Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2005, Blaðsíða 16
76 LAUGARDAGUR 30. APRlL 2005
Helgarblað DV
Logi og Svanhildur
Brúðkaup ársins verður í Dómkirkjunni 16. júní þegar
tvær skærustu sjónvarpsstjörnur landsins ganga í hjóna-
band eftir stormasamt tilhlaup. Fjögur hundruð
manna veisla verður í Iðnó á eftir og veðurfræð-
ingar spá sólskini.
höfðu flestir veðjað á séra Pálma
Matthíasson.
í heilagt hionahand
síðast
, fréttist
Logi Bergmann
Gengur aö eiga sína
heittelskuöu hinn ló.júní
næstkomandi. Athöfnin fer
fram í Dómkirkjunni.
w&f-m
Ellý Ármanns - Spámaður.is
Sjónvarpsstjömurnar Logi Berg-
mann Eiðsson og Svanhildur Hólm
Valsdóttir hafa ákveðið að festa sitt
ráð og staðfesta með hjónavígslu
landsþekkt ástarsamband sitt sem
staðið hefur um hríð. Þau Logi og
Svanhildur hafa valið 16. júní fyr-
ir brúðkaupið og er það vel við
hæfi þar sem brúðkaupsveislan
gæti þá teygt sig inn í sjálfan
þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Hjónavígslan fer fram í
Dómkirkjunni að viðstöddu
fjölmenni og verður um 400
gestum boðið til athafnarinnar.
Boðskort hafa ekki enn verið
send út en brúðhjónin tilvon-
andi hringja þessa dagana í
fólk og biðja um að dagurinn
sé tekinn frá. Ekki hefur verið
gefið upp hvaða prestur
þjóðkirkjunnar fær þann
heiður að gefa þau
Loga og Svanhildi
saman og eru víða
veðmál í gangi
vegna þess.
Þegar
Veislan í Iðnó
Brúðkaupsveislan verður haldin í
Iðnó við Tjörnina sem lengi hefur
verið eftirlætisstaður Svanhildar og
Loga. í byrjun tilhugalífs þeirra sáust
þau oft ganga hönd í hönd umhverf-
is Tjörnina áður en þau hurfu suður
Laufásveginn eins og segir í ljóðinu.
Glæsilegar veitingar verða í boði og
engu til sparað þannig að veislan
getí orðið öllum þeim sem hana
sækja eftirminnileg og helst ógleym-
anleg. í vinahóp Loga og Svanhildar
eru margir af þekktustu skemmti-
kröftum landsins og munu þeir ef-
laust láta til sín taka í brúðkaups-
veislunni. Veislustjórar verða Gísli
Marteinn Baldursson og Inga Lind
Karlsdóttír, bæði landsþekkt úr
sjónvarpi lfkt og brúðhjónin sjálf.
Múgur og margmenni
Búast má við að múgur og marg-
menni eigi eftir að fylgjast með brúð-
kaupi þeirra Svanhildar og Loga og
þá sérstaklega þegar brúðhjónin
koma úr kirkju í hrísgrjónaregni vina
og vandamanna. Er ekki ólíklegt að
lögreglan verði að standa vörð um og
við Dómkirkjuna þannig að ekkert
fari úrskeiðis. Beiðni um slíkt hefur
þó ekki enn borist embætti Lögreglu-
stjórans í Reykjavík. Þá má einnig
gera ráð fyrir að þjóðhátíðarskreyt-
ingum Reykjavíkurborgar verði flýtt
örlítið í ár þannig að sölutjöld og fán-
ar setji svip sinn á þennan dag eins
og þjóðhátíðardaginn sjálfan.
Bein útsending?
Atburður sem þessi mun
vitaskuld vekja mikla eftirtekt og er
ljóst að ákveðnar sjónvarpsstöðvar
myndu stökkva á það tækifæri að fá
að senda beint frá athöfninni. Sér-
staklega mun forsvarsmönnum
Skjás eins þykja það spennandi,
enda hefur stöðin lengi markað sér
sérstöðu í þessum geira með brúð-
kaupsþættinum Já.
Þau Logi og Svanhildur hafa þó
sett algert fjölmiðlabann á brúð-
kaupið svo ólíklegt verður að telja að
af útsendingu verði.
Gott veður
Það verður hátíð í bæ og veður-
fræðingar eru á einu máli um að
veðrið verði gott:
„Þetta lítur vel út og veðr-
ið er jákvætt í kortunum
þótt erfitt sé að spá svona
langt fram í tímann,“
segir Sigurður Þ. Ragn-
ars.son veðurfræðingur
og gamall samstarfs-
maður Svanhildar og
Loga á báðum sjón-
varpsstöðvum.
„Veðrið verður bjart
og fallegt. Því get ég
svo gott sem lofað,"
segir veðurfræðing-
urinn.
Svanhildur Hólm
Valsdóttir
Sjónvarpsstjarnan sem
féll fyrir annarri stjörnu.
Ást þeirra verður
staðfestljúnl.
L. ' •.
Hérna gerist þetta
Brúðhjónin verða gefin
saman / Dómkirkjunni.A
eftir fagna þau með 400
gestum í Iðnó.
>■
7Jj*r
Líf þeirra gætt töfrum og hjörtun slá í takt
Bwi
Logi Bergmann Eiðsson er bog-
maður, fæddur 2. desember árið
1966. Svanhildur Hólm Valsdóttir
er vog, fædd 11. október árið 1974.
Logi verður því 39 ára á þessu ári
og Svanhildur 31 árs.
Þegar stjörnur Svanhildar og
Loga eru skoöaðar kemur fram að
þau vita bæði að hjartað er og
verður ávallt óskeikull áttaviti
sem býr innra með öllum mann-
eskjum. Þau vita að það er hjart-
ans að leiöa og hugans að fylgja
(ekki öfugt).
Annars einkennir uppreisn
bogmanninn (Loga) því innra með
honum logar stöðugur en breyti-
legur eldur. Djúpstæð þrá hans til
að kanna hefur eflaust dregið vog-
ina (Svanhildi) að honum strax í
upphafi. Hann situr sjaldan kyrr á
meðan hún dekrar sjálfa sig með
því að njóta tilverunnar á réttan
máta.
Líf þeirra er gætt töfrum sem
birtast hér án skilgreininga eða
útskýringa. Hjörtu þeirra slá vissu-
lega í takt.
Svanhildur-vog
Hepnar elskhugi verður að vera
þolinmóður og skilningsríkur og
viðurkenna þörf hennar fyrir aðdá-
un og blíðu.
Svanhildur er:
- undanlátssöm
- kýs aö þóknast öörum en getur
líka verið árásargjöm í eöli sínu
- nákvæm og vandlát
- henni er ilia við hiröuleysi og
rökleysu
- kýs maka sem getur nært hana
á tilfinninga- og líkamlega sviöinu
og er jafnframt fáskiptinn
Logi - bogmaður
Hann er fær um að skapa skín-
andi stemmingu við hvaða aðstæð-
ur sem er og býr til rómantíska
stund án fyrirhafnar með krafti sfn-
um og hugsjónum.
Logi er: