Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2005, Blaðsíða 17
I>V Helgarblað
FÖSTUDAGUR 29. JÚLl2005 17
Bæði Astró og Rex voru langt á undan
sinni samtíð og reksturinn gekk ekki
upp ,enda stofhkostnaðurinn veru-
legur við staðina sem báðir bera vott
um hugrekki og sterka sýn eigenda
sinna, sem unnu með alþjóðlegum
listamönnum að fallegri hönnun sem
hæfði ekki miðborg Reykjavíkur á
sínum tíma. Eflaust hefðu báðir stað-
irnir notið vinsælda annarsstaðar í
heiminum, Rex í London og Astró í
Tokyo. Orkuboltinn Magnús kom að
ýmsum öðrum rekstri á þessum tíma
og var meðal annars einn af útgef-
endum h'fstflsblaðsins 24/7 sem
dreift var með Morgunblaðinu á
tímabfli. Rekstur blaðsins gekk illa og
var útgáfunni hætt eftir fáeina mán-
uði.
Hefur góða nærveru og mikla
útgeislun
Jóhann Þórarinsson sem rekur
Aktu-taktu og American Style hefur
verið félagi Magnúsar frá því þeir
voru pollar. Hann segir að auk þess
sem fram hafl komið sé hann mjög
skemmtilegur, hafi góða nærveru og
útgeislun, enda laðist allir að honum.
„í viðskipum er Maggi útsjónarsam-
ur og mikill skapari. Hugur hans er
alltaf á flugi og hann er fljótur að átta
sig á tækifærum sem aðrir sjá ekki.
Hann er góður skákmaður og það
endurspeglast í viðskiptunum. Hann
vinnur eins og skákmaður, teflir til
sigurs. Sú gáfa hjálpar honum og
þannig sér hann nokkra leiki fram í
tímann. Það gefur honum forskot
sem hann nýtir sér til fulls," segir Jó-
hann.
Þeir Jóhann unnu saman fyrir
mörgum árum að rekstri Astró og
hann minnist með ánægju þeirrar
samvinnu. „Maggi er heiðarlegur í
gegn, maður orða sinna. Hann er vel
að því kominn að hafa náð svo langt
sem raun ber vimi. Hann fer oft
óhefðbundnar leiðir, er alltaf að
skapa og á mjög auðvelt með að hrífa
menn með sér,“ segir hann og bætir
við að Magnús eigi einstaka foreldra,
mikið sómafólk sem hafl ýtt undir
sjálfstæði og frumkvæði hans. Þegar
Magnús rak Astró á sínum tíma átti
hann meðal annars fund með for-
stjóra Vífilfells. Þannig kynntist Þor-
steinn Jónsson honum. „Ég kunni
strax vel við hann,“ rifjar Þorsteinn
upp og segir að upp frá því hafi þeim
orðið vel til vina. Hann tekur undir
með öðrum vinum hans og nefnir
hve gegnumheill hann sé, umtals-
góður og umfram allt vænn og góður
drengur sem aldrei hallmæli
nokkrum manni. „Svo er hann eitur-
snjall og bráðvel gefinn. Það má auð-
veldlega sjá hvað skákin hefur kennt
honum því hann nýtur hennar í við-
skiptum. Það skemmtilega við Magga
er lfka hvað hann hugsar sjálfstætt,
hann tekur ekki sömu afstöðu og all-
ir hinir, lætur ekki mata sig, enda for-
dómalaus með öllu og kemur fram
við fólk af virðingu, hver sem á í
hlut,“ segir Þorsteinn og staðhæfir að
hann sé með vinsælli mönnum. Þor-
steinn segist sannfærður um að
Magnús eigi eftir að láta rækilega að
sér kveða, hann sé með mörg járn í
eldinum. „Heilinn í Magga er stöðugt
að vinna og hann á allt það sem hann
hefur áunnið sér fyllilega skilið."
Þyngdar sinnar virði í gulli
Margrét, eiginkona Magnúsar, og
Nína Filippusdóttir leikkona er mikl-
ar vinkonur. Gísli Örn Garðarson
leikari kynntist Magnúsi í gegnum
Nínu og þekkir hann í raun á annan
hátt en margir aðrir. Hann segir
Magnús með skemmtilegri mönn-
um, mikinn húmorista, húmanista
og þyngdar sinnar virði í gulli. „Ég
nýt þess að vera samvistum við
Magnús sem kann að njóta h'fsins
lystisemda og gerir það vel. Satt að
segja er Magnús með betri mönnum
sem ég hef kynnst, hvernig sem á það
er litið," segir Gísh öm.
Guðrún Svava Baldursdóttir, lög-
fræðinemi, systir Margrétar ber mági
sínum einnig vel söguna. Tengdafólk
hans er sama sinnis og sammála um
að Magnús sé hreint gull af manni.
Hrífi alla með sér og alltaf jafngaman
að vera nærri honum. „Það er
ómögulegt annað en að tala vel um
hann, hann á ekki neinar slæmar
hliðar til, ahgjör öðlingur," segir
Guðrún Svava.
Blanda af heimsmanni og
sveitastrák
Sigurður Bollason er sagður
blanda af heimsmanni og sveitastrák,
hugmyndaríkur, framtaksamur,
vinnusamur og lætur verkin tala.
Hann hallmælir engum, gengur
aldrei á bak orða sinna, skiptir aldrei
skapi og er mikill fjölskyldumaður,
hugsuður sem segir ekki margt en
framkvæmir því meira. í hnotskum er
þetta lýsingin sem á við Sigurð Bolla-
son en vinir hans voru flestir sam-
mála um kosti hans og notuðu ótrú-
lega oft sömu orðin þegar til þeirra
var leitað.
Þeir félagar Sigurður og Magnús
eru um margt ólíkir en eigi að síður
ótrúlega lflcir. Báðir eru hreinskiptir
og menn orða sinna en á meðan
kátínan og gleðin kraumar í Magnúsi
sýnir Sigurður tilfinningar sínar ekki
svo glöggt. Hann þykir um margt lflc-
ur föður sínum, hægur og rólegur,
heldur sér dáhtið til hlés, en það sem
menn átta sig ekki á, hann fylgist
gjörla með öllu sem fram fer án þess
að nokkur verði þess var.
Mikið keppnisskap og sterkar
taugar
Hrafn Árnason í Kaupþingi hefur
þekkt Sigurð frá æsku. Þeir voru sam-
an í í borðtennis hjá KR en Hrafn seg-
ir Sigga snjallan borðtennisleikara.
„Það var svo merkilegt að hann var
alltaf bestur þegar á reyndi. Stóð sig
alltaf betur í leikjum en á æfingum.
Karen Millen
Kevin Stanford og fyrrum kona hans Karen
Millen stofnuðu fyrirtækið á níunda
áratugnum.
Ég held að það lýsi honum d og sýni
hve keppnisskapið er mikið og taug-
amar sterkar," segir Hrafn.
Hrafn segir Sigurð afar sterkan
persónuleika, sem laði að sér fólk.
Eigi að síður sé hann nokkuð seintek-
inn og þurfi tíma til að kynnast. „Siggi
er mikill vinur vina sinna og mundi
seint bregðast þeim. Hann hefur eitt-
hvað við sig sem laðar fólk að, er
skemmtilegur í góðra vina h'ópi og
hrífur menn auðveldlega með sér.
Hann er sterkur samningamaður,
hefur hæfileikann til að greina kjam-
ar frá hisminu og flækir sér ekki £
smáatriði en einbhnir á það sem
skiptir máh. Innkoma hans í Karen
Millen ber vitni um það hve gott hann
á með að semja og laða að sér fólk en
á þeim tíma var Kevin Stanford ekki
að velta því fyrir sér að selja fyrirtæk-
ið," bendir Hrafn á vfll meina að fáir
hafi þann hæfileika sen hann hafi til
að mynda svo traust tengsl í við-
skiptaheiminum. „Ég held að enginn
hafi meiri þekkingu á tískubransan-
um en hann."
Vmir hans em sammála um að
Sigurður fari þangað sem hann æth
sér. Hann fari sínu fram án þess að
nokkur taki eftir því. „Hann hefur
ótrúlega stjórn á skapinu og ég man
ekki eftir að hafa séð hann reiðast,"
segir Ómar Kaldal í KB banka en þeir
hafa þekkst lengi. Undir þetta tekur
Þorsteinn Ólafsson í KB banka í Lúx-
emborg og bætir við að Sigurður tali
minna en framkvæmi meira. Hann
velji sér fáa en trausta vini. Hann sé
orðvar og traustur en hann orðar það
svo að loforð hans séu eins og meitl-
uð í stein.
Lánsamur að kynnast Nönnu
„Maður veit ekki alltaf hvað Siggi
er að hugsa en hann hugsar mikið, er
alltaf að vinna uppi í kolli, bráð-
greindur og klár," segir Þorsteinn
Ólafsson um vin sinn Sigurð. „Hann
býr yfir þeim aga sem menn þurfa til
að komast langt. Veit alltaf hvað hann
er að gera og hefur stjórn á aðstæð-
um, án allra öfga, til dæmis hættir
hann að borða þegar hann er saddur í
stað þess að troða í sig eins og margir
gera þegar þeir komast í feitt," segir
hann.
Vinir hans em sammála um að
þau eigi vel saman, Sigurður og
Nanna. Hann hafi verið lánsamur að
kynnast henni, enda sé hún mikil-
vægur þáttur í því sem hann sé að
gera. Hann sé höfðingi heim að
sækja, skemmtilegur og gaman að
vera nærri honum. „Siggi er eldklár
og sér tækifæri sem aðrir sjá ekki,
hann hefur líka hugrekki til að taka af
skarið og framkvæma og gáfur til að
meta stöðuna rétt. Persónutöfrar
hans fleyta honum langt og þessi yfir-
vegun og ró hefur góð áhrif á fólk.
Hann haggast ekki á hverju sem
gengur og það er aðdáunarvert að
fylgjast með hve mikla sjálfstjóm
hann hefur," segir Ómar.
Bent hefur verið á að þegar Sig-
urður var í vinnu hjá NTC hér heima
hafi verið mikill uppgangur og hver
verslunin á fætur annarri hafi verið
opnuð. Síðan hann hvarf á brott og
fór að sinna eigin viðskiptum hafi
ákveðin kyrrstaða rflct. Undir þetta
tekur Bolli Kristinsson, faðir Sigurðar.
Hann segir að það sé ekki trúverðugt
að hann tali um son sinn, en það sé
rétt, Sigurður fari það sem hann ætli
sér án allrar fyrirferðar.
Framhaldá
næstusíðu
ALAFOSS
Verslun Álafossveg 23
270 Mosfellsbæ
Hjá okkur færð þú ódýrar lopapeysur
og ullarnærföt fyrir útileguna.
15 Km North of Reykjavík
A Place With History