Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1978, Page 82
HÁTÍÐISDAGAR 1976-1980
Ar Páskar Sumard. fyrsti Uppstigning. Hvítasum
1976 18. apríl 22. apríl 27. maí 6. júní
1977 10. apríl 21 apríl 19. maí 29. maí
1978 26. mars 20. apríl 4. maí 14. mai
1979 15. apríl 19. apríl 24. maí 3. júní
1980 6. apríl 24. apríl 15. maí 25. maí
UM HEIMILDIR OG OTREIKNING ALMANAKSINS
Aðalheimildin að hinum stjörnufræðilega hluta almanaksins er í
bresk-bandaríska almanakið The Astronomical Ephemeris, sem
einnig er gefið út undir nafninu The American Ephemeris and
Nautical Almanac. Mikið af gögnum úr þessu riti var fengið á
segulbandi frá bandarísku almanaksskrifstofunni (Nautical Almanac
Office, U.S. Naval Observatory). Flýtti það mjög fyrir útreikningum,
sem að miklu leyti voru unnir með tölvu Reiknistofnunar Háskól-
ans.
Flóðtöflurnar voru unnar í haffræðistofnuninni (Institute of
Oceanographic Sciences) í Birkenhead fyrir milligöngu Sjómælinga
íslands. Breska almanaksskrifstofan (H. M. Nautical Almanac
Office, Royal Greenwich Observatory) sá um útreikning stjömu-
myrkva fyrir Reykjavík. Við útreikning á myrkvum Algol var
höfð hliðsjón af nýjustu upplýsingum í tímariti breska stjömu-
fræðifélagsins (British Astronomical Association) og bandaríska (
tímaritinu Sky and Telescope. Veðurstofan lét vinsamlega í té
gögn til grundvallar fróðleiknum á bls. 72 og 73, þar á meðal upp-
dráttinn af spásvæðunum. Taflan yfir björtustu fastastjömumar er að
mestu leyti byggð á upplýsingum úr bókinni Astrophysical Quantities
eftir C. W. Állen (1973). f þeirri töflu, svo og í kaflanum um hnetti
himingeimsins og í skránni um mælieiningar, hefur nokkrum tölum
verið breytt til samræmis við ný gögn. Tölur um vegalengdir á
íslandi voru fengnar hjá Vegagerð ríkisins.
Svanberg K. Jakobsson sá um gerð nýrra uppdrátta og aðstoðaði
við prófarkalestur. Ævar Jóhannesson sá um endurnýjun umgjarðar
á forsíðu. Þorgerður Sigurgeirsdóttir annaðist spjaldagötun fyrir
tölvuvinnslu o. fl.
LÖG UM ALMANÖK
' Samkvætm lögum nr. 25, 27. júní 1921, hefur Háskóli fslands
einkarétt til að gefa út og selja eða afhenda með öðrum hætti
almanök og dagatöl á íslandi. Nánari greinargerð er að finna í
almanaki fyrir 1966.
Eftirprentun úr almanaki þessu án skriflegrar heimildar
er stranglega bönnuð
(80)