Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2005, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005
Fréttir 0V
Lögregluþjónn
dæmdur
Aðalbergur Sveinsson,
lögreglumaður í Reykjavík,
var í gær dæmdur til
greiðslu sektar og skaða-
bóta fyrir að keyra í veg fyr-
ir mótorhjólamanninn Pál
Heiðar Halldórsson á lög-
reglubíl sínum þannig að
Páll klessti á og stórskaðað-
ist. „Þetta er auðvitað ekki
rétt. Hann flpaðist og datt.
Við það lenti hjólið á bíln-
um hjá okkur,“ sagði Aðal-
bergur þegar málið var
þingfest. Innra eftirlit lög-
reglunnar og Héraðsdómur
Reykjavíkur segja hann
hafa logið og sýnt af sér
stórkostíegt gáleysi. Atvikið
varð þegar Aðalbergur leit-
aði mótorhjólamanns sem
keyrði of hratt. Hann taldi
Pál vera réttan mann, en
ekki er ljóst að svo hafl ver-
ið.
Laug fyrir
félaga
Innra eftirlit lög-
reglunnar gagnrýnir
harðlega hvernig
Aðalbergur ók í
veg fyrir mótor-
hjólamanninn
og einnig
hvernig lög-
reglan vann
skýrslu um tnál-
ið. Aðalbergur
skrifaði skýrsl-
una sjálfur og lét
konuna Sigrúnu Jónasdótt-
ur skrifa undir hana heima
hjá sér. Sigrún upplýsti þó
að skýrsla sem gerð var af
atburðinum, og seinna
undirrituð af henni, hefði
ekki verið gerð samkvæmt
hennar bestu vitund. Einn-
ig fór Einar Guðberg Jóns-
son lögreglumaður með
rangt mál fyrir dómi, þegar
hann sagðist hafa séð Pál í
mótorhjólagalla á lögreglu-
stöðinni og þá séð að um
sama mann væri að ræða
og leitað var þegar Páll var
stöðvaður. En Páll hafði í
reynd skilið hann eftir á
slysadeild.
Starfar enn
Það mun koma í hlut
Ríkislögreglustjóra að
ákveða hvort Aðalbergur
lögregluþjónn verður rek-
inn, en hann hefur starfað
áfram þrátt fyrir
reglur þess efn-
is að lög-
reglumenn
sem brjóta af
sér í starfi
megi ekki starfa
áfram. „Eflögreglu-
menn brjóta gegn hegning-
arlögum er það ríkislög-
reglustjóra að taka ákvörð-
un um framtíð viðkomandi
starfsmanns," sagði Geir
Jón Þórisson, yfirlögreglu-
þjónn Lögreglunnar í
Reykjavík, í gær.
Friðrik Ottó Friðriksson kúgaði barnsmóður sína sem hafði kært hann fyrir hrotta-
lega misþyrmingu til að draga framburð sinn til baka. Þegar ljóst var að kúganir
Friðriks dygðu ekki til gekk hann í skrokk á henni í fimm tíma samfleytt. Friðrik
hefur nú verið dæmdur í tveggja ára fangelsi af héraðsdómi og bætist dómurinn
ofan á þriggja og hálfs árs dóm sem hann fékk i Hæstarétti fyrir fyrri árásina.
Kvennahrotti misþyrmdi konu í
fimm tíma fyrir aö kæra nauðgun
KKK í Grafarvogs-
kirkju
ívikunni
fyrir páska,
dymbilvik-
unni, var
boðið upp á
starf fyrir
krakka í
fyrsta bekk í
Grafarvogs-
kirkju. Starfið
gekk undir
nafninu KKK
eða Kátir
krakkar í kyrruviku. KKK er eins og
flestum er kunnugt líka nafn á
stærstu samtökum kynþáttahatara í
Bandaríkjunum, Ku Klux Klan. Lena
Rós Matthíasdóttir, prestur í Grafar-
vogskirkju, segir þetta vera algera
tilviljun þar sem starf Kátra krakka í
kyrruviku gæti ekki verið ólíkara
starfi Ku Klux Klan. „Þetta hefur nú
samt ekki vakið nein viðbrögð hjá
fólki, allavega ekki að okkur vit-
andi," segir Lena.
Friðrik Ottð Friðriksson hefur nú í annað skipti fengið þungan
dóm fyrir svívirðileg brot gegn barnsmóður sinni. Hann var í gær
dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar fyrir fimm tíma stanslaus-
ar barsmíðar á barnsmóðurinni og fyrir að neyða hana til að
draga til baka nauðgunarkæru sem hún hafði lagt fram á hend-
ur honum. Friðrik Ottó hefur áður verið dæmdur í þriggja og
hálfs árs fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu á
konunni. Barsmíðarnar í það skiptið stóðu yfir í sjö klukkutíma.
Friðrik Ottó Friðriksson hótaði
barnsmóður sinni upphaflega of-
beldi og meinaði henni útgöngu af
gistiheimili þar sem þau voru stödd í
því skyni að fá hana til draga til baka
nauðgunarkæru sem á þeim tíma
var til umfjöllunar í Hæstarétti.
Hann neyddi barnsmóður sína til að
skrifa undir yfiriýsingu sem verjandi
hans, Sveinn Andri Sveinsson, skrif-
aði að hans beiðni. í henni er fram-
burður barnsmóðurinnar um
hrottalega misþyrmingu dreginn til
baka. Barnsmóðirin gerði eins og
Friðrik fyrirskipaði af ótta við frekari
misþyrmingar af hendi Friðriks og
var yfirlýsingin sem Sveinn Andri
skrifaði lögð fyrir Hæstarétt í því
skyni að sækja sýknu Friðriks.
Yfirlýsingin hélt ekki í Hæsta-
rétti
Upp kom ágreiningur um yfir-
lýsinguna í Hæstarétti og svo vildu
dómarar ekki taka hana gilda,
vegna þess að hún hefði verið
undirrituð vegna hótana. Þrátt fyrir
að konan hefði undirritað falska
vilja Friðriks beindi
hann reiði sinni að
henni á ný.
yfirlýsingu eftir vilja Friðriks beindi
hann reiði sinni að henni á ný. Sex
dögum áður en dómurinn féll í
Hæstarétti í september síðastliðn-
um réðst hann aftur að barnsmóð-
ur sinni þar sem þau voru stödd á
heimili hans. Barsmíðarnar stóðu
yfir í fimm tíma í þetta skiptið, frá
10 að kvöldi og fram eftir nóttu.
Læknar vitnuðu um mikla
áverka í andliti konunnar. Arásin
var einnig rakin til óánægju Friðriks
með yfirlýsinguna sem hann fékk
barnsmóður sína til að undirrita.
Hann var sérstaklega ósáttur við
nýja yfirlýsingu sem ríksvaldið lagði
fram, þar sem fram kom að fýrri
yfirlýsingin hefði verið fengin með
hótunum um ofbeldi. Hótun sem
bæri að taka alvarlega í ljósi fýrri
brota Friðriks gegn henni.
Áður misþyrmt í sjö tíma
Málið sem Friðrik reyndi að fá
dregið til baka með hótunum en var
dæmdur fyrir í Hæstaréttí var sér-
staklega hrottalegt. Lögreglan var
kvödd að heimili Friðriks vegna
kvartana um hávaða og átök en
hann hafði þá um nokkurt skeið
misþýrmt barnsmóður sinni líkam-
lega og kynferðislega. Þegar lögregl-
una bar að garði læsti Friðrik kon-
una inni í herbergi og fyrirskpaði
henni að öskra ekki eftír hjálp.
Þegar henni tókst loks að flýja úr
íbúðinni elti Friðrik hana uppi, kom
í veg fyrir að hún hringdi á lögregl-
una og dró hana aftur á hárinu inn í
íbúðina þar sem hann nauðgaði
henni á ný. Alls stóðu þessar mis-
þyrmingar Friðriks á barnsmóður
hans yfir í sjö tíma.
andri@dv.is
Sögulegar sættir við Lækjargötu
Fischer teflir við bandaríska
Bobby Fischer Teflir
loks eftir langt hlé
málstaö slnum til
framdráttar.
Jlífínu liggur mér ekki mikið á en akkúrat núna þarfég reyndar að komast út úr húsij
segir Úlfur Grönvold, leikmyndahönnuðurhjá Sjónvarpinu.„Má samt ekki segja hvert því
frúin er að hlusta. Og helst þyrfti ég að komast úr símanum sem fyrst þvi annars gæti allt
farið í voða."
sendiherrann
hlöðustíg girt af. Landssamband ís-
lenskra skáta mun sjá um öryggis-
gæslu að kröfu Fischers en hann var
sjálfur virkur í skátahreyfingunni í
æsku og lærði reyndar að tefla í úti-
legu í Wisconsin.
Það sama gildir
um James Gad-
sen. Hann var
einnig skáti í
æsku.
IFriðrik Ottó Friðriks
son Áralangri kúgun
hans á barnsmóöur
sinni ernú lokið.
Tekist hefur samkomulag á milli
bandarískra stjórnvalda og íslenskra
frelsissamtaka Bobbys Fischer að
skákmeistarinn tefli við James Gad-
sen, sendiherra Bandaríkjanna hér á
landi, á útitaflinu við Lækjargötu. Er
skákin liður í sáttaumleitunum sem
fram hafa farið á milli íslenskra
stjórnvalda og bandarískra vegna
aðgerða íslendinga í málefnum
Fischers.
Sendiherra Bandaríkjanna hér á
landi er þrautreyndur skákmaður
og var á yngri árum vel þekktur
í flestum fylkjum Bandaríkj-
Hvað liggur á?
anna vegna skákkunnáttu sinnar.
Opnaði skákin honum leið inn í
bandarísk stjórnmál sem fleyttu
honum alla leið í sendiherraemb-
ætti á íslandi. James Gad-
sen er svertingi og fyrsti
blökkumaðurinn sem
náð hefur skákmeist-
aratitíi í Louisiana
sem er heimafylki
hans.
Skák Fischers og Gad-
sens hefst klukkan 14.00
og verður svæð-
James Gadsen Slyngurskák-
maður t sendiherraembætti.
ið frá Banka-
stræti og að Bók-