Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2005, Qupperneq 10
10 FÖSTUDACUR 7. APRÍL 2005
Fréttir DV
Kostir ó?"€Wllar
Edda Björgvinsdóttir er afar
hæfileikarík kona. Hún hefur líka
ótakmarkaðan húmorsem fellur
öllum í geð. Hún er endalaust að
gefa afséroghefur mikinn
metnað. Hún erleysir vandamál
frekaren að búa þau til.
Edda er mjög ofvirk, þarf
alltafað vera að og getur það
verið galli undir sumum kring-
umstæðum. Smekkur hennar
á húsgögnum þykir ekki öllum
upp á marga fiska. Hún treyst-
ir fólki skilyrðislaust sem getur
snúist upp i galla.
pr-
„Edda er gædd mikilli
hæfni til þess að leysa
vandamál í staðinn fyrir
að búaþau til, hún útdeilir
kmsrmnr&vmdmötmr.—
Hún er mjög glaðsinna,
enda þótthúnsé skaprik. Eddu
skortir þetta sjálfmiðaða element
sem flestir I sviðsljósinu hafa f ein-
hverju mæli sem þýðir að hún er
minna þar en aðrir en þegar hún
kemur fram skín stjarna hennar
skært. Hún hleypir fólki nálægt sér
og treystirþvi fullkomlega en um
leið og einhver bregst trausti henn-
ar byggir hún upp vegg gagnvart
þeim hinn sama."
Gisli RúnarJónsson, leikari og leikstjóri
TEddavarnatiufulega
goðið mitt áður en ég fór
að vinna með henni en
hún stóðst undir öllum þvi
sem ég bjóst við og rúm-
lega það. Hún er gefandi og hlý og
mesti húmoristi sem ég þekki. Hún
erí rauninni skemmtileg allan sól-
arhringinn og eitt hæfileikabúnt.
Hún er mikil hugsjónarmanneskja
og ótrúlega metnaðarfull.Hún
þarfalltafaö vera að, sem getur
orðið qalli, oa hún hefur skrltinn
smekk á húsgögnum."
Unnur Ösp Stefánsdáttir; leikkona
„Mamma erstanslaustjá-
kvæð og hæfileikarík. Hún
er mikill gleðigjafí, ekki
bara í leikhúsinu heidur
líka heima fyrir. Hún er
óeigingjörn, bæði sem mamma og
amma. Efhún hefur einhverja
galla veit ég ekki afþeim því þeir
hafa engin áhrifá mig."
Björgvin Franz Gislason, leikari
Edda Björgvinsdóttir fæddistþann 13. septem-
ber árið 1952. Hún lauk stúdentsprófí frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1972 og
útskrifaðist frá Leiklistarskóla Islands árið
1978. Edda hefur starfað sem leikari, leikstjóri
og höfundur við fjölmörg leikhús m.a. Þjóðleik-
húsið, Borgarleikhúsið, Leikfélag Islands og Al-
þýðuleikhúsið. Hún er um þessar mundir að
leika í Alveg brilljant skilnaði I Borgarleikhús-
inu.
Hrossagaukur
á heiði
Lóan er komin. Og ekki
bara lóan heldur hrossagauk-
urinn líka. Þetta staðfestir
Sigmar Þór Ingason sjómað-
ur sem býr upp á Krókártjöm
við Mosfellsheiðina. Hann
segir um tvo daga síðan hann
sá fyrsta hrossagaukinn sem
hafi komið á svipuðum tíma
og lóan. „Hann syngur svaka-
lega vel þegar fer að skyggja á
kvöldin," segir Sigmar sem
hefur hlustað agndofa á söng
hrossagauksins með félaga
sínum upp á heiði. Þeir em
sammála um að nú sér vorið
opinberlega komið til að
vera.
Bergþóra Guðmundsdóttir er vistuð í einangrunarklefa á Litla-Hrauni. Hún hittir
þar fyrir eiginmann sinn, Hákon Rúnar Jónsson, sem afplánar tuttugu og tveggja
mánaða dóm fyrir vopnuð rán. Bergþóra og Hákon reyndu að skilja fyrir nokkrum
árum en íhuga nú að sækja um sameiginlegan klefa eða klefa nálægt hvort öðru.
Fangelsismálastjóri hefur engin svör við þessari hugmynd hjónanna.
Hjón ó Hrnuninu valda fang-
elsismálastjóra heilabrotum
Fyrsta konan sem vistuð er á Litla-Hrauni hitti fyrir eiginmann
sinn sem afplánar dóm fyrir vopnuð rán. Bergþóra dvelur í ein-
angrunarklefa en eiginmaður hennar Hákon Rúnar er í húsi
fjögur. Þau íhuga að sækja um sameiginlegan klefa eða klefa
nálægt hvort öðru. Fangelsismálastjóri veit ekki hvernig taka eigi
á þessu máli.
„Ég bara veit það ekki. Það hefur
nú aldrei verið gert áður þannig að
ég hef engin svör," segir Valtýr Sig-
urðsson fangelsismálastjóri að-
spurður um hvort möguleiki sé að
vista hjón saman á Litla-Hrauni.
Bergþóra eða Ísafjarðar-Begga, eins
og hún er oft kölluð, giftist Hákoni
Rúnari fyrir nokkrum árum en upp
úr slitnaði fljótlega. Þau sóttu um
skilnað en það dróst eitthvað og því
eru þau lagalega séð ennþá gift.
Hákon afplánar tuttugu og tveggja
mánaða dóm fyrir að rjúfa skilorð og
er í húsi fjögur á Hrauninu. Berg-
þóra segir þau Hákon vera fína vini í
dag. „Ég hitti hann úti áðan og við
ræddum um að sækja um sameigin-
legan klefa eða hvort við gætum ver-
ið nálægt hvort öðru, það er aldrei
að vita hvað við gerum," sagði Berg-
þóra í DV í gær.
Valtýr Sigurðsson Fangelsismálastjóri hefur
engin svör við vistun hjónanna á hrauninu.
„Ég hitti hann úti
áöan og við ræddum
um að sækja um sam-
eiginlegan klefa eða
hvort við gætum verið
nálægt hvort öðru,
það er aldrei að vita
hvað við gerum
Langur sakaferill
Hákon Rúnar Jónsson er fimmt-
án árum yngri en Bergþóra og á
langan sakaferil að baki. Árið 1999
var hann dæmdur í fimm ára fang-
elsi fyrir fjögur vopnuð rán. Meðal
annars rændi hann verslun 11-11
við Norðurbrún vopnaður hnífi viku
eftir að hann slapp út úr Hegningar-
húsinu við Skólavörðustíg eftir að
hafa lokið 2/3 hluta afplánunar á
þriggja ára og sex mánaða fangelsis-
dómi ffá því f nóvember 1996. Hann
hafði afplánað stærstan hluta þess
dóms á Litla-Hrauni. Síðustu mán-
uðina var honum hins vegar gefinn
kostur á reynslulausn og var vistað-
ur í Hegningarhúsinu vegna tíðra
heimsókna hans til ýmissa geðheil-
brigðisaðila á höfuðborgarsvæðinu.
Kynntust á Sogni
í DV árið 1999 var fjallað um
sakaferil Hákons og sagði Erlendur
Baldursson, afbrotafræðingur hjá
Fangelsismálastofhun, þá að vonir
manna stæðu til þess að Hákon yrði
dæmdur til afplánunar á heil- „
Hákon Rúnar Jónsson Af-
plánar dóma á Litia-Hrauni
og er giftur Bergþóru.
brigðisstofnun, helst á Sogni.
Þangað fór Hákon og þar kynnt-
ist hann Bergþóru. Þau giftu
sig svo nokkru síðar
en sambandið var
ekki langlíft eins
og fyrr segir. /
breki@dv.is
Bergþóra Guð-
mundsdóttir Fyrsti
konan á hrauninu og
hitti eiginmann sinn.
Móðir fíkniefnaneytanda fær von
Margrét Frímanns hjálp-
ar systur Kalla Bjarna
„Núna er allt að
gerast og það er verið
að undirbúa nauð-
ungavistarpappíra
sem ég þarf að skrifa
undir til þess að hægt
verði að hjálpa Fjólu,"
segir Sveinbjörg Karls-
dóttir sem hefur barist
fyrir því undanfarin ár
að dóttir hennar,
Fjóla, sem er illa á sig
komin af fíkniefna-
neyslu fái viðeigandi
hjálp. „Ég veit ekkert
hvar hún er núna, líklega í dópbæli
einhvers staðar. Hún hringdi í mig í
fyrradag til þess að biðja um pening
og það er það eina sem ég hef heyrt
frá henni frá því hún strauk fyrir
tæpum mánuði," segir hún.
í fyrsta sinn í mörg ár sér Svein-
björg fyrir að eitthvað
róttækt verði aðhafst.
„Ég fékk aldrei nein
svör þannig að ég fékk
ábendingu um að leita
til Margrétar Frí-
mannsdóttur og núna
loksins sé ég glætu því
Margrét tók þessu vel
og gel± strax í
málið," segir
Sveinbjörg. Hún
ber Margréti
góða söguna og
þakkar fyrir skjót
viðbrögð.
„Það er bara
ansi hart að það sé ekki nóg að leita
til geðstofnana til að fá hjálp. Mig
hryllir við þeirri tilhugsun hversu
margir í viðbót þurfa að deyja til að
kerfiðverðibætt."
Sveinbjörg ásamt
mynd af Fjólu Svein-
björg hefur óttast það I
mörg ár að einn daginn
fái hún fregnirað þvlað
dóttir hennar sé látin.
Bobby Fischer Verður ekki dæmdur af ís-
lenskum dómstólum efhann verður fundinn
um skattsvik í Bandaríkjunum.
Indriði H. Þorláksson Ríkisskattstjórisegir
embættið ekki hafa kannað skattamál stór-
meistarans sérstaklega.
Meint skattsvik Bobby Fischer
Ekki dæmdurhérá landi
Mikið hefur verið rætt um meint
skattsvik Bobby Fischer í Bandaríkj-
unum. Margir hafa velt því fyrir sér
hvort hinn nýji íslendingur verði
dæmdur hér á landi ef hann verður
fundinn sekur. „Það er alveg úti-
lokað. Ef hann hefur framið skatt-
svik í Bandaríkjunum þá er það brot
á bandarískum lögum og íslenskir
dómstólar hafa ekkert um það að
segja," segir Indriði H. Þorláksson
rfldsskattstjóri. Aðspurður um hvort
embættið hafi sérstaklega athugað
skattamál Fischers segir Indriði:
„Hann er bara eins og hver annar
maður sem sest að hér á landi, ég
kannast ekki við að hann sé einhver
skattsvikari."
Indriði segir að þar sem Fischer
sé nýkominn til landsins sé hann
ekki skattskyldur hér nema hann afli
sér einhverra tekna. „Þegar tíminn
líður og hann hefur verið hér í hálft
ár verður hann skattskyldur eins og
hver annar íslendingur," segir Ind-
riði að lokum.