirði.
— 8. Brann bærinn á prestssetrinu Höskuldsstöðum
í Húnav.sýslu. Litlu varð bjargað af innanstokks-
munum, en flestum embættisbókum.
— 8. eða 9. Varð úti undir Holtavörðuheiði Olafur
Einarsson Hjaltested, frá Rvík, fyrrum verzlunar-
maður, fæddur */> 1870.
— 10., aðfn. Sökk á Eiðsvík botnvörpungur, íslend-
ingur. Lá þar mannlaus i vetrarlagi.
— 14. Strandaði á Efri-Eyja-fjöru í Meðallandi norskt
flutningaskip, Eina. Mannbjörg varð.
— 10. Strandaði á Mýrdalssandi enskur botnvörp-
ungur, Valbrough. Mannbjörg varð.
'— 21., aðfn. Strandaði á Víkurflúðum við Dritvík
botnvörpungur, Ása, frá Rvík. Mannbjörg varð. —-
Brann hús á Hellissandi. Engu varð bjargað af
innanstokksmunum.
(04)