Jólagjöfin - 24.12.1918, Blaðsíða 27

Jólagjöfin - 24.12.1918, Blaðsíða 27
Jólagjöfin. 21 það, stattu á fætur þegar i stað og haltu leiöar þinnar, hyggn- ari af reynslunni, til þess eru vítin að varast þau. Og hvað, sem fyrir kann að koma, þá reyndu að halda í framfara-áttina, án þess að hvika.. Og hrasir þú hvað eftir annaö, nú, þá er ekki annað en rísa hvað eftir annað á fætur. Það er alveg eins mikil ástæða fyrir þig að rísa á fætur í þúsundasta sinni, ef þú hefir fallið þúsund sinnum, eins og það var í fyrsta sinni. Og ef þig brestur ekki þrautsegja og þolinmæði, er þér sigur- inn vís að lokum, því að þróttur vor eflist í þrautum og striði. Einn af meisturunum sagði einhverju sinni: „Eina iðrunin sem er nokkurs nýt, er hinn fasti ásetningur að drýgja ekki sömu syndina aftur.“ Vitrum manni getur vissulega yfirsést, en hann lætur sér ekki verða sama yfirsjónin á, oftar en einu sinni. „Eg veit, að ástvina-missir verður mörgum manni lang- sárasta saknaðar og trega-efnið. Og jafnvel þetta mikla sorgar- efni gæti, mér liggur við að segja, horfið sem dögg fyrir sólu, ef menn gerðu sér verulega far um að skilja hvað dauðinn er í raun og veru. Oss, sem nú lifum, ætti ekki að vera eins mikil vorkunn að fá áttað oss á þessu mikilvæga atriði, eins og forfeðrum vorum. Vér ættuin ekki að þurfa að fyllast örvænt- ingu eða kvíða, er vér verðum að sjá á bak ástvinum vorum inn í annan heim. Vér ættum ekki að þurfa að vera á milli vonar og ótta um, hvort fundum vorum beri saman. Svo er fyrir þakkandi, að nú hefur þekkingin rutt sér til rúms i þessum efnurn hin síðari árin. Það má heita, að hver maður geti nú aflað sér sannana fyrir þvi, að dauðinn er ekki annað en för frá þessu tilverustigi og yfir á annað, frá þessu lífi til æðra lífs, og að vér höfum ekki mist þá ástvini, sem á undan oss eru farnir, heldur aðeins mist sjónar á þeim um stundarsakr. Og ef vér gæfum oss tima til að sjá og skilja, hvað dauðinn er í raun og sannleika, mundi ekki líða á löngu, þangað til hinn sjálfselskukendi söknuður og tregi yrði að víkja fyrir vissunni um það, að þeir, sem á undan eru farnir, hafa unnið mikið viö „vistaskiftin“. Þannig mætti — að minsta kosti — mýkja sárasta söknuðinn, ef vér létum stjómast af
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Jólagjöfin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólagjöfin
https://timarit.is/publication/872

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.