Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2005, Síða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2005, Síða 55
DV Menning LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2005 55 Það var fagnaðarefni þegar tilkynnt var að Þjóðleikhúsið flytti nú á vordögum nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson, ævi- sögulegt leikrit um þýskan heimspeking sem hafði mikil áhrif framan af síðustu öld og hefur á síðari tímum vakið áhuga manna að nýju. Frumsýning var á miðvikudagskvöld. lega sem listamaður að losna við það öryggi sem hann hefur búið við svo lengi, byrja nýjan þátt með ekkert í höndunum. Það er aftur Þórunn Sigríður sem reynist meginstefum verksins trú með leikmynd sem er glæsileg og að flestu þénug: þar takast á hinir sterku and- stæðinga skalans: rautt og grænt og gráminn verður millihturinn: myndlega er verk Þórunnar og lýsing Páls það sem stendur uppúr. Búningar Filippíu em stílfærðir: kókett og svörul þjónusta hjá guðfræði- prófessor er eins og hún hafi setið fyrir á dónapóstkorti. Skófamaður er hiægi- legt fetish hjá sumum leikurum og utanyfirkorselett orðið svo ofnotað að það hálfa væri nóg. Birgir er ekki nýjungagjam. Hann er íhaldssamur í tækniiegum efiium, trúir á rétt leikskáldsins og hefur gengist á hólm við leikstjóravald, heimtað fram- gang sinnar sýnar á sviðinu. Hann er mælskur í talsniði verkanna, hefur áhuga á árekstrum hins hefðbundna og uppreisninni, skoðar á sinn hátt hvem- ig uppreisnin tekst á við vanahugsun og fyrirstöðu valdskerfanna. Hann er póli- tískur höfundur í besta skilningi orðs- ins, reynir að hefja umræðu verka sinna á viturlegt plan burt fiá frásagnarhætti sem leitar áhrifaleiða í hversdagsmáli smásniðinna átaka. Fáttnýtt Verk hans um Nietzche lýtur hefð- bundinni sýn á heimspekmginn. Það sýnir mann ofurseldan aðstæðum sem brýst um í neti smáborgaraskapar nítj- ándu aldar, en ferst fyrir sjúkleika sem er ekki skýrður í verkmu og er þá tekinn um borð í hreyftngu sem var rótgróin í heimahögum hans; gyðmgahatur, dýrkun auðs, valds og þjóðemishug- mynda sem vom holdgervðar í systur hans, Etísabem. Á endanum verða sum- ar kenningar hans partur af harðstjóm nasista. Alit var þetta kunnugt og ljóst hjá flestum með almenna húmamska menntun. Birgir bregður ekki nýju ljósi á heimspekinginn og systur hans. Aumingja strákurinn Verkið fellur í tvennt fyrri hlutinn er leikinn í einni lotu í Þjóðleikhúsmu: á sjö árum tekst heimóttarlegur og past- urstítill akademiker við erfiðan fjárhag, flýr bemskuheimili sitt þar sem hann bjó við dekur og dýrkun kvenna, verður ástfanginn og er hafiiað, flýr Þýskaland og sest að í Turin þar sem hann verður geðveikur í einsemd og vesöld. í lífi hans takast á móðir og systir og á tíma- bití fríþenkjarinn Lou Salome. Gáfaður karlmaður á valdi þriggja kvenna. Skoplitlir baggar Myndm er skopleg í túlkun Hilmis Snæs. Fordekraður ofviti í bómufl borg- araskaparins býr yfir gáfum og manísk- um afköstum í bæklingaskrifum en er ófær um eðlilegusm mannlegu við- brögð: hann er hvorki sjálfbjarga um mat né mannlega snertingu. Sú forsenda dugar ekki til skilnings á geðsýkinni sem grípur hann að lokum. Hún skýrir heldur ekki vanmáttuga og innblásna prédikun hans gegn guði og valdi. Túlkun Hilmis er afar fagmann- lega unrún en ekki er hún hrífandi. Sú vonda kona í skugga þessa guðs á jörð er systirin Etísabet, sem um síðir verður tákn fúns demómska afls í menningu Evrópu. Hún er mun magnaðri persóna, enda er erindi hennar skýrara. Margréti Vil- hjálmsdóttur var heldur ekki skotaskuld að gera hana magnaða í nærveru og lék hana af innibyrgðum ofsa frá fyrstu stund til þeirrar síðusm. Forvitni áhorf- anda beinist líka alfarið að þeirri per- sónu: hennar örlög verða í verkmu öllu forvitnilegri en bróðurins. Hvaða skuld skal fómarlundm greidd? En þeirri spurrúngu er ekki nema að litlu leyti svarað, enda leggja bæði höfundur og leikstjóri persónu Etísabetar sem nei- kvætt afl og hyggja ekki að þeim dýpri þáttum. Klisjugerðin Síðari hlutinn snýst um orðspor Nietzche sem Etísabet smíðaði með poti og blekkmgum, ímynd hans í evrópsku samfélagi. Verkið fellur í tvennt. Leikhússtjóri (leikstjórinn) og höfúndur hafa átt í löngu samstarfi og því óskiljanlegt að verkið sé ekki betur unnið og fyrri hlutinn einn sýndur bættur og betri. Síðari hlutinn er snautt uppgjör við aukapersónur og loks lagt til við bamalega framsetningu á upp- gangi nasismans. Helsti veikleiki sýn- mgarinnar er hvað hún er yfirborðs- kennd í sviðslausnum, sumpart fyrir spara leikmynd og á stundum einfald- lega fyrir hugmyndaleysi. Sem dæmi má nefna Kristsmyndanotkun sem er einfaldfega kitsh - smekklaust bana- títet. Notkun á flugi sem táknmynd um frelsistilfinningu persónu verður bara kjánalegt. Tónlist sem framvinda og stemningsgjafi er í þrígang styrkt með tilvitnunum í Wagner á ofljósan hátt. Rautt og grænt Sviðsetningin öll vimar, tíkt og Sorg- in klæðir Elektm sem var síðasta svið- setning Stefáns, að hann þarf nauðsyn- Ofurmenni okkar tíma Þetta tókst semsagt ekki nógu vel. Hér er öllu tjaldað til: veldur sá sem á heldur, leikhússtjórinn velur sjálfan sig sem leikstjóra sem er gott dæmi um hvemig píramídahugsun í stjórn- un kallar á mistök. En það er tímans snið; nú um stundir em fáfengileg- ustu dæmin um það víða ofarlega í ís- lenska valdakerfinu. Ofurmennishug- sjónin ríður húsum eins og draugur: Eg veit bara allt best og kalla til skoð- anabræður svo allir verði sammála mér. Að sviðsetja snilldina En grunnurinn er verkið, leiktextinn. Það er ekki skýrt hvað Birgir vill segja í hátimbmðu verki um galinn mann. Kvenímyndir og túlkun þeirra í sýning- unni em heldur gamaldags úthrópun á konum sem bölvaldi í tífi viðkvæmra og gáfaðra drengja. Sem er fomeskjuleg heimssýn. Fátt er erfiðara en að endurskapa snillinga á svið, semja upp í þá daglegt þvaðrið og sáldra inn í hversdagsþras gullkomum úr bókum. Eftirmyndin bliknar alltaf andspænis ritsafiúnu og ævisögum í allri sinni smásmygli. Þess vegna er ekki hægt annað en óska að Birgir komi heim og taki að fjalla um ástand í okkar samfélagi sem hann nýlega lýsti sem blautri tusku í andliti sér. Páll Baldvin Baldvinsson 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.