Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2005, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005
DV Neytendur
• Bræðumir Ormsson er með til-
boð á digital ljósmyndavél,
Olympus C-5000. Kostar nú 29.900,
var á 69.900, sparnaður er 40.000.
Gildir til 5. aprfl.
• TREK reiðhjól 4100
herra/dömu, 24 gíra, er
á 29.900 í Eminum.
Var á 39.900 sem gerir
25% afslátt. Gildir til
25. aprfl.
• Sturta.is er með tilboð
á aflöngu nuddbaðkari,
stærð 153x83x73. Verð nú
119.000, áður 220.000.
Sparnaður er því
101.000. Gildir til
. maí.
• Til 28. aprfl býður Raf-
sól upp á ókeypis skoð-
un og úttekt á raflögn-
um. Verð áður 16.500.
• Spar í Kópavogi er með
Úrvals-lambalæri úr kjöt-
borði á 866 krónur kflóið
en var áður 1.197 krónur.
Gildir til 22.
aprfl.
53
• Úr að ofan er með i
tilboð á Diesel-
dömuúri. Verð núna
er 10.400, var 13.600.
Gildir til 12. aprfl. >,
Ódýrasta bensínið
Verð miðast við 95 okt. í sjálfsafgreiðslu
Höfuðborgarsvæöiö
Borið hefur á því að 38 tommuTrXus jeppadekk hafa hvellsprungið, ökumönnum
til mikils ama svo ekki sé talað um hættuna sem getur stafað af því. Sigurður
Ævarsson hjá Gúmmívinnustofunni segir þá hafa hætt að selja dekkin vegna þessa
en þeir sjá ekki ástæðu til þess að kalla dekkin inn þar sem erlendir framleiðendur
dekkjanna kannast ekki við vandamálið.
„Það er ansi hart að
þurfa að bíða eftir
banaslysi til að þessi
dekk verði kölluð inn."
í umíerð
rlaga viú oliúlegasta aústæúaa
u.i 4l Shell Gylfaflöt/
Bústaðavegi/Birkim
Skógarhllð
98,30 kr.
Landsbyggðin
Dekk af gerðinni TrXus, 38 tommur, hafa verið að hvellspringa
undir jeppum nokkurra einstaklinga sem fjárfest hafa í þeim.
Skýringar á þessu virðast óljósar og segja menn ýmist að notk-
unin á þeim sé röng eða að um hönnunargalla sé að ræða. Fram-
leiðendurnir í Bandaríkjunum kannast hins vegar ekki við að um
galla sé að ræða en þrátt fyrir það hefur Gúmmívinnustofan
hætt sölu þessara tilteknu dekkja.
ÍS™1>
Sigurður Ævarsson hjá Gúmmí-
vinnustofunni kannaðist við þetta
vandamál en þó nokkuð hefur verið
um að jeppaeigendur skili þessum
dekkjum. „Við hættum að selja 38
tommu TrXus en erum ennþá með 44
tommurnar enda hefur ekki verið
kvartað undan þeim," segir Sigurður
en hann telur þó aðeins brot af seld-
um dekkjum hafa skilað sér til baka.
Framleiðendurnir viðurkenna
ekki vandann
Sigurður segir þá reyna að bæta
tjón bfleigenda eftir fremsta megni en
framleiðendur dekkjanna erlend-is
vilja ekki kannast við að það sé fram-
leiðslugaili sem valdi vandanum.
„Ýmsu hefur verið fleygt fram sem
skýringu á þessu. Til dæmis hefur
ásetningu verið kennt um sem og of
breiðum felgum."
Röng notkun veldur
„Ef þessi dekk væru raunverulega
gölluð væri framleiðandinn í Banda-
rikjunum örugglega búinn að kalla
þau inn. Ef okkar tilfinning væri sú að
þessi dekk væru gölluð værum við
löngu búnir að kalla þau inn," segir
Ásgrímur Stefán Reisen-
hus, yfirmaður á verk-
stæðinu hjá Gúmmí-
vinnustofúnni."
„Það er alveg ljóst að
ástæðan er notkun
manna á dekkjunum en
ekki einhver ffarn-
leiðslugalli sem veldur
þessu," tekur Ásgrímur
fram og segir jeppa-
menn vita af þessu og
að þetta sé ekkert eins-
dæmi. „Það hafa komið
upp álíka vandamál í gegnum árin
með álíka dekk frá hinum ýmsu fram-
leiðendum."
Hekla vildi ekki dekkin
Hinrik Laxdal hjá Heklu segist hafa
heyrt af þessu vandamáli en þeir eru
ekki með þessa tegund dekkja til sölu.
„Við fluttum inn nokkur svona dekk
fýrir nokkrum árum en Gúmmí-
vinnustofan keypti þau af okkur, við
höfum aldrei haft þau til sölu enda
kærum við okkur ekki um að hafa
gallaða vöru til sölu. Vandamálið
virðist vera að þau þola ekki
úrhleypingu," segir Hinrik.
Sex til átta mál og slys á fólki
Haft var samband við tryggingafé-
lag sem annast hefur mál fólks sem
hefúr lent í þessum hrakförum. Þau
svör fengust þar að 6 - 8 mál hafi
borist inn á borð til þeirra varðandi
þessi tilteknu dekk og slys hafi orðið á
fólki. Talsmaður tryggingafélagsins
segir að þessi dekk séu vinsæl vegna
þess að gott sé að keyra á þeim á mal-
biki og em mjög hljóðlát og jeppakall-
TrXus dekk Á myndunum
sésr hvernig dekkin fara, þau
springa að innan, að þvi er
virðist öll á sama hátt.
ar sækjast í þau þar sem þau eru góð í
fjallaferðum.
Bíða eftir banaslysi
„Hins vegar eiga þau það til að
hvellspringa, yfirleitt að ff aman. Þetta
býður hættunni heim og það hafa
orðið slys á fólki við þessi atvik, sem
betur fer ekki banaslys. Það er ansi
hart að þurfa að bíða eftir banaslysi til
að þessi dekk verði kölluð inn," segir
talsmaðurinn. Hann segir þetta yfir-
leitt hafa komið fýrir bfla sem séu fok-
dýrir, sá síðasti sem fór svona var
metinn á tæpar sjö milljónir.
krb@dv.is
tj@dv.is
Álfabikarinn hefur hægt og bítandi verið að festast í sessi hjá íslensku kvenfólki
Bikar fyrir tíðarblóð er frábær fjárfesting
Álfabikarinn er tól sem konur eru
famar að nýta sér í sívaxandi mæli.
Hann er til þess gerður að taka við
tíðablóði þegar konur eru á blæðing-
um. Hann er gerður úr náttúrulegu
gúmmfi og allar kynþroska konur
eiga aö geta notað hann. Álfabikarinn
er margnota og er mið-að við að
hann nýtist í 10 ár. Hann fæst í tveim-
ur stærðum, A fyrir þær sem alið hafa
bam gegnum fæðingarveg og B fyrir
þær sem ekki eiga böm eða hafa átt
bam með keisaraskurði. Álfabikarinn
fæst á alfabikar.is og í versluninni
Móðurást Dalbrekku 28 í Kópavogi á
aðeins 5.400 krónur. Hann er góður
kostur fýrir þær sem þjást af ofiiæmi
undan dömubindum eða em með
viðkvæma slfinhúð.
Ef keypt em dömubindi í 10 ár,
miðað við blæðingar einu sinni f
mánuði og einn pakka af dömubind-
um hverjar tíðir sem kostar 350 krón-
ur á meðalveröi má ætla að kostnaö-
urinn sé 42.000 á 10 árum þannig að
kostnaður viö dömubindi er töluvert
mikið hærri en verð álfabikarsins.
Bikar þessi ekki einungis kær-
kominn fýrir budduna því notkun
hans er ákaflega vistvæn ef tekið er
inn í dæmið öll notuöu dömu-
bindin sem enda í sjónum eða á
sorphaugunum. Mörg kfló af
notuöum dömubindum og -
töppum sparast frá hverri konu
sem notfærir sér þennan
galdragrip. Það er ekki að ástæðu-
lausu sem hann heitir Álfabikarinn.
krbtgidv.is
tj@dv.is
Álfabikarinn Gripurinn
nýtur vaxandi vinsælda
meðal kvenna enda vist-
vænn og sparar peninga.