Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2005, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2005, Qupperneq 13
DV Fréttir LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2005 13 Forsjárlausir feður afskiptir? Velferðarráð Reykjavflair ætlar að láta Velferðarsvið borgarinnar taka saman minnisblað um stöðu forsjár- lausra feðra. „í minnis- blaðinu verði bent á leiðir til að meta hvað sé hæft í fullyrð- ingum um að forsjárlausir feður mæti af- gangi í ís- lensku velferðarsamfélagi, einkum þeir sem þurfa á félagsþjónustu sveitarfé- laga að halda. í framhaldi verði ákveðið hvort nauð- syn sé á frekari úttekt eða viðbrögðum," segir í tillögu Stefáns Jóns Hafstein sem velferðarráðið samþykkti einróma. 365 fiskar til sýnis Listasýningin 365 fisk- ar eftir tékkneska lista- manninn Martin Smida verður opnuð í dag í Listasafni Reykjanesbæj- ar í Duushúsum. Það verður sendiherra Þýska- lands á íslandi, Johann Wenzl, sem opnar sýn- inguna enda hefur lista- maðurinn starfað í Þýskalandi mestan hluta starfsævi sinnar. Hráefiii skúlptúranna kemur úr öllum áttum og eiga verkin fátt annað sameig- inlegt annað en að þau minna öll á fiska, þó mis- jaftilega mikið. Styrkja geðveika Á aðalfundi Samfés sem haldinn var 28. apríl 2005 var byggingarsjóði Barna- og unglingageðdeildar af- hentar 2 milljónir króna sem unglingar í félagsmið- stöðvum landsins söfnuðu með sölu á armböndum ílok fræðsluvik- unnar „Geð- veikir dagar“ í lok febrúar. Sölu armbandanna verður haldið áfram í félagsmið- stöðvunum, hjá Samfés og víðar. Vonast unglingarnir til að geta lagt svipaða upp- hæð af mörkum til BUGL á haustdögum. Kennt að gróðursetja Starfs- og endurmennt- unardeild Landbúnaðarhá- skóla ísJands á Reykjum í Ölfusi mun bjóða upp á eitt námskeið í vor fyrir sumar- búðstaðaeigendur. Nám- skeiðið verður haldið á Reykjum í Ölfusi laugar- daginn 4. júní. Leiðbein- endur verða þau Kristinn H. Þorsteinsson, garðyrkju- stjóri Orkuveitu Reykjavík- ur og Guðríður Helgadóttir, forstöðumáður Starfs- og endurmenntunardeildar Landbúnaðarháskólans. Þau eru jafnframt umsjón- armenn garðyrkjuþáttarins „í einum grænum" í sjón- varpinu. '\ y • ’!/■ U - tHjr. Ungur maður lést þegar eldur kom upp í heimahúsi á Sauðárkróki í byrjun desem- ber á síðasta ári. Meðan bærinn syrgði var Hjörtur Björnsson, félagi mannsins sem lést, ásakaður um að hafa orðið vini sínum að bana. Ríkissaksóknari hefur nú fellt niður málið á hendur Hirti sem getur því um frjálst höfuð strokið. Móðir Hjartar segir þungu fargi létt af fjölskyldunni. Hjörtur Björnsson ekki ákærður „Þessu máli er lokið og enginn verður ákærður," segir Ríkharður Másson, sýslumaður á Sauðárkróki. í desember á síðasta ári kviknaði eldur í heimahúsi í bænum eftir að nokkur ungmenni héldu partí um nóttina. Ungur drengur, Elvar Fannar Þorvalds- son, lést í brunanum. Hjörtur Björnsson, góður vinur Elvars, bjargaðist en fékk eftir brunann réttarstöðu grunaðs manns. Hjörtur var grunaður um að hafa kveikt eldinn og orðið einum besta vini sínum að bana. Rfldssaksóknari sá ekki ástæðu til að gefa út ákæru á hendur Hirti og var málið látið falla niður. Hjörtur er því saklaus af þeim hörmulega verknaði sem hann var sakaður um. Rflcharður Másson sýslumaður segir brunann samt óupplýstan. „Það verður enginn ákærður i þessu máli,“ segir hann. Erfiðurtími Þungu fargi var létt af fjölskyldu Hjartar þegar niðurstaða rfldssak- sóknara varð kunn. Móðir Hjartar segir málið hafa fengið mikið á fjöl- skylduna. „Þetta hefur verið erfiður tími en við erum fegin að málinu er lokið,“ segir Guðríður Hansdóttir, móðir Hjartar. Sjálfur sagði Hjörtur í viðtali við DV í febrúar að líf hans væri nánast í rúst eftir að ásakanir á hendur hon- um voru gerðar opinberar: „Maður er stanslaust hugsandi um þetta. Fjölskylda mín hefur hjálpað mér og vinir mínir en verstar eru samt sög- umar í bænum." Óupplýst mál Eins og fram kemur hjá Rflcharði Mássyni sýslumanni er bruninn enn óupplýstur. í upphafi var talið að kviknað hefði út frá sígarettuglóð og er sá möguleiki því enn fyrir hendi. Bruninn vakti mikinn óhug hjá þjóðinni enda var drengurinn sem lést í blóma lífsins. Þá var björgunin á þeim sem lifðu af frækileg, ung stúlka á efri hæðinni kastaði sér nið- ur af svölum og reykkafarar fundu Hjört nær dauða en h'fi á stofugólfinu inn í húsinu. „Við höfðum verið að skemmta okkur kvöldið áður því einn úr hópnum átti afinæli," sagði Hjörtur í umræddu viðtali um partíið sem endaði með skelfingu eina kalda vetr- arnótt á Sauðárkróki síðastaári. simon@dv.is Hjörtur Björnsson á Sauðárkróki Ekki ábyrgur fyrir brunanum á Sauðárkróki. Selfyssingar bæta ekki milljónatap Deilur um bílalúgusölu og deiliskipulag Davíð Smári fær ekkert Idolstjaman og ballöðusöngvar- inn Davíð Smári Harðarson fær ekki túskilding með gati frá sveitarfélag- inu Árborg. Davíð hafði sent bæjaryfirvöld- um erindi með ósk um fjárstuöning. Bæjarráðið vísaði máli Davíðs til menningarmálaneftidar. í DV þann 15. apríl kom fram að hann óskaði ekki eftir ákveðinni upphæð. Sjálfur mæti hann vinnu- tap sitt, á meðan á Idol stóð, á eina milljón króna: „Þá er ég að tala um útborguð laun því ég var með góðar tekjur í Kárahnjúkum sem mér finnst sjálfsagt að fá eitthvað upp í hvernig sem ég fer að,“ sagði Davíð Smári við DV fyrir tveimur vikum. Menningarnefnd Árborgar tók loks mál Davíðs fyrir í gær. í ljósi þess að Davíð Smári er með lög- heimili á býhnu Glóru í Hraungerð- ishreppi var niðurstaðan eins og við var að búast: „Samþykkt að hafna styrkbeiðn- inni þar sem umsækjandinn er ekki búsettur í sveitarfélaginu Árborg og íjármunir þeir sem menningar- nefndin hefur til úthlutunar eru tak- markaðir." Jolli knésetur Hafnar- fjarðarbæ Söluturninn Jolli í Hafnarfirði bíður nú eftir skaðabótum frá Hafn- aríjarðarbæ vegna brota á deiliskipulagi. Eigendur söluturnsins áttu litía sjoppu í Flatahraun sem var ekki inn á deiliskipulagi. Sjoppan fékk leyfi fyrir bílalúgurekstri. Þá tók éigand- inn lóð í Helluhrauni og byggði nýtt húsnæði. Þegar bygging á því hús- næði var að ljúka fékk annar sjoppu- eigandi leyfi fyrir bflalúgu í Flata- hrauni. Því leyfi var í fyrstu hafnað í byggingarnefnd bæjarins og svo þrisvar í skipulagsnefnd. Leyfið komst á endanum í gegn með tveim- ur atkvæðum en níu sátu hjá. Ástæðan fyrir þessum málalokum var það álit bæjarlögmanns að bær- Soiuturninn Jolli Hefur þegar unnið mát gegn Hafnarfjarðarbæ sem snýr að broti á deiiiskipuiagi. inn gæti orðið skaðabótaskyldur ef hann samþykkti ekki bílalúgurnar. Aldrei var minnst á Jolla. Nú er málið komið í þann farveg að Hafnarfjarðarbær hefur verið fundinn sekur um brot á deiliskipu- lagi bæði í héraðsdómi og í Hæsta- rétti.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.