Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2005, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2005, Blaðsíða 31
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 30. APRlL 2005 31 Eg var heppin að fá hlutverk í Fame enda var ég í fyrstu valin sem dansari en þar sem ein stelpan, sem átti ágæta rullu, slasaðist á fimmtu sýningu var ég fengin til að læra hennar hlutverk, þannig að þetta var í rauninni lán í óláni," segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, sjónvarpskona, áhugaleikkona, nemi og fyrrverandi fegurðardrottning. Ragnhildur Steinunn fékk einn sólar- hring til að læra textann og var síðan kastað í djúpu laugina. Leikur í Kalla á þakinu „Ég þurfti að spila á trommur þannig að ég var alla nóttina berjandi á potta og að reyna að læra textann. Ég var mjög heppin því ég hafði aldrei áður leikið og ég held að þetta hafi gengið alveg sæmilega, svona miðað við fyrstu tilraun," segir Ragnhildur en þessa dagana leikur hún eitt hlut- verkanna í leikritinu Kalli á þakinu sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Þar leikur Ragnhildur Betu, sem er systir Bróa sem leikinn er af Sigurbirni Ara Sigurbjömssyni, en furðufuglinn Kalli er leikinn af Sverri Þór Sverris- syni, betur þekktum sem Sveppa í Strákunum. Ragnhildur segist hafa verið treg í fyrstu til að takast á við hlutverkið og Sveppi hafi eytt löngum tíma í að sannfæra hana um að hún gæti þetta. „Ég er náttúrulega enginn atvinnuleikari en Óskar Jónasson leikstjóri er mesti snillingur sem ég hef hitt. Hann er með góðar skoðanir á öllu og er mjög hreinskilinn og skipulagður. Ef eitthvað er ekki nógu gott, þá leiðbeinir hann manni á rétta braut en það er það sem þarf svo maður geti bætt sig. Hann er líka ótrúlega þolinmóður, á sviðinu em bæði dýr og krakkar svo lætin em oft mikil. Við Sveppi höfum líka bæði nóg að gera, við erum bæði í sjón- varpinu, Sveppi úti um allt, auk þess sem ég er í skólanum. Óskar er alltaf tilbúinn að hliðra til svo hægt sé að finna æfingatíma sem hentar og það érí rauninni ótrúlegt hvemig þetta hefur púslast allt saman." Grípur tækifærin þegar þau gefast Ragnhildur vakti fyrst athygh árið 2003 þegar hún var valin ungfrú ís- land. Síðan þá hefur hún nýtt hin ýmsu tækifæri sem hafa orðið á vegi hennar. Hún segir fegurðardrottning- artitilinn kannski hafa opnað ýmsar dyr en hún hafi einnig verið dugleg að Ragnhildur Steinunn og Haukur Ingi Ragnhildur og Haukur Ingi eru búin aö vera saman síðan hún var 15 ára. Gaman að gera eitthvað nýtt Það hefur verið nóg að gera hjá Ragnhildi í vetur enda á fullu í sjúkra- þjálfun í Háskóla íslands, að stjórna unglingaþættinum og æfa og leika í leikritum. Hún segist vilja hafa nóg fyrir stafni en eins og dagskráin hafi verið upp á síðkastið sé aðeins of mikið að gera en nú séu sýningar á leikritinu hafnar svo hún getur ein- beitt sér að náminu enda á fullu í próflestri. Hún er ekki lærð leikkona og hefur ekki ákveðið hvort hún ætli Sæt saman Ragnhildur varð ungfrú Island árið 2003. Haukur Ingi hefur spilað með Liverpool en er meiddur i dag. Ég held að móðurmissirinn hafi gert mig afar sjáifstæða. Þó að ég hafi verið svona ung, þá held ég að maður læri að átta sig á þvísem skiptir máíi í lífinu við að upplifa svona erfiðleika. Ég ólst upp við að meta það sem ég hafði. nýta þau tækifæri sem hafa boðist og segist hún einnig hafa verið heppin með samferðarfólk sem hafi haft trú á henni. Unglingaþátturinn Óp-ið er kominn í sumarfrí en Ragnhildur hef- ur verið ein þriggja þáttarstjórnenda. Hún segir sjónvarpið eiga ágætlega við sig og stefnir á frekari frama tengdan þeim miðli þó hún vilji ekki segja hvað það verði. „Síðasti þáttur- inn af Ópinu var í vikunni og nú kem- ur bara í ljós hvað gerist," segir hún og viðurkennir aðspurð að hún eigi ákveðið draumadjobb tengt sjón- varpinu sem hún ætlar sér að láta verða alvöru úr í framtíðinni. Leikkona Ragnhildur Steinunn leikur íKalla á þakinu ásamtSveppa. að leggja leiklistina fyrir sig þótt hún segist hafa afar gaman af því að leika. „Það er gaman að fá að fjarlægjast sinn eigin karakter og fá að prófa að vera einhver annar og upplifa eitt- hvað nýtt. Ég hef samt ekkert velt fyr- ir mér hvort ég sé efrii í einhverja al- vöru leikkonu. Þetta var bara eitthvað sem ég datt inn í og ákvað að grípa tækifærið. En ef mér byðist gott hlut- verk gæti ég lfldega ekki sleppt því enda er þetta mjög skemmtilegt. Það er líka gott og gaman að leika fyrir krakka, þau eru svo ótrúlega hrein- skilin og gefa manni mikið til baka." Með kærastanum í níu ár Kærastinn hennar Ragnhildar heit- ir Haukur Ingi Guðnason og er á loka- ári í sálfræði í Háskóla íslands. Haukur Ingi hefur náð góðum árangri í knatt- spymu og spilaði um tíma með Liver- pool. Þrátt fyrir að Ragnhildur sé að- eins nýorðin 24 ára hafa þau verið saman í níu ár eða síðan hún var 15 ára. Hann er hins vegar aðeins eldri en hún en þau koma bæði frá Keflavík. „Við þekktumst h'tið þegar við vor- um yngri en hittumst reglulega í íþróttahúsinu enda var ég alltaf í fim- leikum og hann í fótbolta. Þegar hann- komst á samning við Liverpool var ég að byrja í framhaldsskóla, við ákváð- um í sameiningu að skynsamlegast væri að ég myndi ljúka stúdentspróf- inu áður en ég flytti út. Ég hagræddi náminu hins vegar þannig að ég gat tekið síðasta árið í fjarnámi og flutti út til hans," segir hún en bætir svo við að þau hafi komið heim aftur eftir eitt ár en þá hafi hann verið búinn að spila með liðinu í þrjú ár. „Það var frábært tækifæri til að búa erlendis, upplifa nýja hluti og kynnast fullt af ffábæru fólki. Þetta var algjört ævin- týri en samt sem áður er alltaf gott að koma heim," segir Ragnhildur en auk þess að klára stúdentsprófið úti lét hún gamlan draum rætast og skellti sér í dansskóla. „Eftir að heim kom hélt Haukur áfram að spila fótbolta með Keflavík og Fylki. í fyrra sleit hann svo krossband og hefur verið frá keppni síðan. Það er því gott að hafa sjúkraþjálfara á heimilinu," segir hún og brosir út í annað. Gengur vel að læra Ragnhildur hefur búið alla sína ævi í Keflavík fyrir utan fjögur ár þeg- ar hún var bam og fjölskyldan bjó í Danmörku. Hún gekk í grunnskólann í Keflavík og Fjölbrautaskóla Suður- nesja en tók sér svo frí frá námi og starfaði í Sparisjóðnum í Keflavík áður en hún skeÚti sér í sjúkraþjálf- unina í HÍ. Það hefur sjaldan verið lognmolla í kringum hana og hún segist hafa vanist því að hafa mikið að gera og þétt dagslaá hafi einnig kennt henni að forgangsraða. „Þegar ég sest niður og les fyrir skólann þá les ég al- mennilega, því tíminn sem ég hef til lesturs er oft það knappur að ég verð að einbeita mér vel. Mér hefur alltaf • gengið vel í skóla og finnst gaman að læra og þegar ég var lítil var ég afar fróðleiksfús, alltaf spyrjandi pabba að öllu." Missti mömmu sína Þrátt fyrir velgengni í lífinu hefur Ragnhildur einnig upplifað mikið mótlæti. Hún var ekki nema sjö ára gömul þegar mamma hennar lést eft- ir baráttu við krabbamein. Hún vill h'tið rifja það upp en segir pabba sinn hafa staðið eins og klett við hliðina á sér og að þau séu ekkert síður félagar en feðgin en Ragnhildur er einka- bam. „Ég held að móðurmissirinn hafi gert mig afar sjálfstæða. Þó að ég hafi verið svona ung held ég að mað- ur læri að átta sig á því sem skiptir máh í lífinu við að upplifa svona erf- iðleika. Ég ólst upp við að meta það sem ég hafði." Fleiri erfiðleikar áttu eftir að banka upp á hjá Ragnhildi þar sem pabbi hennar lenti tvisvar sinnum í alvarlegu bflslysi, fyrst á Reykjanes- brautinni og síðar á Bústaðavegi. „Hann slasaðist mjög alvarlega. Háls- liðirnir skemmdust svo hann hefur þurft að gangast undir margar að- gerðir og endur- hæfingu og var því mikið í burtu þegar ég var unglingur. Ég var því mikið ein heima en auðvitað vom ömmur mín- ar og afar alltaf til staðar og ég gat leit- að tfl þeirra. Ég var á fullu í fimleikum og skólanum og vildi ekki láta þetta raska öllu lífsmunstrinu mfnu," segir hún og bætir við að mótlætið hafi kennt henni að meta það sem hún hafi auk þess sem það hafi fært henni ábyrgðartilfinningu. „Eg varð mjög fljótt sjálfstæð enda kom ekki annað til greina. Ég myndi samt ekki segja að ég sé eitthvað þver eða þrjósk heldur hef ég alltaf getað séð um mig sjálf. f Kalla á þakinu er líka mikið hlegið að mér, hvað ég þarf alltaf að vera að passa upp á alla. Jakob, sem leikur pabbann, er alltaf að segja mér að slaka á, ég þurfi ekki að fylgjast með að allir séu á sínum stað og í réttum búningum," segir hún brosandi og bætir við að hún telji að það sem hún hafi upplifað hafi mótað hana og gert hana að þeirri manneskju sem hún er í dag. Fjölskyldan skiptir mestu „Það var æðislegt að fá að alast upp í Keflavík. Það þekkja aflir alla og þegar Haukur Ingi stakk upp á að við myndum flytja tfl Reykjavflcur hélt ég að hann væri búinn að missa vitið. Mér fannst alveg ómögulegt að flytja frá Keflavík, enda finnst mér það yndislegur bær. En um leið og við vorum komin hingað og ég sá að það hentaði mér miklu betur á þessum tímapunkti því allt það helsta sem við sækjum í er hér í borginni, þá fór mér Hann slasaðist mjög alvarlega. Hálsliðirn- ir skemmdust svo hann hefur þurft að gangast undir margar aðgerðir og endur- hæfingu og var því mikið í burtu þegar ég var unglingur. Ég varþví mikið ein heima en auðvitað voru ömmur mínar og afar alltaftil staðar og ég gat leitað til þeirra. að finnast mjög notalegt að búa hér. Það er skrítið hvað þetta er fljótt að breytast," segir hún og bætir við að það fari eftir því hvar fjölskyldan verði hvort hún og Haukur flytji aftur til Keflavíkur í framtíðinni. „Pabbi býr í Keflavík og tengdafor- eldrar mínir líka en öll systkini Hauks eru komin hingað. Ef hin kæmu líka myndum við lfldega ekki flytja aftur suður. Það er gott að hafa fólkið sitt hjá sér og sérstaklega þegar maður er komin með börn til að fá pössun," segir hún hlæjandi. Hún og Haukur eru barnlaus en þau keyptu sér fal- lega íbúð í Vesturbænum eftir að þau fluttu til Reykjavíkur. „Við erum afar ánægð þar sem við búum og ég býst ekki við að við flytjum eitthvert annað fyrr en við höfum sprengt hana utan af okkur og ég vona að við verðum rík af börnum í framtíðinni." Hefur aldrei smakkað áfengi Þrátt fyrir að Ragnhildur hafi verið áberandi í sviðsljósinu síðustu árin hafa fáar kjaftasögur loðað við hana. Flestar stelpur sem verða þekktar í kjölfar fegurðarsamkeppna lenda illa í Gróu á Leiti en Ragnhildur virðist einhvern veginn hafa sloppið. Hún segist ekki hafa neina skýringu á þessu enda heyri hún líklega aðeins það góða en ekki það slæma sem fólk ræði um hana. „Kannski er það vegna þess að ég hef aldrei drukkið áfengi og haga mér því yfirieitt skikkanlega meðal fólks, kannski liggur skýringin þar, ég veit það ekki. Hvorki ég né Haukur Ingi drekkum eða reykjum þó að við höf- um gaman af því að fara út á lífið. Ég skemmti mér vel edrú og er ekkert að spá í hvort ég myndi skemmta mér betur ef ég fengi mér í glas. Ég hef aldrei haft þörf fyrir að breyta þessu." Með pabba til Danmerkur Ragnhildur ætlar að nota sumarið til að hlaða batteríin enda búin að vera á fullu í allan vetur. Hún verður að sjálfsögðu að leika í leikritinu og ætlar einnig að kíkja tfl útlanda. „Ég og Haukur Ingi ætlum að fara eitthvað saman en svo ætla ég að draga pabba með mér til Danmerkur. Við Náin feðgin Ragnhildur segir pabba sinn hafa staðið eins og klett við hlið sér þegar móðir hennar lést. Hún segir þau ekki sfður félaga en feðgin. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir Ragnhildur segir að byðist henni áhugavert hlutverk myndi hún ekki neita. Hún hefur samt lítið spáð í hvort hún ætli að leggja leik- listina fyrir sig. bjuggum þar í fjögur ár, þegar ég var tveggja til sex ára, svo við ætlum að heimsækja gamlar slóðir og upplifa góðar minningar frá því mamma var með okkur. Það verður gaman að sjá þetta allt aftur sem mér fannst svo stórt þegar ég var h'til svo þetta verður skemmtflegt," segir hún brosandi. Þessa dagana er Ragnhildur á fullu í próflestri en prófunum lýkur 12. maí. Það sem er næst á dagskrá hjá henni er að kynna Eurovision-stigin fyrir hönd íslands og hún er afar spennt fyrir verkefninu þótt hún hafi ekki alltaf fylgst vel með keppninni. „Ég byrjaði að fylgjast með þessu fyr- ir alvöru þegar Birgitta Haukdal vin- kona min keppti og síðan hef ég horft á þetta. Ég held að Selmu eigi eftir að ganga vel enda er hún svakalega fær og verður landinu eflaust tíl sóma svo þetta verður mjög spennandi." Gaman að öllu Ragnhildur stefnir á framhalds- nám eftir sjúkraþjálfunarnámið en hefur ekki ákveðið hvað það verður. „Ég gætí trúað því að ég fari í lífeðlis- fræði eða stjómun á heilbrigiðssviði. Ég hef samt þann galla að ég hef svo ótrúlega breitt áhugasvið, mér finnst næstum allt skemmtilegt, nema kannski að skúra. Það verður því bara að koma í ljós hvað ég geri, hvort ég fer í framhaldsnám eða geri bara eitt- hvað allt annað." indiana@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.