Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2005, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 30. APRlL 2005
Fréttir DV
Áminning
afturköliuð
Einn angi óleystra mála
varðandi Ólínu Þorvarðar-
dóttur, skólameis’tara
Menntaskólans á fsafirði,
leystist í gær þegar hún dró
til baka áminningu sem hún
hafði veitt Ingibjörgu Inga-
dóttur fyrir meint slæleg
vinnubrögð við yfirferð
enskuprófa. Sættir milli
þeirra tveggja náðust
íf ammi fyrir dómara í Hér-
aðsdómi Vestfjarða en
þangað var deUa kvennanna
komin. Ólína dró áminning-
una til baka eftir að Ingi-
björg hafði ítrekað afsökun-
arbeiðni sína við skóla-
meistarann sem einnig á í
útistöðum við Félag fram-
haldsskólakennara.
Engin morð-
rannsókn
Rannsóknarlögregla Ge-
orgíufylkis í BandarUcjun-
um rannsakar ekki dauða
systkinanna
Jonab, 3 ára,
og Nicole, 2
ára, sem morð-
mál. Systkinin
týndust á laug-
ardag fyrir
rúmri viku og
fundust látin
mánudeginum
á eftir. Krufning leiddi í ljós
að þau hefðu drukknað.
Lögregla heldur áfram að
rannsaka málið og ætlar að
yfirheyra íjölskyldu barn-
anna og ættingja þegar út-
för hefur farið fram.
Á að halda
upp á L maí?
Aðalbjörn Slgurðsson
framkvæmdastjóri AFLS.
„Aö þessu sinni mun ég ekki
gera það neitt sérstaklega. Ég
hef alltaf haldið ræðu þennan
dag hérna fyriraustan en af
ytri ástæðum mun ég bara
sitja heima á morgun og
halda kjafti. Hugurinn verður
þó að sjálfsögðu hjá verka-
lýðnum og mér þykir alltaf
jafn vænt um verkalýösdag-
inn."
Hann segir / Hún segir
„Já, ég ætla að gera þaö. Ég
ætla aö tala á torginu um bar-
áttumál verkalýðsins. Ég hef
haldið upp á þennan dag síö-
astliðin 25 ár og ég vona að
sem flestir sjái sér fært um aö
mæta á morgun og styðja
réttindi verkalýðsins."
Þórunn Svelnbjörnsdóttir
varaformaöur Eflingar.
lá renöe spjeldiö
í gær fóru fram mótmæli á Ráðhús-
torginu á Akureyri þar sem ofbeldi var
mótmælt. Svo virðist vera sem ofbeld-
isalda hafi herjað á bæinn undanfarið
þar sem hrottar hafa komið óorði á
norðanmenn. Lögreglan á Akureyri
segir að um þúsund manns hafi safn-
ast saman á torginu og var ekkert um
óeirðir að sögn hennar. „Þetta fór mjög
friðsamlega fram,“ sagði lögreglumað-
ur sem var á vakt um mótmælin. Fólk
á öllum aldri mætti á torgið og lyftu
mótmælendur rauða spjaldinu á loft
sem tákn um að reka eigi ofbeldis-
mennina útaf. Valdís Jónsdóttir nem-
andi í Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri skipulagði mótmælin. KK tók
nokkur lög og var fólk fyrir norðan
almennt mjög ánægt með þetta fram-
tak ungmennanna á Akureyri.
Ofbeldismenn lömdu dreng og skemmdu bíl en borga engar bætur
Fórnarlambið segir sér enn vera ögrað
„Ég veit nú ekki alveg til hvers mað-
ur var að kæra þessa gaura,“ segir
Ágúst Helgi Stefánsson en hann varð
fyrir árás fimm manna á aldrinum 17-
22 ára í september 2003. Héraðsdómur
Suðurlands dæmdi nú í vikunni árás-
armennina til að borga 75.000 króna
sekt hvem í ríkissjóð en Ágúst Helgi
Stefánsson fékk ekki krónu í vasann.
Ágúst krafðist ekki miskabóta en
óskaði þess í stað að skemmdir sem
árásarmennimir unnu á bíl hans yrðu
bættar. Vitni sáu árásarmennina
sparka í bíl Ágústs en þar sem þeir vom
ekki ákærðir fyrir að sparka í bílinn
vom þeir sýknaðir og greiddu ekkert
fyrir tjónið sem þeir ollu.
„Þetta er helvíti hart,“ segir Ágúst
um málið. „Þeir vom fimm sem lömdu
mig í köku svo það þurfti að sauma
fjögur spor. Mér var sagt að þetta væri
ekki nógu alvarleg árás til að réttlæta
miskabætur, fyrst að ég væri ekki brot-
inn. Mér fannst þetta nú bara alveg
nógu alvarlegt. Fimm strákar að kýla
og sparka í einn. Þar sem bíllinn minn
skemmdist í árásinni hélt ég þó alla
vega að ég fengi það bætt en svo var
ekki.“
Árásarmennimir vom meðal ann-
ars ákærðir fyrir að hafa skemmt bif-
reið mannsins með grjótkasti. Því neit-
uðu mennimir staðfastlega og taldist
því gijótkastið eklá nægilega sannað.
„Svo til að strá salti í sárin þá em
þessir gaurar sem lömdu mig oft á
sveimi héma í bænum, horfa ófrýni-
lega á mig og gefa mér puttann áður en
þeir hlaupa í burtu."
Ágúst kvartar einnig yfir slæmu
upplýsingaflæði frá fulltrúa Sýslu-
mannsins sem sá um mál hans. „Ég
vissi eiginlega aldrei hvað var að gerast
þessu máli,“ segirÁgúst. „Svo heyrði ég
bara af dómnum í útvarpinu."
andri@dv.is
Ágúst Helgi
Stefánsson
LÞetta er helvíti
hart,“ segir Ás-
gústsem var
iaminn.