Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2005, Síða 17
DV Neytendur
Námskeið hjá hundum.is
Vefsetrið hundar.is stendur fyrir
námskeiði fyrstu tvær helgarnar í
apríl, hið fyrra hefst á morgun í Mos-
fellsbæ og næstu helgi verður það
haldið á Akureyri. Námskeiðshaldari
er Englendingurinn Sally Hopkins og
mun á námskeiðinu kenna aðferðina
Hundaleikir (The Dog Games) og
hvernig hægt er að kenna hundum
eftir leiðum sem minnka stress hjá
þeim. Sjálf keppir hún í hundafimi
þar sem hún styðst við þessar aðferð-
ir við þjálfun eigin hunda. Hunda-
leikirnir eru átta talsins og byggðir
upp með það í huga að styrkja sam-
band hunds og eiganda hans, nokkuð
sem nýúst í hinu daglega lífi. Þeir
byggja upp einbeitingu hunda,
minnka stress og er góður undirbún-
ingur fyrir hundafimi.
Hinn almenni íslendingur sækir i siauknum mæli þjónustu
innanhússarkitekta. Slík þjónusta er ekki bara fyrir moldrík
fyrirtæki og fræga fólkið. Eitthvert vinsælasta sjónvarpsefnið
í dag eru þættir sem að stærstum hluta ganga út á þá tísku
að hanna heimilið að innan, enda þykir það mjög eftirsóknar-
vert að eiga flott heimili. Ásta Sigríður Ólafsdóttir hefur
starfað sem innanhússarkitekt í meira en áratug.
gögn og eru margir húsgagnafram-
leiðendur sem smíða eftir slíkum
teikningum og hönnun. Þá geta
þeir einnig verið viðskiptavininum
innan handar hvað varðar val á
keyptum húsgögnum.
„Maður er auðvitað búinn að
kynna sér markaðinn vel og gengur
að ýmsu sem vísu. Annars er líka
mikið pantað að utan, bæði á net-
inu og beint frá erlendum miðlum.
Það er alltaf að aukast. Annars fylgj-
umst við mjög vel með, sem og
verslanir og framleiðendur, og
erum við íslendingar mjög framar-
lega á þessu sviði.“
Ásta segist skilja vel þær áhyggj-
ur sem fólk gæti haft vegna kostn-
aðarins við að ráða innanhússarki-
tekt til starfa. „Ég skil það mjög vel,
þetta er eins og að ef maður ætlar
að ráða iðnaðarmann veit maður
ekki fyrir víst hvað maður er að fara
út í. Við gerum verðtilboð og er
sjálfsagt að leita eftir því eins og í
annars konar verslun og þjónustu.
Ég hef fundið fýrir þessari hræðslu
en ég finn líka að fólk er sífellt að
verða opnara fyrir þessu og lítur á
þennan kost sem raunhæfan
möguleika. Þegar upp er staðið er
alltaf öruggara að leita til fagfólks."
eirikurst@idv.is
Fyrir kraftmikið ævintýra-
fólk Mjúkir pastellitir faila ekki
öllum í geö, sterkir litir og
skrautleg mynstur falla ævin-
týragjörnum krökkum aföllum
stærðum og gerðum vel I geö.
I
Ævintýralegt herbergi Ef
rýmið er nægilegt er um að gera
að nýta það, til dæmis með því
að útbúa svefnioft, stúka afsmá
stofu eða föndurpláss.
Það er gaman að deila
Börnum líður vel I félagsskap
en þau vilja samt hafa áveðið
pláss út affyrir sig. Málaðu
rúmin og skrifborðin I sérlit
fyrir hvert barn.
Fyrir litlar prinsessur
Manni liður eins og prinsessu I
garðveislu í svona herbergi,
með veggjum I sama lit og
sykurull og gólfi sem minnir á
vel hirta grasflöt.
Sit i**1,
safclattS a
Isafjaxða* j
Beggaf®^
Isögtts^f
andlit
Helgarblað DV -
springur út á morgun!