Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2005, Blaðsíða 54
Helgarblað DV
54 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ2005
Ofurstirnið Robbie Williams hefur
nú gert við risafyrirtækið T-Mobile
byltingarkenndan
samning, sem er
líklegur til að
skila honum
milljónum
“'punda. Segja
sérfræðingar
að þetta muni
breyta tónlistar-
bransanum um alla
framtlð. Samningurinn er alveg
nýr afnálinni og felur I sér að nú
geta aðdáendur húðflúraða popp-
arans fengið glæný lög send I sím-
ana sína, áður en þau koma út á
geisladiskum. Auk þess eiga þeir
nú möguleika á því að hitta
átrúnaðagoð sitt með því að taka
þátt I sérstakri símakeppni. Svo fá
þeir veggspjöld og sérstaka
hringitóna með lögum hans. Lik-
legt má teljast að aðrir tónlistar-
menn muni nýta sér þessa leið til
að koma list sinni á framfæri.
Brandarakallinn Bruce Willisernú
heldur betur búinn að koma sér í
vandræði.
Þannig var að
Bruce var
mættur í
banastuði í
partí í New
York-borg.
Hann stóð og
spjallaði við
fjölda fólks þegar umræðan fór
skyndilega að snúast um kynlíf.
Bruce sneri sér þá að konu sem
stóð nálægt og spurði„Ert þú með
- einhver plön varðandi kynlíf i
kvöld?" Konan rauk út eins og
byssubrennd, sármóðguð. Bruce
hefur sagt að hann hafi aðeins
spurt konuna í gríni og tekur lög-
fræðingur hans Marty Singer und-
ir það.„Hann var bara að djóka,
það er ekkert á bakvið þetta,"
segir lögfræðingurinn.
Kate Bosworth hef-
ur viðurkennt
að hún sé í
tygjum við
ástralska
karlfyrirsætu
að nafni
Lundi Shac-
kleton. Hin gull-
fallega leikkona segir
að þau hafi fyrst fellt hugi saman
þegar hún var að leika í nýju
myndinni um ofurmennið Clark
Kent, Superman Returns, fyrr á
~ þessu ári. Hún lauk samt sam-
bandinu sem þá var á frumstigi
þegar þáverandi „haltu mér-
slepptu mér" kærastinn hennar,
sjálfur Orlando Bloom, kom á
tökustað til að reyna að gefa sam-
bandinu enn eitt tækifæri. Nú hef-
ur Bloom hætt tilraununum og
tælt fyrrum kærustu sina Siennu
Miller aftur í faðm sinn.
Hreimur Örn Heimisson tónlistarmaður og einn ástsælasti sonur landsins, bíður
nú fullur tilhlökkunar eftir því að verða faðir og segist hvergi nærri hættur að
vinna í sínum málum erlendis. Margt er nú að gerast í lífi þessa unga hæfileika-
manns sem lítið hefur látið á sér bera á síðustu árum en nýlega skaut hann aftur
upp kollinum þegar sjálfur Árni Johnsen fékk hann til að bjarga .jóðhátíðarlaginu.
Hreimurörn Verð-
andifaðirog
bjargvættur þjóðhá-
tiðariagsins.
DV-mynd Stefán |
„Ég reyni bara að vera duglegur
metrómaður," segir Hreimur af
sinni alkunnu einlægni þegar hann
er spurður hvað hann sé að gera
þessa dagana. Samkvæmt þeim
skilningi sem Hreimur leggur í orð-
ið metró-maður er það ljúfur mað-
ur sem reynir hvað hann getur til að
standa sig í vinnu og kemur vel
fram við konuna sína, enda nóg að
gera hjá þeim hjúum þessa dagana.
„Við eigum von á fyrsta barni
okkar 20. september og það er nóg
um að hugsa, maður veit í raun
ekkert hvernig maður á að vera en
það er mikil tilhlökkun i okkur,“
segir Hreimur og það má glöggt
greina eftirvæntingu í rödd hans.
Stelpunafnið ákveðið
Hann segir þau ekki vita kynið á
barninu sem þau bíða nú bæði eftir
en viðurkennir þó fúslega að sig
hafi langað mikið til að fá vita það.
„Maður verður bara að vera þolin-
móður, þetta kemur víst allt saman
í ljós, en mikið langaði mig til að fá
að vita það svo maður viti aðeins
betur við hverju maður eigi að bú-
ast," segir hann kímnislega.
Þótt Hreimur og Þorbjörg
unnusta hans séu bæði úr eystra
Rangárþingi, því sögufræga svæði
þar sem atburðir Njálu eru sagðir
hafa átt sér stað, segir hann fullvíst
að nafn barnsins verði ekki fengið
úr þeirri bók. „Við höfum valið
nafnið á barnið ef það verður stúlka
en strákanafnið er enn óákveðið,"
svarar hann leyndardómsfullur í
rómi.
Þjóðhátíðarlaginu bjargað
Það er margt fleira að gerast í lífi
Hreims, þótt léttvægara sé. Nýlega
var hann ræstur út í ekki ómerkara
verkefni en að bjarga þjóðhátíð í
Eyjum en fyrir stuttu vantaði þessa
merku hátíð eitt af sínum aðals-
merkjum - sjálft þjóðhátíðarlagið.
Hreimur vill ekki eigna sér alltof
mikinn heiður fyrir þessa fræknu
björgunaraðgerð.
„Við Vignir gítarleikari og laga-
smiður í írafári gerðum þetta sam-
an. Mér finnst hann í raun eiga
megnið af þessu og að ég fái of mik-
ið hrós fyrir þetta," svara hann með
hógværð.
Gengur ekki að tónlistinni
vísri
Þótt hann hafi lengi verið við-
loðandi tónlistarbransann segist
hann aldrei setjast niður með það
eitt í huga að semja lag, það sé með
sig eins og aðra listamenn, að oft
verði þeir að bíða eftir því að and-
inn komi yfir þá. Þegar það gerist
fari hlutirnir fljótlega að rúfla. Þetta
sé bara ákveðin stemming sem
hann upplifi og vinni útfrá, alls ekki
sjálfgefin og ekki eitthvað sem hann
geti gengið að vísu alla ævi þótt
hann voni það auðvitað.
„Ég veit að ég hef nef fyrir meló-
díum en ég þarf að bæta textasmíð-
arnar hjá mér," segir Hreimur en
hann telur framfarir ekki vísar
nema með sjálfsgagnrýni og dugn-
aði.
Hefur ekki gefið heims-
frægðina upp á bátinn
Undanfarin ár hefur lítið farið
fyrir Hreimi f tónlistarlífinu þótt
hann sé hvergi nærri gleymdur.
Hann segir ástæðuna þó ekki þá að
hann sé hættur í tónlistarbransan-
um. „Ég hef ofsalega gaman að tón-
list og því að koma fram, aftur á
móti hef ég ekki gaman að frægð-
inni sem slíkri, ég er í raun svo mik-
ill rólegheitamaður og vil stundum
vera út af fyrir mig," segir hann þótt
hann neiti því ekki að hann stefni
enn á heimsfrægð.
„Land og synir eru alls ekki
hættir en maður hefur lært að sýna
þolinmæði í þessu, sérstaklega eftir
að við gerðum saminginn við
Warner Brothers," segir hann en
eins og kunnugir vita stóð litla ís-
lenska hljómsveitin um stund á
barmi heimsfrægðar eftir þá samn-
inga. „Atburðirnir 11. september
urðu til þess að mjög dró úr áhuga
Bandaríkjamanna á erlendum tón-
listarmönnum og þeir fóru í aukn-
um mæli að sinna eigin fólki. Það
má segja að við höfum verið á
kolröngum tíma að þessu en við
erum ekkert hættir að vinna og
sjálfur stefni ég á að gefa út sóló-
plötu næsta ár,“ segir Hreimur von-
góður.
Stefnir ekki aftur í sveitina
Það er greinilega margt í kortun-
um hjá sveitastráknum ljúfa sem
eins og flestir vita afgreiðir nú við
góðan orðstír í Byggt og búið í
Smáralind. Hann segist ekki stefna í
sveitina því þótt hann sé alinn upp
við búskap og hafi unnið öll þau
störf sem þar þarf að vinna hafi
hugurinn alltaf hvarflað annað.
„Ég er spurður nokkrum sinnum
á dag út í það hvað ég sé að gera í
afgreiðslustarfi," segir hann hlæj-
andi. „Það þýðir samt ekki að ég
hafi hætt að sinna öðru," segir
Hreimur að lokum. Framundan er
amstur hversdagslífsins enda strák-
urinn með mörg járn í eldinum
hverju sinni. karen@dv.is
Fyrstu seríunni af Sylvíu Nótt lokið
Sylvía Nótt í sumarfrí
„Fyrsta serían er búin," segir
Ágústa Eva Erlendsdóttir, betur
þekkt sem Silvía Nótt, aðspurð
hvort hún sé hætt í sjónvarpinu. í
síðasta þætti af Sjáumst með Silvíu
Nótt sást tmga gelgjan kveðja
Magnús Ragnarsson sjónvarps-
stjóra Skjás eins og grátbiðja um að
fá að vera áfram í sjónvarpinu.
Silvía mun þó ekki hafa verið tekin
af dagskrá út af slæmu áhorfi eða
- lélegum viðtökum, enda þættimir
vinsælir og hafa vakið stormandi
lukku. Fyrstu þáttaröðinni er bara
lokið og segir ólyginn að önnur sé á
teikniborðinu. Agústa getur ekki
staðfest neitt um það og segir allt
vera óráðið um framhaldið.
Ljóst er að önnur þáttaröð
mundi falla vel í kramið hjá land-
anum en til þess var tekið hve þætt-
imir bötouðu eftir því sem leið á
þáttaröðina. Silvía Nótt þykir
karakter sem á fullt erindi í sjón-
varp og viðtalstækni hennar er
bráðskondin oft á tíðum. Umdeild
en æðisleg.
soli@dv.is
t