Jólagjöfin - 24.12.1918, Side 14

Jólagjöfin - 24.12.1918, Side 14
»J/« »\U *•!•« »J^ nU »>L» sL« «X« \U «sl/’ vL« *sL>* *^l/» nU »vL» »X* nL1 «J<« »J<» «J/» Þrjár jólanætur. ií- ^s. vp.~%<i^~~7^--7rc- Ur sœnsku. í margar vikur haf'ði veriö annríkt á heimilinu. ÞaS var bruggað og bakaö til jólanna. Það var slátrað, og hreint þurfti að gera í hverjum krók og hverju horni. Snemma um morguninn á aðfangadaginn var tekið til starfa. Stórar 'karfir með matvæli og jólagjafir þurfti að senda á fá- tæku heimilin í grendinni, og heima fyrir þurfti mörgu að korna í lag fyrir hátíðarhaldið um kveldið; en menn töldu ekki erfiðið eftir sér; því það var aðfangadagur jóla. Úti í garðinum kvökuðu spörfugiarnir í kring um jólaknippið. Snati gelti hjá húsinu sínu og kisu fanst eitthvað óvanalegt á ferðum; þaö var auðséð á henni, þegar hún læddist inn í eld- húsið. Þegar húsmóðirin var búin að annast alt smávegis, sem gera átti, fór hún inn í dagstofuna sína og settist á stól til þess að hvíla sig. Húsgögnin voru einföld, en nett og prýðilega fáguö, drifhvít gluggatjöld og brakandi eldur í ofninum. Alt var svo aðlaöandi, og það var svo notalegt þar inni, að það virtist mjög svipað prúðmannlegxi og góðlegu konunni gömlu með bláu, mildu augun og drifhvíta hárið. Andlit hennar bar með sér vott margrar baráttu, en einnig unnins friðar og gleði. Hún var á að giska 70 ára að aldri. Hún settist á stól við skrifborðið sitt og ætlaði að hvíla sig nokkura stund. Það var nú ekki svo auðgert, því hröð fótatök heyrðust frammi í ganginum og ung stúlka lauk dyrunum upp og sagði: „Nú kemur jólatréð; hvar vill frúin láta það standa?" Frúin leit upp; hún var búin að gleyma trénu. „Það er best aö það standi í stofunni út að lystigarðinum/' svaraði hún; „svo skreytum við það seinna.“

x

Jólagjöfin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólagjöfin
https://timarit.is/publication/872

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.