Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2005, Side 39
DV Síðast en ekkisíst
FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005 39
7
Kjallari
Ég er heimskulega vinalegur
af peningum en þegar við settumst
aftur inn í Skódann minn, sneri
hann sér að mér og hvíslaði: „Við
drekktum ekki konum, við brennd-
um þær á báli.“ Ég svaraði engu en
ég var dapur í huganum á leiðinni
heim. Mér fannst svo leiðinlegt að
geta ekki sýnt honum fallega sögu
þjóðar í fallegu landi. Allt var
mengað af óþverraskap. Og hann
þekkti óþverraskap sinnar þjóðar
líka og montaði sig af honum.
Þetta var niðurdrepandi ferð.
Skilnaður frændanna
Ég reyndi eins og ég gat að vera
vinur hans, taka vel á móti honum,
gleðja hann jafnvel og sýna honum
raunverulegt ættarþel. Ég kyssti
hann á munninn þegar hann kom
til landsins og hafði upp frá því
gefið honum mat og húsaskjól,
verið gestrisnin uppmáluð. Ég gaf
honum kaffi og við sátum inni í
eldhúsinu mínu með máfastellinu
sem ég keypti mér í Kolaportinu til
þess að gleðja aldraða frænku
mína.
„Allar konur eru fífl," sagði
frændi minn og saup á kaffinu.
Mér var nóg boðið. Ég tók í háls-
málið á honum, svo kafflð skvettist
yfir hann allan, dró hann fram í
forstofu, reif úlpuna hans af snag-
anum, opnaði dyrnar og henti
honum út. Ég hafði fengið nóg af
þessum leiðinlega manni og það
skipti mig engu máli hvort hann
væri ættingi eða ekki. Ég settist fyr-
ir framan sjónvarpið og fylgdist
með þegar Bobby Fischer kom til
landsins. Hann er heimskingi. For-
dómafullur rasisti sem ég hef óbeit
á. Hann veit af börnum og konum
sem voru myrt í fangabúðum
nasista í síðari heimsstyrjöldinni,
enda er ekki lengra síðan en 60 ár,
en hann kýs að vanvirða minningu
þeirra með því að láta eins og þau
hafi ekki verið til. Ég er feginn að
hann er ekki frændi minn.
Ég hef alltaf verið ættrækinn.
Eyði helgunum í að heimsækja
fjarskylda ættingja, gamlar frænk-
ur og frændur og eyði ekki minna
en 70% af frítíma mínum í að við-
halda fjölskyldutengslunum.
Stundum tek ég mig meira að segja
til og vaki heilu næturnar til þess
að elda kjötbollur í iðnaðarmanna-
potti sem ég fer svo með um allan
bæ daginn eftir í nafni ættartengsl-
anna. „Taktu við þessum kjötboll-
um, frændi sæll" eða „Guð blessi
þér þessar kjötbollur, elsku Birna
frænka" segi ég kannski og kyssi
svo ættingja mína á munninn (eins
og við gerum alltaf í minni ætt. Ég
tek það fram að ég nota aðeins
tungu þegar ég kyssi frænkur mín-
ar, aldrei frændur).
Gestur frá Óðinsvéum
Ónefndur frændi minn hringdi f
mig á föstudaginn langa. Það er
frekar óvanalegt, yfirleitt er það ég
sem hringi í ættingja mína, þeir
láta það oftast vera að hringja í
mig, af einhverjum orsökum.
Hann gaf sér engan tíma til að
spjalla og vildi ekkert ræða það við
mig hvernig fjölskyldan hans hefði
það og hvað þau hefðu ákveðið að
borða á páskunum en ég er mikill
áhugamaður um hvað aðrir borða
á hátíðum og gæti jafnvel hugsað
mér að stýra útvarpsþætti sem
fjallaði eingöngu um mataræði
annarra. En frændi vildi ekki
spjalla og kom beint að efninu.
Fjarskyldur frændi okkar beggja
sem hefur verið búsettur í Óðins-
býrð einn í stórri íbúð. Þú ert líka
sá langættræknasti af okkur öllum.
Þú verður að taka við honum.
„01, ræt," svaraði ég.
Óvænt kynni
Frændi minn frá Danmörku
reyndist vera undarlegur maður.
Hann er hávaxinn og óvenjulegur
að því leyti að hann er mjög loðinn
í eyrunum. Maður á erfitt með að
ræða við hann án þess að stara inn
í eyrun á honum. í fyrsta skipti á
ævinni kynntist ég manni sem
kveikti hjá mér löngun til þess að
rífa í eyrnahárin á. Og svo var hann
líka óvenjulega leiðinlegur, át bara
og át og talaði um danska húmor-
inn sem væri fimmtán sinnum
betri en sá íslenski.
Ég hef aldrei hugsað mikið út í
það en verð auðvitað að viður-
kenna að okkur hérna á íslandi
hefur aldrei tekist að framleiða
myndir eins og í tvíburamerkinu
og í ljónsmerkinu sem eru nú að
mínu mati alveg dásamlegar klám-
kómedíur. Ég gaf því mjög fljótlega
eftir og leyfði þessum erlenda
frænda mínum að skíta út allt sem
heitið getur íslenskur húmor. Já, ég
hreinlega gekk í lið með honum og
afneitaði mönnum eins og Þráni
Bertelssyni (gegn betri vitund).
Svona liðu páskarnir.
Veik tilraun til skynsemi
Ég reyndi að draga hann út úr
húsi. Keyrði með hann upp í sveit
og sýndi honum fjöllin og dalina
og ringlaða bændur ráfa um, eins
og þeir gera á þessum árstíma.
„Sjáðu sjóinn og fjöruna og hvern-
ig sjórinn hefur lamið á landinu í
þúsundir ára og búið til alls kyns
mynstur og landslag." „Ja, ja,“svar-
aði frændi minn og lét sér fátt um
finnast. „Og sjáðu hérna," benti ég
honum á. „Hérna drekktum við
konum í gamla daga." Hann horfði
þegjandi ofan í Nikulásargjá, fulla
véum síðastliðin fimmtán ár var á
leiðinni til landsins. „Það er nú
gaman", sagði ég vegna þess að ég
er svo ættrækinn. „Já, hann verður
að búa með þér," tilkynnti frændi
minn mér. „Það vill enginn annar
hafa hann, þú ert sá eini sem kem-
ur til greina. Þú ert barnlaus og
Þorsteinn
Guðmundsson
fékk leiðinlegan
frænda í heimsókn um
páskana.
Ég gafþví mjög fljót-
lega eftír og leyfði
þessum erlenda
frænda mínum að
skíta út allt sem heitið
getur íslenskur
húmor. Já, ég hrein-
lega gekk í lið með
honum og afneitaði
mönnum eins og
Þráni Bertelssyni
(gegn betri vitund).
Svona liðu páskarnir.
SkiriL
Brúdfeaup^ ferming
Glæsilegar skreytingar til sölu eða leigu í veisluna þína
I Völusteini færðu allt til að gera veisluna þína sem glæsilegasta. Skreytingaefni, kertastjaka, tertubakka,
styttur á veisluborðið, servíettur, brúðaboga, boðskort og margt fleira sem þarf til að gera veisluna ógleymanlega.
Hafðu allt í stíl og fáðu steytingameistara í verslun okkar til að aðstoða þig við valið.
® VÖLUSTEINN
fyrlr flma flngur
Mörkinni 1 / Simi 588 9505 / www.volusteinn.is
Jakob Bjarnar Grétarsson
• Bó Hall söngvara
þótti hæfilega mikið
til Stuðmannaveisl-
unnar miklu í
London koma.
Kunningi hans sló
þessu fram á dögun-
um: Hva, Kobbi bara
að fara að spila í
Royal Albert Hall! Bjögga varð ekki
orða vant fremur en fyrri daginn:
Blessaður. Það kostar ekki nema
áttahundruð og fimmtíu þúsund að
leigja húsið. Við getum haldið upp á
sextugsafmælið okkar þar og tekið
nokkur lög...
a@ Annars kann
Björgvin Halldórsson
öðrum mönnum
betur þá kúnst að
grípa tíðarandann
hverju sinni. Þannig
sendir harm nú ffá
sér tilkynningar í
gríð og erg þess efiús að Brimkló,
sem er iðin við kolann nú um stund-
ir, leiki á stórdansleik á Broadway
næsta laugardagskvöld. Nema nú
heitir Brimkló ekki bara Brimkló
heldur Brimkló Group...
• Ekki hefur farið
mikið fyrir Birgittu
Haukdal að undan-
förnu en nú verður
breyting þar á. Þrátt
fyrir góðar viðtökur
við hinni ágætu jóla-
plötu hennar síðustu
var framleitt meira en
blæs nú til tónleika í Kringlunni og
ætlar að gefa plötuna
á tónleikum í Kringl-
unni klukkan tvö í
dag. Er þetta í sam-
starfi við UNICEF og
lofa þeir þar óvænt-
um heimsfrægum
gesti. Heimildir DV
herma að þar geti
verið um að ræða Kofi Annan en
hann er einmitt skyldur Harry
Belafonte og er hugmyndin að þau
syngi saman „Banana Boat Song“...
• í dag er D-dagur á
RÚV. Auðun Georg
Ólafisson sest í stól
fréttastjóra útvarps í
hrópandi andstöðu
við fréttamenn.
Friðrik Páll Jónsson,
starfandi fféttastjóri,
ritar athyglisverða grein í Mogga í
gær og segir meðal annars:..vekur
undrun að æðsti stjórnandi stofnun-
arinnar og sumir af
þeim sem standa
honum næstir hafa
einna minnsta
menntun allra í hús-
inu." Með öðrum
orðum: Markús öm
Antonsson útvarps-
stjóri er illa mennt-
aður og að auki segir Friðrik Páll
hann, með öðrum orðum, vera durt í
mannlegum samskiptum. Má grein
hans heita góð upphitun fyrir þann
hasar sem í vændum er...
• Reynir Traustason,
stjörnublaðamaður,
rithöfundur og rit-
stjóri, er nú við fjórða
mann í Amsterdam.
Hinir eru kvikmynda-
gerðarmenn sem lúta
forystu læknisins
Lýðs Amasonar en þeir em að vinna
heimildarmynd um heimildaöflun
Reynis vegna bókar sem hann er að
skrifa um undirheima Reykjavíkur og
dópviðskipti. Reynir er sem sagt á
slóð burðardýra í hinni syndum-
spilltu borg sem nefnd hefur verið
Feneyjar norðursins og er væntan-
legur til lands á laugardag...
seldist. Birgitta
e.
ir
i