Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1978, Síða 5
SKÝRINGAR VIÐ ALMANAKIÐ
N Fánadagur l Tunglið
# Nýtt tungl ý Merkúríus
© Fyrsta kvartil $ Venus
O Fullt tungl <J Mars
3 Síðasta kvartil % Júpíter
h Satúrnus
$ Úranus
'i' Neptúnus
E Plútó
N, Stjörnuhröp’
í töflum um sólargang telst dögun þegar sólmiðjan á uppleið er 18°
undir sjónbaug (láréttum sjóndeildarhring) og dagsetur þegar sól er
i jafnlangt undir sjónbaug á niðurleið. Er þá himinn aldimmur yfir
athugunarstað. Birting og myrkur reiknast þegar sólmiðjan er 6°
undir sjónbaug. Sólarupprás og sólarlag reiknast þegar efri rönd sólar
er við sjónbaug og er þá tekið tillit til ljósbrots í andrúmsloftinu
sem svarar 0,6°. Hádegi er þegar sólmiðjan er í hásuðri. Miðnætti
(lágnætti) er 12 stundum síðar. Stjörnutíminn gefur til kynna hvaða
stjörnulengdarbaugur er yfir Reykjavík.
Um björtustu fastastjörnur og reikistjörnur er þess getið hve bjartar
þær eru, hvenær þær eru í hásuðri frá Reykjavík og hve hátt þær eru
þá yfir sjóndeildarhring. Einnig er tekið fram, í hvaða átt og hæð
stjörnurnar eru við myrkur og í birtingu. Birtan er tilgreind í birtu-
stigum, sbr. bls. 70. Hæðin reiknast í gráðum yfir sjónbaug og er
ljósbrot þá meðtalið. Punktalína merkir að stjarnan sé undir sjón-
baug allan myrkurtíma sólarhringsins.
Merkinu N, fylgir nafn þeirrar loftsteinadrífu sem um er að ræða.
Flverrar drífu gætir venjulega í nokkrar nætur, en merkið er sett við
þá dagsetningu sem svarar til hámarksins.
O 21 28 merkir að tungl sé fullt kl. 21 28.
, $ 3°S J) kl. 07 merkir að Venus sé 3° sunnan við tunglið kl. 07.
Útreikningarnir miðast við Reykjavík, en tíminn er stundum til-
greindur þótt tungl sé undir sjónbaug þar þegar samstaðan verður.
5 lengst í austur (18°) merkir að Merkúríus sé lengst í austur frá
sólu og að fjarlægð hans frá sólu á himinhvolfinu sé 18°.
Tungl hæst (44°) merkir að tungl sé hærra á lofti í hásuðri frá
Reykjavík en dagana á undan og eftir, og að hæð þess nemi 44°.
Feitt letur í flóðdálkunum auðkennir hæstu flóðin. Flóðhæðin í
Reykjavík (tilgreind í svigum) reiknast frá fleti sem er 0,22 m (áður
0,12 m) undir sjávarborði á meðalstórstraumsfjöru.
Hnattstaða Reykjavíkur er í þessu almanaki talin 64 gráður 8,4
* mínútur norðlægrar breiddar og 21 gráða 55,8 mínútur vestlægrar
lengdar (Skólavörðuholt). í Reykjavík samsvarar breiddarmínútan
1858 metrum, en lengdarmínútan 811 metrum.
Um tímareikning. í almanaki þessu eru allar stundir taldar eftir
miðtíma Greenwich sem nú er íslenskur staðaltími. Á stöku stað
reiknast stundirnar fram yfir 24. Þannig táknar tímasetningin
.,25 12“ hinn 14. janúar það sama og 01 12 hinn 15. janúar.
(3)