Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2005, Blaðsíða 25
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 30. APRlL 2005 25
Díana Mjöll Sveinsdóttir hafði barist við aukakílóin alla sína
ævi. Hún náði loksins árangri eftir að hafa kynnst Herbalife
og nú hreyfir Díana sig af ánægju en ekki kvöð. Díana segir
andlega heilsu sína hafa stórbatnað í kjölfarið enda er hún
yfir sig ánægð með lífið og tilveruna í dag.
„Ég var ekkert að flýta
mér heldur tók ég einn
dag í einu og allt í einu
var ég búin að léttast
um 18 kíló/'
„Þetta er ótrúlega góð tilfinning
og í rauninni nýtt líf, það er ekkert
flóknara en það,“ segir Díana Mjöll
Sveinsdóttir sem missti 18 kíló á
níu mánuðum með hjálp Herbalife.
Díana Mjöll, sem er þrítug og býr á
Eskifirði, hefur barist við aukakílóin
alla sína ævi. „Mér hefur oft tekist
að ná af mér nokkrum kílóum en
aldrei náð að halda því, og í raun-
inni vissi ég ekki hvað virkaði,
hreyfingin eða matarræðið. Það var
ekkert eitt sem ég gat bent á þannig
að ég gafst fljótt upp," segir Díana
Mjöll.
Missti tökin eftir barnsburð
„Núna hreyfi ég mig ásamt því
að nota Herbalife og í dag er hreyf-
ingin ekki lengur kvöð heldur
ánægja. Ég er miklu orkumeiri og er
enn að ná árangri í sentimetrum.
Ég var ekkert að flýta mér heldur
tók ég einn dag í einu og allt í einu
var ég búin að léttast um 18 kíló,“
segir Díana Mjöll og bætir við að
hún sé ánægðust með að hafa tekist
að halda sinni núverandi þyngd.
Díana MjöU þurfti að sjálfsögðu
að endurnýja fatáskáp sinn sem hún
segir hafa verið ákaflega ánægjulegt.
„í dag klæði ég mig aUt öðruvísi en
áður og versla í allt öðrum verslun-
um. Hér áður fýrr keypti ég öll mín
spariföt í Stórum stelpum, en þarf
ekki lengur á því að halda." Díana
MjöU á tvö börn og missti tökin eftir
að seinna barnið fæddist. „Ég hafði
grennst áður en ég varð ófrísk og
hélt að ég gæti haldið mínu striki
eftir meðgönguna en þá missti ég
tökin og þyngdist og þyngdist. And-
lega h'ðanin var orðin mjög slæm og
munurinn á skapinu er mUdU. Fjöl-
skyldulífið er aUt annað því ég er
miklu jafnari í skapinu," segir hún
brosandi.
Var sjálf með fordóma
Díana Mjöll segist aUs ekki vera í
stífu prógrammi í ræktinni. Hún
fari í líkamsrækt tvisvar í viku og sé
einnig í blaki. „Mörgum finnst það
fyndið en hér á Eskifirði skiptist
hreyfingin í tvennt, sumar-
prógramm og vetrarprógramm. Yfir
vetrartímann æfum við inni í
salnum en á sumrin er gólfið tekið
af og þá fer maður í sund,“ segir
hún hlæjandi. Díana Mjöll starfar
við ferðaþjónustu auk þess að selja
Herbalife. „Það er heilmikið að gera
í þessu enda hafa fordómarnir
minnkað mjög mikið. Ég var sjálf
með fordóma gegn þessu, enda hélt
maður að þetta væri eitthvað svelti-
prógramm. Sannleikurinn er hins
vegar sá að maður á alls ekki að
verða svangur og þegar ég byrjaði
borðaði ég fimm til sex sinnum á
dag sem var stórkostlegt fyrir konu í
yfirþyngd. Ég var borðandi allan
daginn en léttist samt og því fóru
fordómarnir mjög hratt.“
inöiana@dv.is
Montana
Peter Lybecker
sérfæðingur frá Montana
verður í Epal í dag og á
morgun laugardag og veitir
faglegar ráðleggingar um
val á húsgögnum frá
fyrirtæki sínu.
Fyrsti stóll Verner Pantons
verður til sýnis í Epal.
Stóllinn var hannaður árið
1955 og hæfir jafnt heimili.
skrifstofu. kaffihúsi.
garðinum og veröndinni.
Teinahillurnar. hönnun
Vemer Panton frá 1970. eru
einnig komnar í Epal í nýrri
útfærslu Verner Pantons
og Peter J. Lassen hjá
Montana.
Skeifunni 6 / Sfmi 568 7733
Fax 568 7740 / epal@epal.is
www.epal.is