Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2005, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ2005
Helgarblað DV
SAMANBURÐUR
stiötwufnefvucuuicfr
Jóhanna Kristín Tómasdóttir starfar sem Feng Shui-ráðgjafi
og veit svo sannarlega hvað hún syngur þegar Feng Shui
spekin er annars vegar. Okkur lá forvitni á að vita meira
um spekina.
:aSjp;
Johanna Kristín Tómasdóttir I
Jóhanna er Feng Shui-sérfræð- I ', •
mgur sem heldur úti vefsetrinu
www.fengshui.is
„Feng Shui eru aldagömul kín-
versk fræði sem í stuttu máli mætti
lýsa sem tilraun mannsins til að lifa
í samhljómi við umhverfi sitt," seg-
ir Jóhanna Kristín Tómasdóttir,
Feng Shui ráðgjafi. „Samkvæmt
fræðunum er flæði lífsorkunnar
sem býr í okkur og öllu umhverfi
okkar sá áhrifavaldur sem ræður
því hvernig okkur líður og farnast í
lífinu almennt," útskýrir hún og
bætir við: „Feng Shui virðist fram-
andi og byggir á flóknum fræðum
en þó má til sanns vegar færa að
fræðin byggi á almennri skyn-
semi," segir Jóhanna og veit greini-
lega hvað hún syngur.
Lífsorkan frá sjónum
„Á íslandi er gaman að veita fyr-
ir sér staðsetningu býla og þá sér
maður fljótt að þeim bæjum og
býlum sem hefur farnast hvað best
eru einnig best staðsett bæði hvað
varðar staðsetningu bæja í um-
hverfinu og hvernig þau tengjast
samgöngum," segir Jóhanna þegar
talið berst að því hvernig nota má
fræðin þegar staðsetningar eru
annars vegar. „Þau býli sem fyrst
fóru í eyði voru yfirleitt berskjöld-
uð fyrir vatni og vindum og langt
frá samgönguleiðum. Það er heldur
engin tilviljun að þorp og bæir
byggjast upp við ströndina því með
sjónum kemur lífsorkan, sem líka
færir björg í bú.“
Hugrækt mikilvæg í nútíma-
þjóðfélagi
„Það er okkur jafnnauðsynlegt
að rækta hugann og h'kamann"
segir Jóhanna sem kennir fslend-
ingum einnig hugrækt. „Það þýðir
elckert að mæta í líkamsræktar-
stöðina í eitt skipti og líta svo á að
nú sé maður búinn að rækta lík-
amann fyrir lífstíð. Það sama á við
um hugrækt. Hugrækt má líka kalla
„innra Feng Shui". Við þurfum
jafnmikið á því að halda að losa
okkur við gamlar og úreltar hugs-
anir eins og til að losa okkur við
óþarfa dót. Til að bæta hugará-
stand okkar verðum við að losa
okkur við gamlar hugsanir og setja
nýjar í þeirra stað. Það þurfum við
að gera reglulega. Þótt við lítum líf-
ið björtum augum í dag getur það
breyst á morgun. Það er oft sagt að
við höfum ekki stjórn á því hvað
kemur fyrir okkur, en við getum
stjórnað því hvernig við bregðumst
við," segir hún einlæg. „Hugræktin
er ekki annað en að læra að bregð-
ast við lífinu eins vel og okkur er
unnt - á jákvæðan og uppbyggileg-
an hátt og án þess að vera sífellt að
gagnrýna og dæma það sem fyrir
augu ber".
Lífsorkan má ekki staðna
„Bestu ráðin sem ég get gefið er
að losa híbýli okkar við óþarfa dót.
Híbýli.okkar eru full af dóti sem við
erum löngu hætt að nota bæði í
geymslum, bflskúrum, skúffum og
skápum, auk þess sem við röðum f
kringum okkur alls konar fötum og
„skrauti" sem við höfum enga þörf
fyrir og finnst jafnvel ekki fallegt.
Lífsorkan staðnar í kringum
óhreyft og óskemmtilegt dót og
það hefur áhrif á líðan okkar. Við
erum oft orkulaus án nokkurrar
sýnilegrar ástæðu og þá er gott að
líta í kringum sig og sjá hvað það er
sem stöðvar orkuflæðið," segir Jó-
hanna þegar hún gefur okkur góð
^ Spáð í Jóhönnu
Jóhanna er fædd 24. nóvember og er tilheyrir þar af leið-
andi stjörnumerki bogmannsins, merki sannleiksleitandans
og heiöarleikans. Gaman er aö sjá aö Jóhanna fer ekkert hjá sér yfir vit-
neskju sinni eða skoðunum og er ákaflega næm (kemur sér vel þegar
Feng Shui-ráðgjöfin er annars vegar). Hún er áköf og glaölynd í starfi og
leik og ekki má gleyma aö minnast á aö ein stærsta gjöf Júpfters (áhrifa-
stjörnu bogmanns) til hennar er óbugandi léttlyndi og bjartsýni sem
^leytiiHtennhriarkviss^^t^^raumuiT^ínum^^^^^^^^^^^^^^
Sameinuð eruþau auðmjúk,sjálfstæð,stríðin og töfrandi!
Sjálfstæt og stríiin
Stjörnur Jóns Ásgeirs og Ingi-
bjargar eru mjög sjálfstæðar og
þau halda því eflaust fram að íjar-
vera styrki sambandið sem er alls
ekki fjarstæða í þeirra tilfelli.
Hrúturinn (Ingibjörg) birtist með
gott skopskyn, er áberandi stríð-
inn en vatnsberanum QónÁsgeir)
líkar það vel á meðan hann fær
nægan tíma til að stunda eigin
áhugamál og upplifa einveruna
þegar honum sýnist.
áf
Vatnsberi (20.jan - 18.feb)
Jón Ásgeir Jóhannesson
27/01/1968
Hrútur (21.mars - 19.april)
Ingibjörg Stefania Pálmadóttir
12/04/1961
- fordómalaus
- auðmjúkur
- hæfileikarikur
- sjálfstæður
- andlega sinnaður
- ákveðinn
- kurteis
- kraftmikill
- ástríðufull
- töfrandi
- gæfusöm
- sterkur persónuleiki
- bjartsýn (sigurvegari)
- óþolinmóð
- gott skopskyn
- tápmikil
- hugsjónakona
ráð samkvæmt spekinni.
„Eitt vil ég þó taka fram varð-
andi þetta. Við megum ekki taka
dót annarra fjölskyldumeðlima og
henda án þeirrar vitundar. Það má
ekki nota Feng Shui sem afsökun
fyrir því að henda forljótri peysu
eiginmannsins eða rífa niður
plaköt unglingsins" segir hún. „Við
ráðum aðeins yfir okkar eigin dóti
og allir verða að vera sáttir við það
sem fær að fjúka í ruslafötuna - nú
eða í Góða hirðinn, Rauða krossinn
eða Hjálpræðisherinn," bætir hún
við.
Fræðin hafa áhrif á allt
„Það er oftast bara hringt eða
mér sendur tölvupóstur og ég beð-
in að skoða húsnæði hjá fólki"
útsksýrir hún brosandi, aðspurð
um þjónustu sína við íslendinga
sem vilji nýta sér spekina. „Þá fer
ég á staðinn, skoða húsnæðið og
sendi skýrslu í framhaldi af heim-
sókninni með niðurstöðunum,"
segir hún og bætir við að þetta er
einfaldlega hluti af því að búa í nú-
tímaþjóðfélagi. „Það er reyndar
mjög misjafnt hvað gerist í heim-
sókninni sjálfri. Stundum geri ég
breytingar á staðnum í samráði við
heimilisfólkið, stundum aðstoða ég
við húsgagna- og litaval og stund-
um legg ég til breytta herborgja-
skipan, allt eftir því hvernig heimil-
ið lítur út gagnvart Feng Shui-lög-
málunum," segir Jóhanna en ráð-
gjöfin hennar miðast aðallega við
heimilið.
Fékk draumajobbið
„Einn nemenda minna fór heim
eftir námskeið og tók niður spegil-
inn sem hafði verið beint á móti
dyrunum inn í íbúðina. Viku
seinna fékk maðurinn hennar
draumajobbið, en hann hafði verið
atvinnulaus í marga mánuði," segir
hún. „Þá gerði ég fasteignaráðgjöf
hjá kunningjakonu sem hafði verið
með íbúðina sína á sölu í sex mán-
uði. Innan viku höfðu tvö tilboð
borist og innan 10 daga var íbúðin
seld". „Svo held ég því fram að ég
hafi komið eiginmanninum upp í
hjónarúmið eftir að hafa breytt
uppröðun í hjónaherberginu, en
hann hafði lengi sofið í öðru her-
bergi," útskýrir hún og brosir.
Feng Shui ráð
Jóhönnu:
Feng Shui -
hvenær?
Lögmál Feng
Shui henta alltaf
- á öllum tímum.
Þó eru þau ein-
staklega áhrifarík
þegar sóst er eftir breytingu frá
ríkjandi ástandi, t.d. þegar flutt er
í nýtt húsnæði, við makaleit, öfl-
un tekna o.s.frv. Þá er einnig gott
að skoða ástandið þegar áföll
dynja yfir, svo sem heilsuleysi, at-
vinnumissir og/eða skilnaður.
Feng Shui -
hvers vegna?
Við beitum
lögmálum Feng
Shui einfaldlega
til þess að okkur
farnist betur í lífinu.
Heimili okkar og starfsumhverfi
gefur ekki aðeins glögga mynd af
því hver við erum heldur einnig
hver við viljum vera. Ef allt er á tjá
og tundri endurspeglar það bæði
fjárhagslega og tilfinningalega
óreiðu. Ef hins vegar allt er h'nt og
snyrtilegt er líklegra að allt sé í
stakasta lagi.
Feng Shui - hvar?
Lögmál Feng Shui eiga við alls
staðar, á vinnustað,
heimili - já, jafhvel
í fatavali. Banda-
ríkjamenn - sem
fæstir kunna skil
á Feng Shui -
hafa þó vitað ára-
tugum saman að ætli
þeir að eiga möguleika á að fá starf
mæta þeir í starfsmannaviðtal í
dökkbláum fömm. Dökkblár er lit-
ur vatnsins og vatn er einmitt
ffumefnið á svæði starfsframa.
Þarna hafa Bandaríkjamenn beit
lögmálum Feng Shui án þess að
hafa hugmynd um það en reyndin
hefur sýnt að það virkar.