Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2005, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2005
Fréttir DV
Þúsundir
lagðir í einelti
Um fjögur þúsund börn
á grunnskólaaldri eru lögð í
einelti hér á landi. Þetta
kemur fram í nýrri könnun
á vegum Olweusaráætlun-
arinnar sem er áætíun gegn
einelti. í tilkynningu frá
samtökunum kemur fram
hvar eineltið fer fram.
Yngstu nemendur grunn-
skólans segja skólalóðina
hættulegasta í tengslum við
einelti en eldri nemendur
telja gangana óöruggasta.
Meira en helmingur nem-
enda í 8.-10 bekk hafa orðið
að þola eineltí í átta ár eða
lengur.
Innbrot um
hábjartan dag
íbúi í Akraseli í Breið-
holtí hringdi á lögregluna
þegar hann kom að tveim
innbrotsþjófum í íbúð sinni
um hádegisbilið í gærdag.
Mennirnir hlupu cif vett-
vangi með bakpoka og inn-
kaupapoka undir þýfi. Ná-
granni tilkynnti að tveir
menn á hlaupum hefðu
hent frá sér innkaupapoka
og bakpokinn fannst
skammt frá. Að sögn lög-
reglunnar í Reykjavík sást
bíll í hverfinu sem talið er
að tengist þjófunum og íbú-
inn sem brotist var inn hjá
gaf greinargóða lýsingu af
þeim. Málið er í rannsókn.
Umdeild
könnun
Kosið er milli Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur og Öss-
urar Skarphéð-
inssonar á vef
Samfylkingar í
Hafnarfirði.
Hafa deilur um
stefnu þessa
elsta Samfylk-
ingarfélags á
landinu sett svip sinn á
starfið en félagið er klofið í
afstöðu til frambjóðendanna
tveggja. Mikill áhugi virðist
þó vera fyrir kosningunum
því skömmu fyrir kvöldmat í
gær höfðu um tvö þúsund
manns greitt atkvæöi. Hafði
össur vinninginn með um
60% meðan Ingibjörg fylgdi
eftir með tæp 40%.
ÍNú er ég að undirbúa fertugs-
afmælishátíöina mlna sem fer
fram á morgun, ég átti reynd-
ar afmæli í gær en þaö veröur
mikil veisla hérna á morgun,"
segir Björn Þorláksson
fréttamaður á Akureyri.
Landsíminn
heitir Hreindýriö 2005 og ég
ætla að stefna að því aö halda
upp á árlegt fertugsafmæli
mitt, allt er fertugum fært. Þaö
veröur mikil tónlist þar sem
harmonikka, gítar og flygill
koma við sögu. Þaö er svona
mýverskur blóðhiti sem krist-
allastí tónlistinni."
Skattayfirvöld í Norður-Noregi leita Guðmundar Þórs Þormóðssonar og Níelsar Jóns
Þórðarsonar vegna meintra skattalagabrota. Norski lögmaðurinn Hugo Storo segist
ítrekað hafa reynt að ná í íslendingana en án árangurs. Guðmundur Þór er nú á ís-
landi en Níels Jón mun enn vera í Noregi. Guðmundur er einn stofnenda Sæplasts.
Stolnandi Sæplasts flúinn
frá norska skattstjóranum
Skattayfirvöld í Narvik í Norður-Noregi leita tveggja Islendinga
vegna gruns um brot á skattalögum. Mennirnir Guðmundur Þór
Þormóðsson og Níels Jón Þórðarson eru grunaðir um að hafa
flúið til íslands. Guðmundur Þór dvelur nú á Islandi og hefur
verið hér síðustu mánuði. Hann kannast ekki við að vera
eftirlýstur í Noregi og skilur ekki þessar dylgjur eins og hann
kallar málið. Grunur leikur á að peningar hafi verið færðir milli
fyrirtækja.
blaðsins voru um 2,2 milljónir
norskra króna milhfærðar á fyrirtæki
í Lettlandi sem heitir IPR Industrial
ltd. Guðmundur segir það fyrirtæki
hafa verið verktaka og kannast ekki
við að þar hafi eitthvað ólöglegt farið
fram. Hugo segir ítrekað hafa reynt
að hafa upp á mönnunum án ár-
angurs. Grunur leikur á að mennirn-
ir hafi flúið til íslands.
„ÞaÖ er grunur um að
það hafi verið ein-
hverjar millifærslur á
peningum sem eru
brot á norskum
skattalögum."
Fiskikör Fyrir-
tæki Guðmund-
ar GLM/Balis átti
að framleiða
fiskikör. Myndin
tengist ekki efni
greinarinnar
beint.
„Við erum að rannsaka
þetta mál. Það er grunur um
að það hafi verið einhverjar
millifærslur á peningum
sem eru brot á norskum
skattalögum," segir Hugo
Storo lögfræðingur sem leit-
ar íslendinganna tveggja
vegna málsins.
„Við erum ekki komnir
með heildarmyndina og
því get ég ekki gefið þér öll
smáatriðin,“ segir Hugo
sem hefur árangurslaust
reynt að ná í Guðmund Þór og Níels
Jón.
Ætlaði að framleiða
fiskiker
Fyrirtækið GLM/Balis
AS er í eigu GLM fsland sem
Guðmundur á. Það fór í
gjaldþrot rétt eftir að það
var stofnað. Ætlunin var að
framleiða nýja gerð
fiskikerja úr plastefni en
skattayfirvöld fóru fram
á gjaldþrotameðferð
áður en fyrsta karið var
framleitt. Hugo segir
margt undarlegt vera í
rekstri fyrirtækjanna og
grunur leikur á undanskotum á virð-
isaukaskattí. Samkvæmt heimildum
Hugo Storo Lög-
fræðingur f Narvik
sem leitar tveggja fs-
lendinga vegna brota
á skattalögum.
Kominn til íslands
Guðmundur Þór kannaðist við
hinn norska Hugo og sagði
Níels sem var
framkvæmdarstjóri í
fyrirtækinu hafa átt fund
með honum í síðustu
viku. „Ég skil ekki af
hverju menn sem eru að
reyna að ná tali af
manni hringja ekki bara,
ég var í Noregi fyrir
þremur vikum," segir
Guðmundur sem dvalið
hefur hér á landi í þrjá
mánuði. „Ef ég hef verið
að gera eitthvað ólöglegt
hljóta menn bara að kæra
það, það þýðir ekkert að
vera með einhverjar
dylgjur. Níels félagi
Guðmundar er ísfirðingur
og vaktí athygli útvegsmanna
í Noregi þegar hann fann upp
nýja ísvél sem mun vera svo lítil
að hægt er að hafa hana um borð
í smábátum. Ekki náðist í Níels
Jón sem býr í Solvær í Nor
egi.
breki@dv.is
. --
Guðmundur Þór Þor-
móðsson Flúði til ís-
lands eftirað fyrirtæki
hans fór I gjaldþrot.
Nýstárlegur kirkjugarður í Ástralíu
Bæjarstjórinn skrifar undir
Vistvænar útfarir
Hópur ástralskra bænda nálægt
borginni Melbourne hefur fengið
leyfi til að opna kirkjugarð, ef kirkju-
garð skal kalla, hvar fólk er grafið
lóðrétt í stað hefðbundinnar láréttr-
ar stöðu. Hugmyndin er að gera vist-
vænan kirkjugarð sem síðar má nota
sem beitiland fyrir búfénað. Aðferð-
in sparar landsvæði og fólk er grafið
í vistvænum plastpokum.
Hugmyndin kom fyrst upp fyrir
tuttugu árum og hafa bændurnir
unnið að henni síðan. Forsvarsmað-
ur bændanna, Tony Dupleix, lýsir
þessu sem látiausum valkosti í stað
hefðbundinna útfara. Tony bendir á
að á þennan hátt sé fólki á einfaldan
hátt komið fyrir í gröf sinni og ekkert
prjál eins og legsteinar hafi áhrif á
umhverfið. Andrúmsloftið sé ekki
mengað með gasi eins og við
brennslu og komist sé hjá viðhalds-
Óþarfa prjál? Kostnaður við viðhald hefð-
bundinna grafa er talsveröur og hjá því er
komist I nýjum kirkjugarði I Ástrallu.
kostnaði hefðbundinna grafa. Lík-
hús í Melbourne sér um að geyma
líkin sem síðah verða grafin í hóp-
um, 12-15 saman, hvert í sína holu,
um þriggja metra djúpa. Kostnaður-
inn við útförina er rúmar 70 þúsund
krónur og áætía bændurnir að þeir
geti grafið um þrjú til fjögur hund-
ruð lík á ári.
Reykjanesbær kaupir
sjö ný skip
Reykjanesbær hefur fest kaup á
sjö nýjum bátum í flota sinn. Arni
Sigfússon bæjarstjóri skrifaði á
fimmtudaginn undir samning um
kaup bæjarins á bátunum Braga GK
479, Glöðum GK 405, Erlingi KE 20,
Baldri KE 97, Keflavík GK 15, Gróttu
SI75 og Gullborgu RE 38.
Það eru þó ekki fljótandi bátar
með kvóta sem keyptir hafa verið
heldur líkön af þessum bátum eftir
Grím Karlsson bátalíkanasmið.
Reykjanesbær heldur útí miklu safni
í Duushúsum þar sem nú eru til sýn-
is 60 bátalíkön eftír Grím sem öll eru
í eigu bæjarins.
Að kaupunum stóð félag áhuga-
manna um Bátasafn Gríms Karls-
sonar en félagsskapurinn fékk tvær
milljónir í styrk frá fjárlaganefnd
Árni Sigfússon Bæjarstjórinn skrifaði undir
kaup á sjö skipslíkönum.
Alþingis í ár og var sú upphæð notuð
til líkanakaupanna.
Bátasafhið hefur verið starfrækt
frá því að Listasafn Reykanesbæjar
opnaði í Duushúsum og hefur það
notið mikilla vinsælda hjá íslensk-
um sem erlendum gestum safnsins
enda lætur bátasmiðurinn oft sjá sig
á staðnum.