Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1978, Side 78
Tími.
1 sekúnda (atómsekúnda) = 9192 631 770 sveiflutímar' tiltekinnar
raföldu frá loftkenndu sesini 133, sem er ein samsæta frum-
efnisins sesíns. Grundvallareining tímans í hinu alþjóðlega
einingakerfi síðan 1967.
1 almanakssekútida = 1/31 556 925,974 7 hluti úr lengd hvarfársins,
eins og það var árið 1900. Grundvallareining tímans í stjörnu-
fræði síðan 1952. Atómsekúndan var skilgreind þannig, að
hún yrði sem næst almanakssekúndunni að lengd.
1 dagur (meðalsóldagur) = meðallengd sólarhringsins yfir árið =
24 stundir = 1440 mínútur = 86 400 sekúndur (meðalsól-
sekúndur) = sú tímaeining, sem venjulegar klukkur eru miðað-
ar við; of breytilegur til að vera grundvallareining í eðlisfræði
eða stjömufræði. Almanakssekúndan jafngildir meðalsól-
sekúndunni eins og hún var árið 1900.
1 stjömudagur = snúningstími jarðar miðað við stjörnuhimininn
(nánar tiltekið vorpunkt himins) = 23 st. 56 mín. 4,1 sek.
1 hvarfár (árstíðaár) = tíminn milli sólhvarfa = 365,242 20 dagar.
1 stjörnuár = umferðartími jarðar um sólu miðað við fastastjömur
= 365,256 36 dagar.
1 almanaksár (gregoríanskt) =- 365,242'50;dagar.
Hraði.
1 metri á sekúndu (m/s) = hraði hlutar sem fer vegalengdina 1 metra
á hverri sekúndu án hraðabreytinga.
1 km/klst. = 0,278 m/s.
1 míla/klst. = 1,61 km/klst. = 0,447 m/s.
1 hnútur = 1 sjómíla/klst. = 1,85 km/klst. = 0,514 m/s.
Hraði hljóðsins í lofti við 0°C = 1193 km/klst. = 331 m/s.
Hraði ljóssins í lofttómu rúmi (staðalgildi) = 299 792 458 m/s.
Hröðun.
1 metri á sekúndu, á sekúndu (m/s2) = hröðun hlutar sem eykur
hraðann jafnt og þétt um 1 metra á sekúndu á hverri sekúndu.
1 „g“ = þyngdarhröðunin (fallhraðaaukningin) við yfirborð jarðar
(staðalgildi) = 9,806 65 m/s2.
1 gal = 10~2 m/s2.
Kraftur.
1 njúton (newton, N) = krafturinn sem beita þarf á massann 1 kg tii
að valda hröðun sem nemur 1 m/s2 þegar viðnám er ekkert.
1 dyn = 10~5 N.
Þyngdarkrafturinn sem stafar frá 1 kg í r metra fjarlægð =
6,67 • lCh'Vr2 njúton á hvert kg sem þar er.
(76)