Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2005, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2005
Sport DV
Tottenham
græðir á tá
og flngri
Knattspymufélagið Tottenham
Hotspur græddi 113 ___
milljónir ____/
króna
íyrif j
skatta /
á seinni ’
sex mánuð-
um síðasta árs.
Þessi ágæta
útkoma Spurs i
kemur
skemmtilega á
óvart þar sem
velta félagsins í
var ekki eins
mikil og árið á
undan. Stjóm
Spurs er . '
himinlifandi | R
yfir útkomunni ^
enda töpuðu
þeir tæpum
400 miÚjónum á
sama tíma fyrir . Sm
ári. „Við erum á
réttri leið, innan '“Æ,
sem utan valiar. 1 %
Við þurfum að
halda skipinu á S
réttum kili því
þetta er eitthvað jjj%
sem hægt er að "
byggja ofan á,“ sagði Daniel Levy,
stjórnarformaður Spurs.
Platt til liðs
viðÍBV
Fram kemur á heimasíðu ÍBV
að þeir hafi gengið frá samningi
við hinn 21 árs gamla Breta
Matthew Platt en heimildir DV
Sports herma að hann sé alls
óskyldur leikaranum góðkunna
Oliver Platt. Platt er framherji og
kemur frá enska félaginu Crewe
en ÍBV hefur fengið leikmenn að
láni frá því ágæta félagi síðustu
sumur. Þetta vom kærkomnar
fréttir fyrir Eyjamenn því þeir
misstu Bandaríkjamanninn Mark
Schulte til Columbus Crew fyrr í
vikunni.
Everton og
‘Boro fengu
sekt
Aganefnd enska knattspymu-
sambandsins sektaði í gær Ever-
ton og Middlesbrough um tæpa
milljón króna og varaði félögin
við að endurtaka þá hegðun sem
þau sýndu í leik þann 16. janúar
síðasdiðinn. Þá sauð upp úr en
mest létu til sín taka þeir Duncan
Ferguson, framheiji Everton, og
Mark Schwarzer, markvörður
‘Boro, en Stóri Dunc hristi
markvarðarræfilinn ágætlegatil.
Engum var refsað fyrir hasarinn í
leiknum sjálfum en félögin eru
liér með komin á skilorð og fá
þungar refsingar haldi leikmenn
þeirra sig ekki á mottunni.
Svo gæti farið að lögreglan á íslandi byði ungum krökkum, sem eiga á hættu að
leiðast á rangar brautir, að æfa hnefaleika. Það hefur breska lögreglan gert í
forvarnarskyni í mörg ár með góðum árangri.
Hnefaleikakeppnin á milli ís-
lands og Bretlands á Broad-
way á dögunum heppnaðist
ákaílega vel og svo vel reyndar
að lögreglan á íslandi íhugar
að feta í fótspor félaga sinna í
Bretlandi sem reka boxskóla
með góðum árangri. Bresku
strákarnir sem kepptu við fs-
lendingana komu til að mynda
allir úr boxskóla sem rekinn er
af bresku lögreglunni. Hver
veit nema Boxskóli ríkisins
verði stofnaður á Islandi áður
en langt um líður.
Pétur Guðmundsson, aðalvarð-
stjóri hjá lögreglunni í Reykjavík og
fyrrverandi kúluvarpari, heftir verið
í sambandi við kollega sína í Bret-
landi sem hafa boðið honum að
kíkja út og skoða hvernig þeir
standa að málum.
Á byrjunarreit
„Þetta er allt saman á byrjunar-
stigi en því er ekki að neita að þetta
er áhugavert. Það þarf samt ekki
endilega bara að bjóða upp á
hnefaleika heldur hvað sem er,“
sagði Pétur sem á ekki von á að lög-
reglan myndi opna sinn eigin box-
skóla heldur færi hún í samstarf við
þau hnefaleikafélög sem eru starf-
andi í dag.
Bresku krakkarnir sem eru send-
ir í lögregluboxskólana koma oftar
en ekki frá uppleystum heimilum
þar sem annað hvort foreldrar eða
systkini hafa komist í kast við lögin.
Lögreglan fylgist með þessum
heimilum, tekur í taumana og reyn-
ir að beina krökkum sem eru líkleg-
ir til að lenda í vandræðum inn á
réttar brautir. Hefur þessi aðferð
„Þetta er kostnaðar-
samt dæmi en kostn-
aðurinn kemur marg-
falt til baka efhægt er
að leiða ungling, sem
annars endaði í af-
brotum eða einhverju
álíka, á réttar brautir."
Slegist (hringnum en ekki á götunni Breskir unglingar sem hafa þótt llklegir til aö fara ranga leiö Ilífinu hafa margir hverjir fariö íboxskóla
bresku lögreglunnar. Slíkt hiö sama gæti gerst hér á landi. DV-mynd Palli
gefið ákaflega góða raun í Bret-
landi.
Vinna sér inn punkta
„í staðinn fyrir að hætta á að
missa ungling út í vitleysuna fær
hann að alast upp í því agaða um-
hverfi sem fylgir boxinu. Þessir
krakkar vinna sér síðan inn aga-
punkta og þegar ákveðnum fjölda er
náð fá þeir að keppa þannig að
þessu kerfi fylgir líka umbun. Það er
líka betra að vita af unglingnum
þarna en að vita ekkert um hann,“
sagði Pétur en unglingar sem hafa
hreinan skjöld verða ekki skikkaðir
til að taka þátt en það gæti þó verið
gert við unglinga sem þegar eru
farnir að lenda í vandræðum.
„Þetta er kostnaðarsamt dæmi en
kostnaðurinn kemur margfalt til
baka ef hægt er að leiða ungling, sem
annars endaði í afbrotum eða ein-
hverju álíka, á réttar brautir" sagði
Pétur Guðmundsson aðalvarðstjóri.
Ellert jákvæður
Ellert B. Schram, forseti íþrótta-
og ólympíusambands íslands, var
meðal gesta á boxkvöldinu á Broad-
way og hann er hrifinn af því sem
Bretamir em að gera og segir að ÍSÍ
muni leggja blessun sína yfir þessa
frumlegu leið.
„Mér finnst það mjög áhugavert
að lögreglan dragi fólk í box. Það er
ekki alveg í takti við hvernig hefur
verið talað um box hér heima. Hér
hefúr frekar verið talað um hvað box
sé hættulegt," sagði Ellert sem er
mjög áhugasamur um málið.
„Þessi aðferð Bretanna hefur
fengið viðurkenningu. Þessi leið
veitir mönnum sjálfstraust og hefur
hjálpað mörgum að fara inn á réttar
brautir í lífinu. Svo fá ungir krakkar
útrás í boxinu sem er mun betra en
að þeir séu að slást við hvern annan
úti á götu," sagði Ellert B. Schram,
forseti Iþrótta- og ólympíusam-
bands íslands. henry@dv.is
Þvflfkt klúður Michael Owen var fyrirmunað að skora gegn Aserbaldsjan. Meira að segja
gegn tómu marki eins og sjá má á þessari mynd. Reuters
Þjálfari Aserbaídsjan ósáttur við Owen
Owen er bara dvergur
Hinn brasilíski þjálfari Aser-
baídsjan, Carlos Alberto, réðst
harkalega að Michael Owen eftir að
Englendingar lögðu Asera með
tveimur mörkum gegn engu á
miðvikudag.
„Þessi maður - hvað heitir hann
aftur, þessi númer 10, þessi litli sem
kemst ekki í liðið hjá Real Madrid -
sagði að ef Pólland ynni Asera 8-0 þá
myndi England að minnsta kosti
vinna 8-0 og hann myndi skora 5
mörk,“ sagði Alberto fjúkandi reiður
eftir leikinn og var ekld hættur.
„Hann verður að læra að bera
virðingu fyrir fólki. Hver er annars
Michael Owen? Hvað hefur hann
eiginlega unnið? Hann spilar fyrir
Real Madrid en situr alltaf á bekkn-
um. Það er ekki rétt af honum að
segja svona hluti. Hvar voru þessi
fimm mörk sem hann lofaði? Hann
skoraði ekki neitt. Sven-Göran er
góður gæi en hann verður að taka
svona gutta í gegn. Hver er hann
annars? Hver er hann?
Hvað hefur þessi strákur eigin-
lega unnið sér til frægðar? Þessi
dvergur. Hann ætti að þrífa á sér
tunguna og þrífa skóna hans Beck-
hams sem eru blautir eftir leikinn.
Hann er góður í það.“
Owen neitar þvf staðfastlega að
hafa gefið slíkar yfirlýsingar og
harmar að Alberto hafi misskilið orð
hans. Hann hafi engu að síður mátt
gagnrýna ffammistöðu hans í leikn-
um. Owen fékk fjölda færa sem
honum tókst ekki að nýta sér en
hann hefði getað jafnað markamet
Alans Shearer hefði hann skorað.