Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2005, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005
Hér&rtú DV
Beðmálskonur hittast á ný
Sarah Jessica Parker fagnaði fertugsafmæli sínu á dögunum á
Plaza-hótelinu í New York. Meðai gesta voru stöllur hennar úr
þáttunum Beðmál í borginni, þær Cynthia Nixon, Kim Cattrall
og Kristin Davis. Það kom mörgum á óvart að þær skyldu
mæta í afmælið en sögusagnir hafa verið um að þær stöllur
séu ekki á eitt sáttar eftir að Kim Cattrall neitaði að leika í bíó-
| mynd sem átti að vera óbeint framhald af Beðmálunum. Hvort
breytingar verði þar á er ólíklegt að segja til um en Sarah
Jessica er nú við tökur á kvikmyndinni „The Family Stone."
Er Britney ólétt eöa bara iöt í ræktinni?
Kevin sækir í félagsskap fylgdarkonu
Kevin Federline, eiginmaður Britney
Spears, fór í skemmtiferð til Las Vegas og
skildi hann Britney eftir eina heima. Kevin og
vinir hans eru sagðir hafa eytt hluta helgar-
innar með V.I.P-fylgdarkonu en Kevin og
fylgdarkonan náðu vel saman að sögn við-
staddra. Sögur herma að Britney sé ólétt en hún
hefur bætt nokkuð á sig upp á síðkastið. Ef svo er
þá er það ekki í fyrsta skipti sem Kevin yfirgefur
ólétta eiginkonu sína, en hann yfirgaf fyrrverandi
eiginkonu sína þegar hún var ólétt af barni þeirra
fyrir Britney.
T og Sharon Osboume urðu
að flýja heimili sitt í fyrrakvöld eft-
ir að eldur braust út í stofunni
þeirra. Hjónakomin vom að slaka
á heima fyrir þegar reykskynjarinn
fór allt í einu í gang. í ljós kom að
eldur hafði læst sig í panelnum á
einum veggnum. Á orskotsstundu
fylltist stofan af svörtum reyk. „Við
rétt náðum að bjarga hundunum
slö
og köttunum, hringja á!
ið og hlaupa út,“ segir Sharon.
Engan sakaði en allt í stofunni er
ónýtt.
Söngkonan
Anna Mjöll Ólafs-
dóttir er yfir sig
ástfangin i LA
Anna Mjöll Ólafsdóttir, söngkona, er
yfir sig ástfangin en hún og kærasti henn-
ar, Jerry Sorrentino, hafa verið saman í
sex vikur. „Þetta gengur rosa vel hjá
okkur. Við búum ekki saman en hver veit
nema að það breytist síðar meir,“ segir
Anna Mjöll. Jerry, sem er af ítölskum
ættum, er heimsmeistari í kappsiglingum
og hann ku vera ansi hrifinn af íslenskum
konum. „Við héldum fyrsta íslendinga-
partíið okkar um páskana og hann sagðist
aldrei hafa hitt eins margar failegar konur
á einu kvöldi," segir Anna Mjöll hlæjandi.
Anna Mjöll er um þessar mundir að
klára tvo geisladiska sem munu jafnvel
verða gefnir út af plötuútgáfufyrirtæki í
Nashville, höfuðborg kántrítónlistarinnar
í Bandaríkjunum. „Eg fór til Nashville um
daginn og það var rosalega gaman. Það
ættu allir að fara einu sinni til Nashville á
ævinni og upplifa kúrekahattana og
stemminguna þar,“ segir Anna Mjöll.
Þegar u'mi gefst til nýtur Anna Mjöll
þess sem borgin og nágrennið hafa upp á
að bjóða. „Mér þykir mjög gott að fara í
heilsulindir, borða sushi, fara í göngu-
ferðir hér í hæðunum og margt fleira. Svo
föiurn við Jerry stundum saman á Harley-
mótorhjólið hans og í sumar stefnum við
á að fara í river rafting saman."
Önnu Mjöll líkar vel að búa í L.A. en
hún er búin að búa þar samfleytt í átta ár
en hefur verið með annan fótinn í L.A
meira og minna í þrettán ár. „Það er mjög
fi'nt að búa hérna. Ég bý í hverfinu Val-
encia og þar vaknar maður við fuglasöng-
inn á morgnana."
En hvað með bameignir? „Ja, ég er nú
búin að vera að hugsa um bameignir en
ég hef ekki hitt rétta manninn enn þá. Við
skulum bara sjá til hvernig fer með Jerry,"
segir Anna Mjöll. Julio Iglesias, stórsöngv-
ari og vinur Önnu Mjallar, er þó búinn að
samþykkja Jerry fyrir önnu Mjöll. „Julio
er búinn að.gefá honum ok-stimpilinn,"
segir Anna Mjöll hlæjandi að lokum.
í kappsfglingum
Sesselja Thorberg hefur vakið athygli fyrir hönnun sína
og framkomu í Innfiti-útliti og augljóst er að hún hefur
góða þekkingu á hönnun. Sesselja er menntaður iðn- og
vöruhönnuður frá Listaháskóla íslands og útskrifaðist
þaðan árið 2003 og hefur verið að fást við eitt og annað frá
því að hún lauk námi.
„Ég byrjaöi að vinna við þáttinn síðustu páska en þá
var ég að undirbúa heimasíðu þáttarins. Frá því í haust
hef ég verið aðstoöardagskrárgeröarmanneskja við þátt-
inn og hef veriö með nokkur innslög," segir Sesselja. Sess-
elja hefur mikinn áhuga á hönnun og fæst við eitt og
annað tengt starfi sfnu.
„Ásamt því að vinna við þáttinn þá tek ég að mér ýmis
verkefni en núna er ég að hanna búð fcá a-ö, allt frá inn-
réttingu og upp í ímynd búöarinnar. Búðin heitir Tvö líf
og verður opnuð 9. aprfl en búðin verður með fatnað fyrir
óléttar konur. Svo er ég meðal annars að taka í gegn
innanhúshönnun í íbúð en því verkefni fer brátt að ljúka,"
segir Sesselja.
„Vinnan mín er mitt aðaláhugamál og en svo mála ég
lflca mikið og ég hef einnig gaman að því að ferðast innan-
lands og fara í gönguferðir," segir Sesselja. Þegar hún er
spurð um helsta áhugasvið sitt innan hönnunar þá
stendur ekki á svarinu. „Það er algerlega innanhús-
hönnun sem mér fixmst mest spennandi. Annars er mitt
áfit að hönnunargreinar séu að renna svolítið saman og
línumar á milli eru að hverfa. Flestir hönnuðir sem ég
þekki til eru að fást viö flest allt sem viðkemur hönnun."
Framundan er spennandi tími hjá Sesselju en hún er
að fara að gifta sig í haust. Sá heppni heitir Magnús Sævar
Magnússon, fjármálastjóri, og saman eiga þau einn son.
Það verður því eflaust í nógu að snúast hjá henni við imd-
irbúning brúðkaupsins í sumar sem verður án vafa mjög
glæsilegt.
...-wmmam
T 1
.