Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2005, Page 32
32 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2005
Menning DV
Þingaðá Níunni um helgina
NÍAN - Myndasögumessa í Lista-
safiii Reykjavíkur hefur vakið nýjan
áhuga á myndasögunni. Aðsókn að sýn-
ingunni hefur verið góð enda gefur hún
frábæra yfirsýn á þróun formsins á liðn-
um áratugum og vísar einnig til stakra
parta í sögu þessa forsmáða Ustforms.
Um helgina verður fundað um
myndasöguna í Hafharhúsinu undir
yfirskriftinni Myndasagan ogmyndlist-
in og veröa frummælendur Bjarni Hin-
riksson myndasöguhöfundur og sýn-
ingarstjóri Myndasögumessunnar, Inga
María Brynjarsdóttir graffskur hönnuð-
ur og Þorbjörg Gunnarsdóttir safna-
fræðingur og deildarstjóri safiiadeildar
Listasafris Reyigavíkur. Hefst fundar-
haldið kl. 14 og verður þingað í tvær
stundir.
Á sunnudaginn kl. 14 - 16 heldur
málþingið áfram f Borgarbókasafni f
Grófarhúsi undir yfirskriftinni Mynda-
sagan og bókmenntimar. Frummæl-
endur þar eru Úlfhildur Dagsdóttir bók-
menntafræðingur og bókaverja en hún
er mikO áhugakona mn myndasögur,
Heimir Snorrason gagnrýnandi og rit-
höfundurinn Sjón. Stjómandi mál-
þingsins báða dagana er Anna Margrét
Sigurðardóttir.
Iltför konster
Sinfónían spilar oft fyrir börn en á morgun verða hljómleikar í Háskólabíó helgaðir H.C. Andersen og
tveggja alda minningu hans sem eru sérstaklega sniðnir fyrir tónhungraða krakka. Fluttur verður for-
leikur Árna Björnssonar að Nýjársnóttinni sem sjaldan heyrist og Förunauturinn eftir Fuzzi sem byggir
á ævintýri Hans Kristjáns.
Þess er reyndar minnst um ger-
vallan heim á morgun að tvö-
hundruð ár eru liðin frá fæðingu
ævintýraskáldsins mikla frá Óðin-
véum. Það er örn Árnason leikari
sem mun flytja ævintýrið en hann
hefur oft lagt Sinfóníunni lið í
verkum sem heimta sögumann.
Hann hefur lesið með þeim Hljóm-
sveitina sem kynnir sig eftir Britta-
in sem verður líka á dagskránni á
morgun, verk um fílinn Babar sem
flestir þekkja en ekki í samnefndri
tónsmíð að ógleymdum Pétri og
úlfinum. Hann er því vanur að
takast á við Sinfóníuna. „ Þeir tala
stundum við mig með hljóðfærun-
um og ég á stundum við þá,“ segir
örn.
Það er Guðmundur Óli Gunn-
arsson sem stjórnar hljómsveitinni
á morgun og er gleðilegt að sjá fs-
lenskan hljómsveitarstjóra á pall-
inum í Háskólabíó. Guðmundur
býr fyrir norðan og leiðir þar starf
Sinfóníuhljómsveitar Norður-
lands. Hann hefur komið víða við í
tónlistarlífi okkar og stjórnað stór-
um og smáum sveitum frá því
hann kom heim frá námi í
Hollandi og Finnlandi.
Sinfónían hefur alla tíð lagt ríka
áherslu á flutning tónlistar fyrir
börn. Hún spilar reglulega fyrir
krakka í Reykjavík á skólatíma og
hafa mörg börn í fyrsta sinn kynnst
klassískri tónlist þar. Verkefna-
skráin vísar að þessu sinni á
skemmtilegan hátt til hinnar fornu
hefðar álfasagna á íslandi, en for-
leikinn að Nýjársnóttinni samdi
Árni Björnsson fyrir opnunarsýn-
ingu Þjóðleikhússins 1950. Eins og
kunnugt er byggði Indriði Einars-
son leik sinn um álfa og fólkið á
bænum ungur maður, en það var
lengi vinsælt meðal almennings
hér á landi og sækir í gamla sagna-
BORGARLEIKHÚSIÐ
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
STÓRA SVIÐ
DRAUMLEIKUR
e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ
Lau 9/4 kl 20, Su 10/4 kl 20, Fi 14/4 kl 20
Siðustu sýningar
HÍBYLt VINDANNA
leikgerd Bjarna Jónssonar eftir
vesturfarasögum BöÖvars GuÖmundssonar
Fí 7/4 kl 20, Fo 8/4 kl 20, Uu 16/4 kl 20,
Su 17/4 kl 20, Fi 21/4 kl 20, Fö 22/4 kl 20,
Lau 30/4 kl 20
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
SEGDU MER ALLT
e. Kristínu Ómarsdóttur
I kvöld kl 20, Lau 9/4 kl 20, Su 17/4 kl. 20
AUSA eftir Lee Hall
/ samstarfi við LA.
Su 3/4 kl 20
Fi 21/4 kl 20 - Sfðasta sýning
- Ath: Miðaverð kr. 1.500
AMERICAN PIPLOMACY
eftir Þorleif örn Arnarsson. í samstarfi við
Hið lifandi leikhús.
í kvöld kl 20 Sfðasta sýning
HERI HÉRASON
e. Coline Serreau
Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
Lau 2/4 kl 14 - Aukasýmng
Su 3/4 kl 14 - Aufcasýning
Lokasýningar
HOUDINI SNÝR AFTUR
í kvöld kl 20 - AUKASÝNING
Siðasta sýning
ALVEG BRILLJANT SKILNADUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
( kvöld kl 20 - UPPSEIT,
Lau 2/4 kl 20 - UPPSEUV
Su 3/4 kl 20 - UPPSEIT,
Fi 14/4 kl 20 - UPPSEIT,
Fö 15/4 kl 20 - UPPSEIT,
Lau 16/4 kl 20, - UPPSEIT.
Su 17/4 kl 20
Mi 20/4 kl. 20 - UPPSEIT,
Fi 21/4 kl 20
Fö 22/4 kl 20 - UPPSEIT.
SVIK
eftir Harold Pinter
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA
t AÐ SKEMMTILECU KVÖLDI
8:00 Gleðistund I forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið
Samstarf: Á SENUNNI,SÖCN ehf. og LA
Lau 2/4 kl 20, Lau 9/4 kl 20
Síðustu svmnaar
e. önnu Reynolds.
í samstarfi við leikhópinn KLÁUS.
Aðalæfing fi 7/4 kl 20 - kr. 1.000
Frumsýning fö 8/4 kl 20 - UPPSELT
Fö 15/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20
Börn 12 ára og yngri fá frítt I
Borgarleikhúsið i fylgd fullorðinna
______- gildir ekki á barnasýningar
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga
hefð sem vissi ekki síst að börnum.
Þriðja verkið á tónleikunum á
morgun er einmitt Hljómsveitin
kynnir sig sem Brittain samdi 1946
og hefur verið haft á orði að ekkert
verk dugi betur til kynningar í
hljóðfæraskipan sinfóníuhljóm-
sveitar en þetta vinsæla verk sem
er tíður þáttur í starfi stærri hljóm-
sveita sem vilja ná til ungra áheyr-
enda. Tónleikarnir hefjast kl. 15.
Þjóðleikhúsið minnist afmælis
Hans Kristjáns líka á laugardag
með samkomu í Þjóðleikhúskjall-
aranum þar sem leikarar úr sýn-
ingunni Klaufar og kóngsdætur
skemmta meðal annars. Sú sam-
koma stendur frá 15-17 og eru allir
velkomnir.
Örn Árnason er sögumaður á tónleikun-
um á morgun Hér erhanní Klaufum og
kóngsdætrum sem sýnd er i Þjóöleikhúsinu
llka til að minnast afmælis Hans Kristjáns.
DV-mynd Þjóðleikhúsið
Hljómblik
Bjarki Sveinbjömsson skrifar
um Björgvin Guðmundsson
alllangt mál í kynningarbæklingi
við diskinn, rekur sögu tón-
skáldsins og klykkir þó út með því
að segja að Björgvin hafi verið mik-
ið tónskáld. Björgvin Guðmunds-
son var einn af brautryðjendum
tónlistar á íslandi og var eldhugi
mikill og afkastamaður með af-
brigðum. En er það ekki nokkuð of-
mæit að fullyrða að hann hafí verið
mikið tónskáld? Varla er hann
mesta tónskáld íslendinga. Býsna
mörg tónskáld okkar em betri en
Björgvin. Það mætti því álykta að
við eigum mörg mikil tónskáld. Það
gengur varla upp. Verðum við ekki
að nota orðin af sæmilegri gætni til
að þau missi ekki merkingu sína?
Þessi diskur leiðir varla mikið
tónskáld í ljós. Jafnvel bestu lög
Björgvins em fremur stirð og
klunnaieg þó þau séu samt hrífandi
í einlægni sinni og hrifningar-
kenndri stígandi. Lökustu lög
Björgvins, eins og t.d. Litlu hjónin,
em hins vegar hrein mælgi í tónum.
Inn á milli sunginna laga er skot-
ið litlum píanóiögum og jafhvel
lögum fyrir samleik tveggja hljóð-
færa. Lög þessi eru af ýmsu tagi, t.d.
forspil, masúrka, fúga. Þetta em
snotur lög þegar maður heyrir þau
fyrst en við meiri lilustun verða þau
ósköp andlaus og þreytandi. En
spilamennska Snorra Sigfúsar, Sig-
rúnar Eðvaldsdóttur og Sigurðar
Inga Snorrasonar er prýðilegur.
Karlakórinn Fóstbræð-
ur er fremur hvass í
söng sínum undir
stjórn Árna Harðarson-
ar en gerir lögunum að
öðm leyti góð skil.
Eyjólfur Eyjólfsson
hefur fallega rödd sem
hann beitir af talsverðu
næmi en skortir nokk-
uð þrótt og fyilingu.
Sigrún Hjálmtýsdóttir
syngur af sínu venju-
lega öryggi og tilfinn-
ingu og Bergþór Páls-
son er sá söngvarinn,
að dómi gagnrýnand-
ans, sem best tekst að
gæða lög Björgvins ai-
mennilegum karakter,
fyrst og fr emst í hinu glettilega góða
lagi Söng þrælsins. Það lag og nokk-
ur önnur er flutt í djassaðri útsetn-
ingu sem er býsna haglega gerð og
þeir sem leika í þessum útseming-
um stela alveg senunni ef svo má
segja, ekki síst Pétur Garðarson sem
leikur á víbrafón og marimbu undir
söng Eivarar Pálsdóttur. Eivör er
reyndar mesta stjaman á diskinum,
söngur hennar er seiðandi fallegur
eins og hann komi úr æðri vídd.
Sumum finnst það kannski
rangt að vera að djassa eða poppa
upp lög gömlu íslensku tónskáld-
anna á svona “portrait” diskurn, á
þeim eigi allt að vera upprunalegt.
Þó að þetta sé ágætt skoðun er því
ekki að neita að líklega er þetta eina
ráðið til að lög Björgvins Guð-
mundssonar nái til nútímans á ein-
hvem hátt. Og það hefur líklega tek-
ist með þessum diski.
SigurðurÞóT Guðjónsson
Tónlist
Lóg eftir Bjórg-
vin Guðmunds-
son. Flytjendur
Eyjólfur Eyjólfs-
son, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, ~»« , , ln
Bergþór Pálsson, Eivör
Pálsdóttir, Karlakórinn Fóst-
bræður, Snorri Sigfús Birgisson,
Anna Guðný Guðmundsdóttir
og fleiri.
Útgefandi: Smekkleysa 2004.
irk