Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2004, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2004
Fréttir DV
í Ukraínu
Eða verður farið að skjóta?
í skáldsögu Þráins Bertelssonar,
Dauðans óvissi tími, segir frá
íslenskum forsætisráðherra, Jökli
Péturssyni, sem fer í heimsókn til
Úkraínu - á stað sem enginn annar
vestrænn valdamaður vill sækja
heim. Segir í bókinni að þetta gerist
um líkt leyti og blaðamaður finnst
dauður úti í skógi þar eystra. Jökull
er nokkuð auðþekkjanlegur líkt og
aðrar persónur í bók Þráins - dauði
.þlaðamaðurinn er hka sóttur í raun-
veruleikann.
Stærsta óþekkta landið í
Evrópu
Úlöraína er skrítinn staður. Þetta
er land sem var ekki til þegar maður
var að alast upp. Til skamms tíma
voru menn svo iila upplýstir um það
að þeir sögðu oftar en ekki
„Úkranía" í sjónvarpinu. Þetta er
stærsta óþekkta landið í Evrópu.
íbúamir eru fimmtíu miUjónir, fleiri
en á Spáni. Það er hvorki meira né
minna en 600 þúsund ferkílómetrar,
stærra en Frakkland.
Hungur sem pólitískt vopn
Saga Úkraínu á 20. öld er all-
'íirikaleg. Landið varð hvað eftir ann-
að fyrir ásókn og ofbeldi voldugra
nágranna. Mörg skelfilegustu
grimmdarverk aldarinnar voru
framin í Úkraínu. Þar vou miklir
vígvellir í fyrri heimsstyrjöldinni og
á eftir blossaði upp borgarastríð þar
sem þjóðernissinnar, bolsévíkar og
hvfdiðar bárust á banaspjótum. Eftir
stríðið varð Úkraína hluti af Sovét-
ríkjunum. Þar hófúst skelfilegir
gjörningar - mestanpart af manna-
völdum. Bolsévíkar notuðu hungur
sem pólitískt vopn - ætlunin var að
svelta íbúana til hlýðni. Stalín van-
treysti Úkraínu, sendi þangað
grimmustu skósveina sína; hung-
ursneyðina 1932 til 1933 má í raun
kalla þjóðarmorð.
Úkraínumenn óæðra fólk
Nokkrum árum síðar fóru þýsku
nasistarnir þarna yfir og töldu jafn-
vel að Úkraínumenn myndu snúast
á sitt band eftir reynsluna af Sovét-
stjórninni. En fögnuðurinn varð
skammvinnur. Hugmynd Hitlers var
að Úkraína yrði kornforðabúr þýska
ríkisins - þangað áttu að streyma
Jpýskir landnemar. Hann átti ekki
síst við Úkraínu þegar hann æpti og
heimtaði „lebensraum". Úkraínu-
menn voru óæðra fólk í augum nas-
istanna, slavar, og þeir komu fram
við þá af grimmd og fyrirlitningu.
Stríðið hefði kannski getað farið
öðruvísi ef svo hefði ekki verið.
100 þúsund gyðingar myrtir í
JBabi Jar
Hámarki náði grimmdaræðið í
fjöldamorðunum við Babi Jar, þar
sem nasistar myrtu 100 þúsund gyð-
inga og husluðu þá í gjá nærri Kiev.
Tölurnar eru ekki mjög áreiðan-
legar en talið er að ekki færri en sjö
milljónir Úkraínumanna hafi farist
undir Sovétstjórninni, verið sveltir í
hel, myrtir eða fluttir burt. Fimm
milljónir eru sagðar hafa látið lífið í
seinni heimsstyrjöldinni, en um það
bil ein milljón úkraínskra gyðinga
missti lífið af völdum nasista.
Tsjérnóbýl það sem Úkraína
er þekktust fyrir
Síðan er Tsjérnóbýl sjálfsagt það
sem Úkraína er fr ægust fyrir - líklega
’þekkja fleiri þann dapra stað en nafh
sjálfrar höfuðborgarinnar, Kiev.
Egill Helgason
skrifar um eldfimt
ástandið í Úkraínu.
Laugardagskj allari
26. apríl 1986 sprakk kjarnaofn í
Lenín-kjarnorkuverinu með þeim
afleiðingum að mikil geislamengun
varð á stóru svæði. Það er jafnvel
talið að rekja megi krabbameinstil-
felli í Norður-Svíþjóð til þessa slyss.
Það Vcirð líka til þess að grafa undan
Sovétkerfinu og tiltrúnni á það - og
stuðlaði þannig að sjálfstæði Úkra-
ínu.
Fimm árum síðar var Úkraína
orðin sjálfstætt rfki. Það var að
sönnu óvænt, gerðist eiginlega án
þess að heimurinn tæki eftir því.
Margir höfðu álitið að sjálfstæðisvit-
und þjóðarinnar væri gufuð upp. Að
sumu leyti var þetta aðdáunarverð-
ur viðskilnaður. Það voru engar
blóðsúthellingar - enginn dó. Einn
daginn voru Ukraínumenn á bak og
burt með fimmtung íbúa Sovétveld-
isins. Auðvitað var þetta mjög í anda
flauels- og blómabyltinganna sem
gengu yfir Austur-Evrópu frá 1989 til
1991.
Varð eitthvað eftir af kjarna-
vopnum?
Þótt ýmiss konar þjóðernistog-
streita kraumaði undir tókst merki-
lega vel að leysa ágreiningsefni. Eftir
nokkrar deilur tókst til dæmis að
skipta flotanum á Svartahafi milli
Rússlands og Úkraínu. Og svo voru
það náttúrlega kjamorkuvopniri.
Úkraínumenn erfðu um 5000
kjarnavopn við endalok Sovétríkj-
anna. Með slíku vopnabúri hefðu
þeir getað orðið nokkuð álitlegt
kjarnorkuveldi. Nágrönnum hefði
stafað ógn af þeim. En af hyggjuviti
ákvað stjórnin í Úkraínu að afhenda
Rússum kjarnavopnin. Þetta var
talið til fyrirmyndar. Þó er raunar
orðrómur um að eitthvað af kjarna-
vopnum hafi orðið eftir eða að þau
séu vantalin.
Námuverkamenn kusu víða
Nú er Úkraína á allra vörum. Það
vissi enginn að það ætti að fara að
kjósa í landinu - nú eru þessar kosn-
ingar umtalsefni allrar heimsbyggð-
arinnar. Svindlið virðist hafa verið
dæmalaust. Rfkisfjölmiðlum var
beitt miskunnarlaust gegn fram-
bjóðanda stjórnarandstöðunnar,
Viktori Justénkó. Hann var útmálað-
ur sem stjórnleysingi og jafnvel
Viktor Justénkó
Viktor Janúkovits
nasisti. Útsendingar óháðra sjón-
varpsstöðva voru truflaðar. Fundum
hjá Jústénkó var hleypt upp af bull-
um sem sagðar eru vera á mála hjá
öryggislögreglunni. Námuverka-
menn, sem stjórnvöld kaupa til liðs
við sig, fengu nokkurs konar farand-
kjörbréf og fóru víða og kusu aftur
og aftur.
Spilling ríður ekki við
einteyming
Þrátt fyrir svikin voru úrslitin ekki
einu sinni ótvíræð. Útgönguspár,
sem verða að teljast nokkuð áreið-
anlegar, bentu til góðs sigurs
Jústénkós. En þegar úrslitin voru
birt kom á daginn að stjórnarfram-
bjóðandinn, Viktor Janúkovits for-
sætisráðherra, hafði sigrað naum-
lega. Enginn sendi heillaóskaskeyti
nema Pútín frá Moskvu.
í grein á Deiglunni talar Pawel
Bartozsek, skarpgáfaður Pólverji
sem er búsettur á íslandi, um hina
mafi'u- og Rússlandsstuddu valda-
stétt í Úkrafnu. Víst er að spilling þar
ríður ekki við einteyming. Lýðræð-
inu hefur miðað afturábak. Iðnaður,
viðskipti, stjómkerfi og lögregla er í
höndum fámennrar og sjálfselskrar
valdaklíku sem hikar ekki við að
beita svikum og jafnvel morðum til
að verja hagsmuni sína.
Forsetinn fyrirskipaði morð
Lykilmaðurinn er Leoníd
Kútsma, fráfarandi forseti - sá sem
íslenski forsætisráðherrann fór að
heimsækja. Það þykir næstum sann-
að að hann fyrirskipaði ránið og
morðið á blaðamanninum Georgi
Gongadze sem hafði gagnrýnt hann
á internetinu. Lík Gongadze fannst
höfuðlaust og hroðalega leikið í
skurði í útjaðri Kiev. Af segulbands-
upptökum sem einn af lífvörðum
Kútsmas gerði og láku út má ráða að
hann sé óvenju orðljótur, vænisjúk-
ur og fullur af gyðingahatri.
Ýmiss konar togstreita birtist í
mótmælunum sem hafa staðið í
Úkraínu síðustu daga. Þarna takast á
austur og vestur, eins og margoft
hefúr komið fram í fréttum. Þeir sem
vilja fylgja Rússlandi og þeir sem
horfa vestur til Evrópu. Um 20
prósent íbúa Úkraínu eru Rússar.
Pútín lagði líka mikið undir í kosn-
ingunum; hann fór í tvær kosninga-
ferðir til að styðja Janúkovits. Rússar
eru æfir vegna mótmælanna. Menn
þykjast sjá merki um að heimsveld-
isdraumar Rússa séu að ganga í end-
urnýjun.
Bandarískt fé á vettvangi
Bandaríkjamenn eru líka á vett-
vangi - það er fullyrt að bandarískt fé
sé þarna að baki og jafrivel bein
bandarísk íhlutun. Með svipuðum
hætti, vel skipulögðum og hönnuð-
um herferðum, borgaralegri óhlýðni
og friðsömum mótmælum sem náðu
augum heimspressunnar tókst að
hrekja frá völdum Milosevic í Serbíu
og Shevardnadze í Georgíu. í báðum
ríkjunum beittu Bandaríkjamenn sér
með stjómarandstæðingum, banda-
rísk sendiráð í löndunum vom bein-
línis viðriðin. Mikil ítök Bandaríkja-
manna í Georgíu fara mjög í taug-
amar á stjórninni í Moskvu. Hið
sama var svo reynt til að fella Alex-
ander Lúkasjenko forseta í
Hvíta-Rússlandi, en það mistókst.
Lúkasjenko fagnaði og sagði að það
yrði „enginn Kostunica í Minsk".
Kaþólskir upp til hópa
Atburðimir em þó flóknari en svo
að það sé bara togstreita milli vest-
rænna hátta og rússneskra. í vestur-
hémðum Úkraínu ríkir víða býsna
fornleg þjóðernisstefna sem á rætur
sínar að rekja til 19. aldar. Þar em
menn upp til hópa kaþólskir, ekki
„rétttrúaðir" eins og Stór-Rússar, og
þeim sem aðhyllast hina úkraínsku
þjóðernisstefriu er meiniUa við
Rússland. Án þess vel að merkja að
þeir séu sérlega hallir undir Evrópu
eða vestræna siði. Einnig spilar inn í
rígur milli landshluta og borga: Höf-
uðborgarinnar Kiev þar sem hafa
risið nútímalegir skýjakljúfar síð-
ustu árin, hafnarborgarinnar frægu
Odessa þar sem stór hluti íbúanna
er Rússar, hinnar fornu borgar Lviv
þar sem skuggar myrtra gyðinga
grúfa ennþá yfir, sumarborgarinnar
Jalta þar sem mafi'an ræður ríkjum
og iðnaðarborgarinnar Donetsk en
þar sleikja beiskjufuUir kolanámu-
Svindlið virðisthafa
verið dæmalaust.
Ríkisfjölmiðlum var
beitt miskunnarlaust
gegn frambjóðanda
stjórnarandstöðunn-
ar, Viktori Justénkó.
Hánn var útmálaður
sem stjórnleysingi og
jafnvel nasisti.
menn sárin - undir kommúnisman-
um höfðu þeir hærri þjóðfélags-
stöðu en læknar og lögffæðingar.
Tvístígandi Evrópusamband
Evrópusambandið er mjög tví-
stígandi. Úkraína á landamæri að
nýjum ESB-löndum, Litháen, Ung-
verjalandi, PóUandi. Það hafa jafnvel
verið uppi hugmyndir um að Úkra-
ína fái inngöngu, en mörgum finnst
það uggvænlegt. Ekki síst ef Tyrk-
land er líka á listanum með aUar sín-
ar mUljónir. Ráðamenn í Evrópu
hafa lýst því yfir að kosningarnar
hafi verið svindl, en þefr óttast að
styggja Pútín sem er æfur vegna
uppreisnarinnar. Segir að Vestur-
lönd eigi ekki að skipta sér af - það
verði að koma á lögum og reglu.
Verður skotið á mótmælend-
ur?
í Úkraínu eru atburðirnir kaUaðir
„kastaníubyltingin" - eftir kastaníu-
trjánum sem prýða götur Kiev. Þegar
þetta er skrifað sitja mótmælendur
um opinberar byggingar í Kiev. Stór-
menni á borð við Adamkus forseta
Litháens, Kwasniewski forseta Pól-
lands, Lech Walesa og Javier Solana
er komið tU Kiev tU að miðla málum.
Úkraínumenn eru ekki vanir að vera
í fréttunum, en það hefur aldeUis
breyst. Næstu daga kemur svo í ljós
hvort þetta leysist með aðferðum
blóma- og flauelsbyltinga eða hvort
lögreglan fer að berja mótmælendur
eða jafnvel skjóta á þá.