Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2005, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
365 - prentmiðlar.
Útgefandi:
Gunnar Smári Egilsson.
Ritstjóri:
Mikael Torfason.
Fréttastjóri:
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550
5000. Fax: Auglýsingar: 515 7599.
Ritstjórn: 550 5020. Fréttaskot: 550
5090. Ritstjóm: ritstjorn@dv.is.
Auglýsingar: auglysingar@dv.is.
Setning og umbrot:
365 - prentmiðlar.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja.
Dreifing: Pósthúsið ehf.
dreifing@posthusid.is.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent
efni blaðsins í stafrænu formi og úr
gagnabönkum án endurgjalds.
Dr. Gunni heima og að heiman
BS
Ég skrapp tílKánarí um páskana
með fjölskyldunni eins og hún
leggur sig. Hafði aldrei farið
áður I pakkaferð á
sólarströnd og
nenni líklega
ekki aftur,
a.m.k. ekki til
Kanarí. Ekki
það að það
væri leiðin-
legt. Nei, nei,
það var myljandi sól
allan timann og ágætt að sleikja
hana og Is á sundlaugarbakkan-
um. Kanarí er þó sjoppulegt
pleis og heiladeyðandi að
hanga svona. Krádið samanstóð
af grilluðu liði sem spígsporaði
dökkbrúnt eins og hnakkar,
æðahnýttum ellilífeyrisþegum,
krúnurökuðum hommum og
hressu white trashi ftá úthverf-
um V-Evrópu. Ælur og hunda-
skftur á götum og drykkjulæti
þegar leið á kvöldið. Hér er ég
að tala um ástandið á aðalsvæð-
inu, Playa del Ingles.
iik
ind-
i skemmtilegra var s
bærínn Playa de Mog-
an með sinni
hreinlegu
snekkjuhöfn oq ’ 1
blómaangan. Á f
öllum matsölu-
stöðum var þó
sami matseðill-
inn, snitzel, hálfur
kjúklingur og franskar,
beikon og egg - smokkfiskur í
orlý-deigi fyrir þá kræfustu. Um
páskana voru hátt (þrjúþúsund
Islendingar á svæðinu. Alls stað-
ar mátti heyra íslensku. Trúba-
dorinn Bjami Tryggvason
skemmti á pöbb og margir veit-
ingastaðir buðu upp á (slenskan
matseðil. Þjónarnir kunnu Ifka
smá f málinu, nógu mikið til að
gleðja ferðalangana. .Stóran
bjór? Mamma borgart"
Margrét Blöndal í
framan Foto Harry, sem er
tækjasjoppa velþekkts
w Indverja sem legg-
ur mikið upp úr
viðskiptum við
(slendinga.
whb HH _ Hannflaggaði
&r islenskum fána,
^ ^ búöarfólki sem
kann hrafl í (slensku
og á stól fyrir utan var hátalari
sem útvarpaði páskadagskrá
Rásar tvö. Hálf súrrealfskt að
vera þama (hitanum, sjá (slend-
inga japla á spaghettfi og sötra
bjór og heyra Margréti Blöndal
kynna Papana. M(n niðurstaða
er sú að Kanari sé fyrir fólk sem
vill helst ekki fara neitt og
myndi aldrei yfirgefa (sland ef
hér væri svona 20 stiga hærrí
meðalhiti og hægt væri að fá
lítra af vodka á 500 kall.
„Með euileik hefur borgin telcið frumlcvœði, sem óhjálcvœmilega leiðir til aulc-
innar velferðar, til vinstri beygju í þjóðlíflnu í heild. Reylcjavík er svo stór og rílc,
að hún getur nánastgeflð forskriftað þróun nœstu ára.“
Borgin tekur af skarið
Gjaldfrjáls leikskóli í Reykjavík er
mesta stjórnmálafrétt vetrarins. í
einu vetfangi hefur kyrrstöðu í vel-
ferð verið hrundið og kúrsinn tekinn aftur
í átt til fyrirmyndarríkis Stóra bróður.
Stefnt er að gjaldfrjálsum leikskóla fyrir
alla aldursflokka undir skólaaldri í heilar
sjö stundir á dag.
Ráðamenn Reykjavíkur hafa vafalaust
áttað sig á, að fólk er ekki eins andvígt op-
inberum álögum og frjálshyggjumenn
hafa haldið fram. Kannanir leiða í ljós, að
meirihluti fólks er tilbúinn að leggja meira
af mörkum, ef tryggt er, að það leiði til
aukinnar velferðar, meiri félagslegrar
þjónustu.
Þetta stingur í stúf við stefnu ríkis-
stjórnar landsins, sem lengi hefur verið
við völd og fremur reynt að snúa málum
frá velferð til frjálshyggju, til dæmis með
því að selja opinber fyrirtæki. Enda hafa
ráðherrar brugðist ókvæða við ákvörðun
Reykjavíkur og fjármálaráðherra sleppti
sér á Alþingi.
Eðlilegt er, að menn séu ekki á eitt sáttir
um gjaldfrjálsan leikskóla í Reykjavík.
Önnur sveitarfélög verða knúin til að taka
afstöðu til frumkvæðis borgarinnar og
reyna að finna leiðir til að gera slíkt hið
sama til að missa ekki unga fólkið til
Reykjavíkur, sem verður að gósenlandi
foreldra.
Deilurnar um gjaldfrelsið magna klofn-
inginn í leifunum af Framsóknarflokkn-
um, sem í borgarstjórn styður það, en er á
móti því í ríkisstjórn. Það endurspeglar,
að í borgarstjórn er Framsókn enn miðju-
flokkur, en á landsvísu hefur hann rúllað
til hægri, í sumum tilvikum alveg út á
hægri kant.
Gott er að bera ákvörðun borgarstjórnar
saman við hugmynd einnar af spunakerl-
ingum forsætisráðherra, sem hefur það
helzt til fjölskylduverndar að leggja, að
börn verði klædd í skólabúninga, sem vin-
sælir voru áður fyrr í ríkjum fasista og í
mjög stéttskiptum ríkjum á borð við
gamla Bretland.
Hægri jaðarinn í flokknum, svo sem fé-
lagsmálaráðherra, þorir að vísu ekki að
lýsa beinni andstöðu við gjaldfrjálsan
leikskóla, en kvartar hins vegar um, að
hann sé einhliða ákvörðun, sem betra
hefði verið að hafa samráð um á lands-
grundvelli, milli sveitarfélaga og við ríkis-
stjórn.
Því er til að svara, að með samráði hefði
málinu verið drepið á dreif. Með einleik
hefur borgin tekið frumkvæði, sem óhjá-
kvæmilega leiðir til aukinnar velferðar, til
vinstri beygju í þjóðlífinu í heild. Reykja-
vík er svo stór og rík, að hún getur nánast
gefið forskrift að þróun næstu ára.
I reiði sinni hótar fjármálaráðherra
Sjálfstæðisflokksins að svíkja samkomu-
lag um fasteignagjöld af ríkishúsum. Hót-
anir eru vissulega í stíl flokksins, en þessi
hótun er marklaus.
Auðun Georg
Vandihanser
mikill.
lannanna það
þannig að annað
hvortyrðiAuðun
Georg þving-
aður beint á
fund með
varpsins.
BÚIST ER vió •
heitum degi í höf- *
uðstöðvum Rflds-
útvarpsins í Efsta-
Auðun Georg getur ekki
rekið frénameuninu
w. Jm
AUÐUN GE0RG Ólafsson stendur
frammi fyrir miklum vanda nú í dag
þegar hann tekur við starfi frétta-
Fyrst og fremst
stjóra Rfldsútvarpsins. Á fjölmenn-
um starfsmannafundi í Rfkisútvarp-
inu í gær var samþykkt vantraust á
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóra með 93,2 prósentum atkvæða.
AUlt vegna ráðningar Auðuns
Georgs.
i GÆR bjuggu fréttamenn Rflds-
útvarpsins sig undir að taka á móti
nýjum fréttastjóra með aðgerðaáætl-
un sem öll miðar að
því að gera honum
ókleift að sinna
nýju starfi sínu.
Orðaði einn frétta-
A STARFSMANNAFUNDINUM í gær
kom meðal annars fram að lykilmað-
urinn í ráðningu Auðuns Georgs
hefði verið Björn Ingi Hrafnsson, að-
stoðarmaður forsætisráðherra.
Mun Björn Ingi hafa lagt á ráðin
um ráðningu Auðuns Georgs í
marga mánuði og haft sitt fram.
VANDI NÝS fréttastjóra er ekki síst
sá að hann getur ekki rekið þá frétta-
menn sem setja sig upp á móti hon-
um og ráðið aðra til starfa. Frétta-
stjóri Ríkisútvarpsins fer ekki með
það vald sem þarf til uppsagna held-
ur er það sjálfur Markús örn Antons-
son útvarpsstjóri sem segir fólki upp
og þá í þessu tilviki eftir
tillögu og að ráðum
Boga Ágústssonar, d
yfirmanns frétta- M
Fortíðarþrá
Birgis ísleifs
Bir^ir ísleifur Gunnarsson
seðlabankastjóri sagði í Mogganum
í gær bankana hafa farið offari (
útlánum undanfarið. Hann er ekki
sáttur og segir Mogganum að bank-
amir séu ein af ástæöunum fyrir
þenslunni í samfélaginu. Þeir veiti
fólki fasteignalán og hækki yfír-
dráttarheimildir. Þetta er Birgir
ósáttur við og vill
að bankarnir axli
þá ábyrgð sem á
herðum þeirra hvll-
Birgir fsleifur Gunn-
arsson Kennir bönk-
unum um eyðslusemi
íslendinga.
Birgir er auð-
vitað bíim síns
tíma og hann
opinberaði það
einmitt í fyrra
þegar hann
bauð gömlum
bekkjarfélögum í parti ÍSeðlabank-
anum ikostnað skattgreiðenda. Nú
vill hann færa okkur enn lengra aft-
urí tímann ogsetja fslendinga aftur
íþi stöðu að þeirneyðist til að fara
spariklæddir til bankastjóra og
gritbiðja um fyrirgreiðslu í stað
þess að einstaklingamir sjilfir beri
ibyrgð i eyðsluseminni. Birgir ætti
að skamma okkur sem tökum öll
þessi lin oglita bankana vera. Það
er ekki þeim að kenna að við
fslendingar eyðum eins og svín.
sviðs
Ríkisut-
mannanna
leiti í dag.
fréttamönnum
stofhunarinnar
eða þá sagt að
hypja sig aftur
heim.
Markús Orn Situr
undir vantrausti.
Bjorn Ingi
Lagði á ráöin og
hafði sitt fram.
Hvað eiga ísland, Kixgisistan, írak, Nepal og
Erítrea sameiginlegt fyrir utan að vera neðarlega á
lista Aiþjóðaknattspymusambandsins? Jú, öll lönd-
in eru nefnd á forsíðu á heimasíðu Alþjóðablaða-
mannasambandsins þar sem talað er um mál sem
eru efst á baugi samtakanna um þessar mundir. í
Nepal er fjallað um kónga, byltingar og ritskoðun, í
frak um mannrán og í Kirgisistan er talað um að
málin séu að róast efdr byltinguna. Neðst á þessum
lista á heimasíðunni er svo ísland þar sem blaða-
mennimir alþjóðlegu lýsa yfir stuðningi við baráttu
íslenskra fréttamanna gegn pólitískum afskiptum.
Nepal Ritskoðun
eftir að kóngur
rændi völdum.
JC2 \
-ir < l
fsland Útvarps-
húsið logar útaf |
fréttastjóramáli.