Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1927, Blaðsíða 38
Ókeypis lóðir undir hús geta starfsmennirnir
fengið, ef peir kjósa fremur að »búa undir eigin-
þaki« en leigja ibúðir af verksmiðjunni, og fá þeir
jafnframt hjálp til þess að koma húsunum upp.
Þeir, sem vinna til langframa í verksmiðjunni, ekki
skemur en 15 ár, fá sérstaka viðurkenning fyrir það.
Ágóðahlutdeild geta allir starfsmenn verksmiðj-
unnar hlotið, þegar þeir hafa unnið þar um hríð,
sem samsvarar vöxtum af allt að 3000 sterlingspunda.
í þessu skyni hefir verksmiðjan greitt starfsmönnum
sínum um tvær miljónir steriingspunda.
Lífsábyrgð og slysatrygging annast verksmiðjan
fyrir starfsmenn sína eftir ákveðnum reglum.
Hér hafa nú að eins verið nefnd »veraldleg gæði«,
sem sólskinssápan hefir veitt þjónum sínum. En Lord
Leverhulme vissi það, sem hver annar, að maðurinn
lifir ekki á einu saman brauði, og því gleymdi hann
ekki »hinni andlegu hlið mannlífsins«. Má þar til
nefna, að í Port Sunlight er stórt og mikið bókasafn,
til frjálsra afnota öllum starfsmönnum verksmiðjunnar.
Par er vegleg kirkja og afar mikið listasafn, sem lafði
Leverhulme stofnaði. Sjúkrahús er þar og skólar,
sem áður segir, auk pósthúss og banka. Minnismerki,
mikið og fagurt, reisti Lord Leverhulme til minn-
ingar um þá 4000 starfsmenn sína, sem börðust fyrir
föðurland sitt í styrjöldinni miklu. Af þeim féliu
503 vaskra drengja. — Ýmis konar »klúbbar« eru þar
í Port Sunlight, eins og tiðkast meðal velmegandi
Breta. Par er kappsundsfélag og íþróttafélag, garð-
yrkjufélag, útvarpsfélag og margur annar þvi um
líkur félagsskapur, til ánægju og umbóta, skemti-
lundar ýmis konar og útileikastarfsemi, leikhús og
sönghallir, þar sem þátttakendur eru allir meðal
starfsfólksins.
Ýmis konar reglur gilda í verksmiðjum Lord Lever-
hulmes, sem hér yrði oflangt að rekja, en eitt höíuð-
(34)