Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2005, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Símahneyksli
í Frakklandi
í vikunni komst upp um
samráð þriggja stærstu
símafyrirtækjanna þar í
landi. Dagblaðið Le Canard
Enchaine birti gögn sem
bentu til þess að yfirmenn
Orange, SFR og Bouygues
Telecom hefðu hist reglu-
lega á árunum 1997 til 2003
til að skiptast á upplýsing-
um um verðlag og mark-
aðsáherslur. Thierry Breton
fjármálaráðherra sagði að
ef þetta reyndist rétt yrði
fyrirtækjunum refsað.
Góðan daginn hér!
Aldreiþessu vant geta
áhorfendur lent I hörku-
samræðum við dýrin
sem eru tilsýnis.
Um helgina stendur yfir nýstárleg sýning í dýragarðinum í Lundúnum. Yfirmenn
garðsins ákváðu að bæta við garðinn dýrategund sem aldrei áður hefur verið þar
til sýnis, homo sapiens, hinn viti borni maður.
■\v> „ ,
.
Sðfisi
tm
Homo sapiens í dpgorði
Undralyf
gegn eyðni
Donance Kangausaru
frá Zimbabwe heldur hér á
poka af Moringa-dufti.
Hann segist hafa verið
eyðnismitaður í 15 ár og
segir duftið virka undravel
gegn eyðni. Hálfgert Mor-
inga-æði hefur gripið um
sig í Zimbabwe, sem er
með eitt hæsta hlutfall
eyðnismitaðra í heiminum.
Heilbrigðiseftirlit landsins
telur hins vegar ósannað að
duftið hafi nokkur áhrif.
Þessa dagana fer fram
risastór bílasýning í
Moskvu í Rússlandi. Hún
heitir Motor Show 2005 og
þar sýna rúmlega þúsund
fyrirtæki frá 28 löndum bfla
sína. Þessar fyrirsætur
kynntu vörur dekkjafram-
leiðenda sem sýndi fram á
ágæti vörunnar á áberandi
hátt.
Bronsuð Di og
Dodi
Saklaus fómarlömb kall-
ast styttur sem eigandi
Harrods-verslunarinnar,
Mohammed Al-Fayed, lét
gera fyrir sig. Þær eru
bronsstyttur af syni hans,
Dodi Al-Fayed, og Díönu
prinsessu að dansa saman.
Di og Dodi létust í bflslysi í
París árið 1997, eins og
frægt er. Önnur styttan
verður í Harrods-verslun-
inni í London og hin í París.
Karl Gústaf Ann-
or glæsivagn sótti
hann fljótlega eftir
áreksturinn.
Það verður eflaust örtröð í dýragarðinum í Lundúnum um helg-
ina. Nú er fríhelgi í Englandi, Bank Holiday, sem svipar til versl-
unarmannahelgar á íslandi. Því ákvað stjórn dýragarðsins að
bæta við tegund og sýningu í kringum hana sem á eflaust eftir að
vekja mikla athygli. Átta einstaklingar voru fengnir til að eyða
helginni í hólfi í dýragarðinum sem sýnishorn af homo sapiens,
hinum viti borna manni.
Nýlega var efnt til samkeppni á
netinu þar sem ijöldi fólks sótti um
að fá að vera til sýnis í dýragarðin-
um. Átta einstaklingar urðu fyrir val-
inu og em þeir hæstánægðir með
nýja starfið.
Einsog sund
„Ég er ekkert stressaður fyrir
þetta. Hef ekki einu sinni áhyggjur
þótt það verði kalt og rigni. Ég tók
með mér lítið Scrabble-spil ef okkur
skyldi byrja að leiðast,“ segir Simon
Spttp, 19 ára gamall nemi frá Surrey.
>, ' Hann er einn af átta sem verða til
sýnis. Þau verða nánast allsber alla
helgina. Aðeins með stór lauf til að
hlífa viðkvæmustu svæðunum. „Það
er alveg nóg að vera með þessi lauf,“
„Við erum að setja
þessa sýningu upp tíl
að bregða Ijósi á
manninn sem plágu.
Sýnum einnig fram á
hversu mikilvægur
maðurinn et orðinn i
vistkerfi plánetunnar."
segir Simon. „Þetta er bara eins og
að fara í sund.“
Það þýðir hins vegar ekkert fýrir
áhugasömustu gestina að halda að
þeir fái að sjá meira en það þegar
rökkva tekur því sýningargripirnir fá
að fara heim á kvöldin.
Vildu vera með Hópurinn sem verður til
sýnis var valinn úr fjölda umsækjenda i sam-
keppni á netinu.
Menn eru plága
„Við emm að setja þessa sýningu
upp til að bregða ljósi á manninn
sem plágu. Sýnum einnig fram á
hversu mikilvægur maðurinn er
orðinn í vistkerfi plánetunnar," seg-
ir talsmaður dýragarðsins.
Einnig er farið á fræðilegan hátt í
útbreiðslu mannkyns um Jörðina en
Ekkert dónalegt Áhugasömustu gestirnir verða að sætta sig við að sýningargripirnir fá að
fara heim á kvöldin.
tegundin er sögð gædd meiri aðlög- í dýragarðinum sem heitir Bjamafjall
unarhæfni en nokkur önnur. Þá eiga og er venjulega heimili nokkurra
sjálfboðaliðamir að haga sér eins og skógarbjama. halldor@dv.is
fræðingar dýragarðsins telja frum-
hvatir manna gefa í skyn að sé þeim
eðlislægt. Þeim var komið fyrir á stað
Bangsi merktur
Hugvitssöm húsmóðir í Bor-
deaux í Frakklandi hefur hmndið
af stað nýrri þjónustu fyrir börn
og foreldra þeirra. Húsmóðirin
merkir uppáhalds leikföng barn-
anna. Teppi og annað sem má
helst ekki týnast. Merkin bera
senda þannig að hún getur fund-
ið hlutina þegar þeir týnast.
Svarar í símann allan sólarhring-
inn og gerir lítil kraftaverk. Ekki
fer sögum af hversu vinsæl þjón-
ustan er.
Það geta allir verið klaufar á hringtorgum
Konunglegur árekstur Karls Gústafs
Vegfarendum í Norrköping í Sví-
þjóð brá heldur betur í brún í fýrra-
dag þegar vígalegur BMW klessti
duglega aftan á annan bfl á hring-
torgi í bænum.
Út úr bflnum steig síðan enginn
annar en Karl Gústaf sextándi. Sjálf-
ur Svíakonungur. Hann var reyndar
ekki sjálfur við stýrið heldur
einkabflstjóri. Hvorugur
þeirra meiddist og ekki
heldur bflstjórinn sem
þeir keyrðu aftan á.
Sá þurfti síðan að bíðal
eftir lögreglu og fylla út
skýrslu á meðan annar
glæsivagn var kom-
inn á mettíma á slys-
stað tfl að sækja
kóngsa, sem bmnaði
áfram inn í Stokk-
hólm.
Beygla BMW Sviakonungs verður væntanlega skipt út eftirþetta.