Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2005, Page 38
38 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2005
Síðast en ekki síst DV
Rétta myndin
Smáskot af ungfrú Reykjavík. Framhald f næsta blaði.
Ónot í Ólínu á ísafirði
Mikill titringur er nú á ísafirði
vegna ítarlegrar úttektar næsta
Mannlífs á Olínu Þorvarðardóttur
skólastýru Menntaskólans á ísafirði.
Tímaritið er nú í prentsmiðju. Er
ætlunin að rekja feril hennar allt frá
frumbernsku til vorra daga. Reynir
Traustason hefur fjallað um einarða
skólastjórn hennar í DV og fylgir því
nú eftir í Mannlífi. Reynir er annars
Vestfirðingur líkt og Ólína og veit sitt
r; . . r t lítið af hverju sem snýr að
LilLki! henni. Munu menn hafa
heyrt því fleygt að Ólína telji sig ekki
eiga von á góðu og hafi hótað að
stefna bæði DV og Mannlífi fyrir
meiðandi skrif þó svo að hún hafi
ekki enn lesið það sem Mannlíf
skrifar og birtir.
Reynir heldur sínu striki og hefur
sem fyrr karlmann á for-
síðunni sem hingað til t
hefur ekki þótt sölu-j
vænlegt í heimi tíma-i
ritanna. Nú er komiðj
að rokkkóngi á tíma-1
mótum: Nefnilega':
Rúnari Júlíussyni sex-
tugum. Kona hans,
María Baldurs-
dóttir, verð-
ur með á,
mynd og^
er þari
með fyrsta konan sem fer á forsíðu
Mannh'fs eftir að Reynir tók þar við
stjórn.
Vestfirðingarnir Reynir og
Ólína Skólameistarinn Óiina telur
sig ekki eiga von á góðu frá Reyni f
en í prentsmiðjunni er Mannlífþar
Isemier itarieg úttekt á Ólinu - frá f
[ frumbernsku tii vorra daga.
Hvað veist þú um
Spán
1. Hversu margir eru íbúar
landsins?
2. Hver er stærsti atvinnu-
vegurinn?
3. Hvenær lést einræðis-
herrann Franco?
4. Hvert er talið elsta
tungumál Spánar?
5. Hvaða herferð lauk í
Granada árið 1492?
Svör neðst á sfðunni
Hvað segir
mamma?
„Hann Arn-
mundur er
gömulsál,"
segir Edda
Heiðrún
Backman
móðirArn-
mundar
Ernsts
Backman.
„Hanner
skemmtileg-
ur og bjartsýnn, er mikil félagsvera
og stemningsmaður. Hann eralls
ekki líkur þessum dreng en hefur
gaman afþví að segja frá. Hann hef-
ur leikið i nokkrum sýningum frá því
hann var barn. Þessi fermingaraug-
lýsing ferst honum vel úr hendi, enda
fannst honum gaman að vinna
hana. Mér finnst síða hárið hans al-
veg æðislegt, þaö er alltafhreint og
þá er það fallegt. Það fer ekki mikið
fyrir honum en það sem hann gerir
telur. Mér heyrist hann stefna á leik-
listina i dag, mér list ágætlega á það
en þetta ergrýttur vegur og erfitt
starfen það venst."
Arnmundur Ernst Backman hefur
vakið mikla athygli fyrir leik sinn í
fermingarauglýsingum frá SPRON
þar sem hann túlkar fermingar-
strák sem veit svo sannarlega
hvað hann vill. Edda Heiðrún
Backman stórleikkona er móðir
Arnmundar, eða Adda eins og
hann er kallaður, og því á hann
ekki langt að sækja hæfileikana.
Opið hús á Bessastöðum Forsetahjúnin
halda enska vorhátíð fyrir almennmg
Forsetahjónin á Bessastöðum
hafa ákveðið að opna heimili sitt og
embættisbústað að Bessastöðum
fyrir almenningi og nota tækifærið
til að kynna nánasta umhverfi sitt og
lífsvenjur fyrir almenningi. Ætla for-
setahjónin sér rúman tíma til þessa
en opið verður á Bessastöðum frá
klukkan 15 í dag til klukkan 21 í
kvöld. Það mun vera Dorrit
Moussaieff sem átti þessa einstöku
hugmynd sem aldrei hefur verið
reynd áður á forsetasetrinu. í
heimalandi hennar, Englandi, hefur
það tíðkast lengi að Buckingham
Forsetahjónin Óiafur
Ragnar og Dorrit tilkynntu
vorhátíð sína á frétta-
mannafundi á Bessastöð-
um í gær.
höll væri opin almenningi svo ekki
sé minnst á kastala hefðarmanna
víða um landið sem hreinlega selja
aðgang að híbýlum sínum. Ekki
mun þó verða seldur aðgangur að
Bessastöðum. Ókeypis verður inn.
Skipulögð hefur verið dagskrá í
dag á lóðinni við Bessastaði en í
morgun voru starfsmenn Landhelg-
isgæslunnar að koma þar fyrir úti-
grillum og tjöldum en veðurspáin
lofar góðu og því ætti að verða þurrt
á fólki. Sigurður Hall hefur verið
ráðinn til að stjórna fjöldagrillinu en
hann hefur___________
langa
reynslu
af sam-
starfi
við for-
seta-
hjónin
og eru
þau til
að
mynda
tíðir gestir á veitingastað hann við
Óðinstorg.
Auk þess að setja upp grill og
tjöld í túninu heima á Bessastöðum
munu starfsmenn Landhelgisgæsl-
unnar sjá um öryggisvörslu á for-
setasetrinu en þar innandyra er
margt verðmætra list- og smámuna
sem óprúttnum gæti reynst auðvelt
að hnupla. Það var einmitt þetta at-
riði sem helst vafðist fyrir starfsfólki
forsetaembættisins þegar Dorrit
kynnti hugmynd sína skömmu eftir
áramót. Undirbúningstími hefur því
verið langur og minnst einu sinni
verið um það fjallað á ríkisstjórnar-
fundi. Settu ráðherrar Framsóknar-
flokksins sig í fyrstu upp á móti hug-
mynd Dorritar, sérstaklega Jón
Kristjánsson heilbrigðisráðherra, en
voru að lokum beygðir eftir fund
Davíðs Oddssonar og Halldórs
Ásgrímssonar í anddyri Stjórnar-
ráðsins.
Gert er.ráð fyrir að mikUl fjöldi
sæki forsetahjónin heim og vonast
er til þess að allt gangi að óskum.
Steypt hefur verið nýtt bílaplan við
Bessastaði vegna þessa. Starfsmenn
Landhelgisgæslunnar munu hafa
þyrlu til reiðu fyrir forsetahjónin ef
allt fer á versta veg.
„Við vonumst til að sjá sem flesta
og höfum gert okkar til að vel verði
tekið á móti öllum,“ segir Sveinn
Björgvinsson, umsjónarmaður bfla-
stæðanna á hátíðinni.
Dagskráin á
Bessastöðum
15.00 - Hátíðin sett með
ávarpi Úlafs Ragnars
Grímssonar, forseta lýð-
veldisins.
16.00- Dorrit Moussai-
eff tendrar grilleldinn.
18.00 - Skoðunar-
ferð um neðri hæð
Bessastaða.
19.00 -Skoðunar-
ferð um efri hæð
Bessastaða.
20.00 - Félagar úr
Sinfóníuhljómsveit
íslands leika vínar-
valsa með vínar-
pylsunum frá SS.
21.00 -Húsinu
lokað.
GOTT hjá Katrinu Júllusdóttur al-
þingiskonu að berjast fyrir því að fólk
fái að halda nöfnum sínum óstyttum
i þjóðskrá sama hversu löng þau eru.
Þetta erstríð á hendur stöönuðu
kerfi sem Katrin á eftir að vinna.
Svör viö spurningum:
1. Rúmar 40 milljónir. 2. Ferðaþjónusta. 3. 1975. 4.
Baskneska. 5. La Reconquista - endurheimt Spánar frá
múslimum.
Krossgátan
Lárétt: 1 glöggur,4 læs-
ing,7 nísku,8 bað, 10
kvenmannsnafn, 12 dý,
13 hræðsla, 14snáða, 15
síðan, 16 góð, 18 kát, 21
fingur,22 eirir, 23 nabbi.
Lóðrétt: 1 ánægð, 2 fisk,
3 þrælbundinn,4 segl-
skip,5 kaldi,6 spfra,9
rík, 11 mæti, 16 geisla-
baug, 17 hrópi, 19 lækn-
ingagyðja, 20 feyskju.
Lausn á krossgátu
■eryor JI3 61 |dæ n
'nty 9i '|u6s6 11 '6nQne 6'e|? 9 jn>j s'epouuo>|s t-'jn}sej6ij £'nsX 3 jæs 1 iwajgon
egje £3 'Jiun zz '!»nd u jpj 8 L 'iæ6e
91 'oas s 1 '66eu ^ L 'ejgæ e L 'uaj Z l 'e6|0 81 '6ne| 8 'njujs l '?J>|S y 'JÁ>|s 1