Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2005, Qupperneq 11
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2005 1 7
Demantarúr
dauðu fólki
Bandaríska fyrir-
tækið LifeGem
stefnir að þw' að hefja ‘|T f
framleiðslu á demönt- i f
um í Skandinavíu og er
hráefhið í þá aska lát- ''itm
ins fólks. Fyrirtækið,
sem vill hefja framleiðslu
á skandinavískum demönt-
um síðar á árinu, sérhæflr
sig í gerð slíkra demanta úr
ösku manna og dýra. Ferlið
tekur um fjóra mánuði og
kostar demanturinn frá
230.000 krónum upp í 1,4
milljónir, allt eftir fjölda
karata. Viðskiptavinir eru yf-
irleitt konur sem hafa misst
mann eða gæludýr og vilja
ganga með ást sfna á sér.
Lýtaaðgerðtil
aðgreiningar
Eineggja tvíburasystur í
Taívan tóku ákvörðun um
að önnur færi í lýtaaðgerð
svo fólk fari að þekkja þá í
sundur. Systurnar sem eru
22 ára voru orðnar þreyttar
á því að jafnvel fjölskylda og
vinir gátu engan veginn sagt
hvor var hvor. Þær höfðu
jafnvel reynt að klæðast
mismunandi og ganga með
sína hárgreiðsluna hvor en
ekkert gekk. Læknar fr am-
kvæmdu aðgerðina fyrir
stuttu. Nef og haka annarrar
systurinnar voru lagfærð.
Þær munu vera ánægðar
með árangurinn.
Líkfundur í Stokkhólmi vekur óhug.
Sundurbútað lík í svörtum ruslapoka lá
á ís í miðbænum. Fannst á sama stað og
annað illa útleikið lík fyrir sjö árum.
Annað slíkt mál sem kemur upp á
Norðurlöndunum á örfáum dögum.
Gangandi vegfarandi í miðborg Stokkhölms fann í fyrradag
svartan plastpoka sem hafði að geyma sundurbútaðar líkams-
leifar miðaldra konu.
Flengingar
auðga andann
Rússneskir vísindamenn
telja sig vera búna finna full-
komna leið til að lækna allt
frá þunglyndi til
alkóhólisma.
Lækning leynist í
gömlum og góð-
um flengingum
með staf. Vís-
indamennimir segja að
flengingar leysi endorfín,
gleðiefni líkamans, úr læð-
ingi. Endorfín leiðir til ham-
ingjutilfinninga, minni mat-
arlystar, losun kynhormóna
og styrkingu ónæmiskerfis-
ins. Einnig virkar þau svipað
og morfín, án þess að vera
fíknivaldandi. Stöðluð með-
ferð er 30 tímar hjá lækni
þar sem 60 vel útilátin högg
eru gefin. Slík meðferð kost-
ar tæpar 7000 krónur í Rúss-
landi.
í-áig styckad pá
isen
moHorru,
DÍtttxes
Ekki allur Aðeins hluti
líksins var í pokanum sem
fannst í miðbæ Stokk-
hólms á miðvikudaginn.
pnv«Personer r
sjog larm om sacken I
med kroppsdelame
posítiu
í fréttum var sagt frá því að pok-
inn hefði legið á ís undir Central-
broen í miðbæ Stokkhólms. Vegfar-
andinn, Simon Hammer, sem
hringdi í lögregluna er sagður hafa
ýtt við pokanum með priki. Við það
féll eitthvað úr pokan-
um sem Simon var ekki viss um að
væri hönd eða fótur og útistandandi
bein. Hann hringdi um leið í lög-
regluna.
Nýlega gerst
Talsmaður lögreglunnar í Stokk-
hólmi sagði
að l£k
konu á
milli 50
og 60 ára
hefði verið
pokanum.
Talað var
um að líkið
hefði
vantað
búk. Ekki
var tekið
Terri Schiavo
látin
Terri Schiavo, sem legið
hefur í dái síðustu fimmtán
árin, lést í gær. Hún hafði
verið án næringar í tvær
vikur, þegar næringarslanga
hennar var tekin úr sam-
bandi. Foreldrar Terri gerðu
í gær seinustu tilraunina til
að fá dóttur sína tengda aft-
ur en hæstiréttur Bandaríkj-
anna hafiiaði beiðni þeirra.
Foreldrar Terri hafa barist
fyrir lífi dóttur sinnar á
meðan eiginmaður hennar
segir það hafa verið hennar
vilja að fá að deyja í friði.
Málið hefúr flækst á milli
dómstóla, auk þess sem
bandarísk stjómvöld höfðu
afskipti af málinu.
Kaupmannahafnarlögregla lýsir eftir
grunuðum
Öskur heyrðust frá
íbúðinni
Ibúi í byggingunni við Adelgade
sem talið er að leigubílstjórinn
Torben Vagn Knudsen hafi verið
myrtur í segist hafa orðið var við
slagsmál og heyrt öskur í eftirmið-
degi föstudagsins langa. Síðast sást til
Torben hringja dyrabjöllunni á bygg-
ingunni og vera hleypt inn rétt áður.
Kaupmannahafharlögreglan lýsir
nú eftir tveim mönnum og einni
konu sem tengjast íbúðinni sem talið
er að Torben hafi verið myrtur í. Um-
merki í íbúðinni bentu til þess að ný-
verið hefði hún verið þrifin hátt og
lágt. Vitni segja líka að einn íbúa
íbúðarinnar hafi sést í sjoppu í
grenndinni að kaupa þrjá Ktra af klór.
Lögreglan segir þau þrjú sem
Málið að leysast? Nýbúið er að þrífa íbúð-
ina, sem talið erað Torben hafi verið myrtur
I, hátt og lágt.
eftirlýst em liggja undir grun um
morðið á Torben. Hún vill þó ekki
gefa upp nöfn þeirra né þjóðemi.
Síðast sást til Torben með ensku-
mælandi manni og manni af asískum
uppruna sem talaði dönsku. Búið er
að yfirheyra fjölda fólks en enginn
hefur verið handtekinn.
Athygli vekur að stað-
urinn þar sem pokinn
fannst er aðeins um
100 metra frá stað
þar sem annað sund-
urhlutað lík fannst
fyrir sjö árum síðan
fram hvort höfuðið hefði verið með.
Lögregla sagði einnig greinilegt að
konunni, eða líki hennar, hafi verið
misþyrmt illa áður en hún var bútuð
niður.
Búið var að ganga frá pokanum
með fjölmörgum vafningum af silf-
urgráu þykku límbandi. Lögreglan
hóf þegar leit á svæðum í kring. Ekki
var sagt frá því í fréttum í gær hvaða
lfkamshlutar hafi verið í pokanum.
Lögreglan telur að ekki geti verið
langt síðan að pokanum hafi verið
fleygt undir brúna þar sem mikil
umferð fólks sé á þessum slóðum.
Búið er að skera úr um að um karl-
mann er að ræða en ekkert er vitað
um hver hann er. Plastpokinn
fannst nálægt lúxushótelinu Hilton.
Mikil umferð er á svæðinu og vonast
lögreglan til að einhver vitni gefi sig
fram vegna málsins.
Að sögn lögreglunnar er nú verið
að leita vísbendinga á límbandinu
sem notað var til að hefta pokann
saman. Bæði er verið að leita eftir
fingraförum utan á límbandinu,
sem og efnisbútum úr bíl sem límst
gætu hafa á límbandið þegar pok-
inn var fluttur á losunarstaðinn.
Ekki í fyrsta skipti
Athygli vekur að staðurinn þar
sem pokinn fannst er aðeins um 100
metra frá stað þar sem annað sund-
urhlutað lfk fannst fyrir sjö árum
síðan. Þar var um 81 árs karlmann
að ræða. Við rannsókn málsins kom
í ljós að 46 ára eiginkona hans hafði
drepið hann og sagað hann niður
áður en hún henti honum. Eigin-
konan reyndist fyrsti morðingi Sví-
þjóðar á síðari tímum sem sagaði
niður fórnarlambið sitt.
Fundurinn á miðvikudag er
annar líkfundurinn á Norðurlönd-
um á innan við viku þar sem líkið
var niðurhlutað. Um páskahelgina
fannst niðursagað lík leigubílstjóra í
miðbæ Kaupmannahafnar og er
rannsókn þess máls í fullum gangi.
Skólamorðinginn i Red Lake í Banda-
ríkjunum
Gerði teiknimynd um skotárás
Jeff Weise, sem í síð-
ustu viku myrti níu
manns á verndarsvæði
indjána, Red Lake í
Minnesota, var haldinn
þráhyggju gagnvart
ofbeldi.
í október á síðasta ári
setti hann teiknimynd á
netið þar sem sjá má
mann ganga um að
skjóta fólk, sprengja upp
lögreglubíl og að lokum
skjóta sjálfan sig í haus-
inn. Þá er rúmur mán-
uður síðan teiknimynd
eftir Weise var sýnd í
bekknum hans þar sem
beinagrind spilaði á gítar
við orðin: „Marserið við dauða-
sönginn þar stígvélin ykkar fyllast af
blóði." Weise aðhylltist einnig boð-
Fórnarlömb syrgð Móðir
Dwayne Lewis, eins þeirra
sem JeffWeise myrti, held-
ur hér á mynd afsyni sin-
um við minningarathöfn.
skap nasista og var
virkur inn á spjallsíðu
sem haldið er úti af
nýnasistahreyfmgu. Þar
kallaði Weize sig m.a.
„todesengel", eða Engill
dauðans.
Weise varð fyrir ýms-
um áföllum um ævina.
Pabbi hans ffarndi sjálfs-
morð fyrir fjórum árum
og mamma hans liggur á
hjúkrunarheimili eftir
bílslys. Þá hafa skóla-
félagar sagt að hann hafi
verið lagður í eineltí í
skólanum.
Einn drengur annar
hefur verið handtekinn
vegna morðanna. Sá er
sonur höfðingja ættbáiks á verndar-
svæðinu.