Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Árgangur

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1978, Blaðsíða 67

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1978, Blaðsíða 67
Júpíter (2|) er bjartasta stjarnan á kvöldhimninum frá ársbyrjun og til þess tíma að Venus fer að sjást. Fram til vors er Júpíter á lofti mestan hluta nætur. Hann gengur bak við sól í júlí, er morgunstjarna að hausti og hækkar á lofti eftir því sem hann fjarlægist sól. Frá byrjun október kemur hann upp í Reykjavík fyrir miðnætti en nær ekki gagnstöðu við sól fyrr en í janúar á næsta ári. Júpíter er á mörkum tvíburamerkis og nautsmerkis í byrjun árs, reikar fyrst lítið eitt til vesturs inn í nautsmerki, snýr þar við 20. febrúar og er kominn í tvíburamerki um miðjan apríl. Þegar dimmir að hausti er hann enn í tvíburamerki, gengur í krabbamerki seint í ágúst og er þar til ársloka. Fjögur stærstu tungl Júpíters eru sýnileg í litlum sjónauka, en sjaldan öll í einu. Á næstu siðu er greint frá því, hvenær þau myrkvast. Satúrnus (Fj) rís um náttmál í Reykjavík í byrjun árs. Frá þvi í febrúar og fram til vors er hann á lofti allar stundir þegar dimmt er. Hinn 16. febrúar er Satúmus í gagnstöðu við sól og þá í hásuðri um lágnættið. Hann gengur bak við sól 27. ágúst og fer að sjást sem morgunstjarna þegar líða tekur á september. Eftir því sem hann fjarlægist sól, kemur hann upp fyrr á morgnana, og um miðjan desember er hann kominn upp fyrir sjónbaug í Reykjavík fyrir mið- nætti. Satúrnus er í ljónsmerki allt árið. í góðum sjónauka sjást hinir frægu hringir, sem auðkenna Satúmus frá öðrum reikistjörnum. Halli hringanna í átt frá jörðu fer nú minnkandi og er 10° í árs- byrjun en aðeins 4° í árslok. Stærsta tungl Satúrnusar, Títan, sést í litlum stjömusjónaukum. Birtustig þess í gagnstöðu er nálægt +8,5. Úranus ($) er í vogarmerki allt árið og því lágt á lofti. Hann er í gagnstöðu við sól 5. maí og sést því best síðari hluta vetrar. Eftir- farandi tafla sýnir stöðu Úranusar í stjörnulengd (a) og stjömu- breidd (5) og hvenær hann er í hásuðri frá Reykjavík, en þá er hann hæst á lofti, 9—10° yfir sjónbaug, og kominn upp fyrir 3 1/2 klst. 1 suðri a 5 / suðri a 8 í Rvik h m o í Rvik h m o 1. jan. 09 37 14 52 -16,1 1. maí 01 42 14 49 -15,8 1. febr. 07 39 14 56 -16,3 1. mars 05 49 14 56 -16,3 1. des. 1151 15 03 -16,9 1. apríl 03 45 14 53 -16,2 31. des. 09 59 15 09 -17,3 Neptúnus ('Jt) er í merki naðurvalda allt árið, mjög sunnarlega í sólbrautinni og því lágt á lofti og erfitt að sjá hann frá íslandi. birtustig hans er um +8 svo að hann sést aldrei án sjónauka. Plútó (E) er allt árið í meyjarmerki. Birtustig hans er nálægt +14 svo að hann sést aðeins í góðum stjörnusjónaukum. (65)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.