Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2005, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST2005
Fréttir tXV
1 Mountbatten myrturaf IRA
I dag
Lesendur
Úr bloggheimum
Kötturinn týndur
„Sumt er hreinlega ofsárt til að blogga um
það. Þegar ég vafraði stefnu-
laust um portið fyrir aftan
hús heima og reyndi að
nota meint vasaijós ná-
grannans tilað lýsa jörð-
ina upp missti ég alla von.
Þegar ég kom heim úr vinn
unni á föstudagskvöldið var búrið
hans Klóa tómt. Hann hafði komist með
klækjum út úr þvl og tekið stefnuna beint
út um eldhúsgluggann. Það var dimmt og
kalt, rok og rigning."
kaninka.net/halla/
Fjári góöur á gítarinn
„Ukt og þið hafið tekið eftirþá hefég haft
úrnokkuð miklum tima að moða uppá
síðkastið, sá tími hefur farið mikið i
það að spila á gitarinn og er
ég nokkuð sáttur með hvað
maður er orðinn fjári góður.
Maður er farinn að kunna
öll lögin i bókinni, taka sóló
og nennir ekki að tala i sím-
ann eftir næstum 4 tima sön-
gæfingu I leiðinni. Það er góður kostur að
búa einn / sínu eigin húsi og þurfa engar
áhyggjur að hafa afeinhverjum nágrönn-
um og veseni. Ósótemio."
„ logi-geirsson.de
Deep tanað handbolta módel
„Deep tanadur eftir Mallorca. Tommi i
heimsokn og aetlum ad runta adeins a
morgun eftir goda helgi i
DUS...DUS - Prague - Berlin
- DUS - Amsterdam -
London - Heim i brud-
kaupid hja Pardusnum.
Hitti ANton fraenda i
Shagaluf tar sem hann
vinnursem bartjonn. Hann
hefur tad„Snuuuugt“ tarna og byr med 5
odrum playboyum og mixa teirsaman uti
eitt öll kvöld. Var tarna i 2 naetur og all-
mörg hanastel. Tolvan bilud tannig eg
-m kemst ekki a netid heima, sit tvi i klistugri
tyrkjasimabullu med windows 98...almost
Lifog fjör Efeinhver veit um gott hotel i
prague endilega latid mig vita.*
markusmani.tk
Million dollar baby
„jæja, ég lenti I þvl aö gella sem ég var með
I grunnskóla kemur fljúgandi út aftraffic
og lendir svona líka smekklega ofaná mér
með þeim afleiðingum að ég fell aftur fyrir
mig, enda ekki æfð í að taka ámóti 95
kllóa kvennmanni með mjólkurbú flóa-
manna framan á sér. Ég féll ekki bara,
neinei, ég tók million Sbabyá þetta og beit
með vinstri jöxlum í gangbrautarstaurinn
með þeim afleiðingum að jaxlarnir flugu
x útog beint á unga konu með barnavagn,
blóð og tilheyrandi rautt skraut fylgdi að
sjálfsögðu með."
sigga_dogg.blogspot.com
Á þessum degi árið 1979 var
Louis Mountbatten lávarður myrt-
ur af írska lýðveldishernum.
Mountbatten, sem var gömul
stríðshetja og frændi Elísabetar II.
Englandsdrottningar, lést þegar
bátur hans var sprengdur í loft upp
fyrir utan strönd írlands. Þrír aðrir
létust í árásinni þar á meðal 14 ára
gamalt barnabarn hans, Nicolas.
Hryðjuverkamenn innan raða írska
lýðveldishersins komu fimmtíu
punda sprengju fyrir í bátnum. Þeir
voru iðnir við kolann þennan dag
því seinna um daginn létust átján
breskir fallhlífahermenn í
sprengjuárás þeirra.
Morðið á Mountbatten var fyrsta
árás írska lýðveldishersins á bresku
konungsfjölskylduna og varð til
þess að Bretar urðu enn harðari í
afstöðu sinni gegn hernum og gerði
það að verkum að Margret
Thatcher, þáverandi forsætisráð-
herra Bretlands, herti verulega á
aðgerðum gegn hryðjuverkamönn-
um.
Thomas McMahon, einn með-
lima IRA, var síðar handtekinn og
fundinn sekur um að hafa undirbú-
á þessum degi árið 1867
hófst gos í Vatnajökli
nálægt Grímsvötnum og
stóö þaö í þrettán daga.
ið og komið fyrir sprengjunni sem
varð Mountbatten að aldurtila.
McMa-hon var goðsögn innan IRA
og var einn sá fyrsti sem var sendur
til Lýbíu til að læra að fara með
sprengiefni. Hann var sá eini sem
var fundinn sekur í þessu máli og
dæmdur til lífstíðarfangelsis. Hon-
um var sleppt árið 1988 og hefur
síðan snúið sér að smíðum.
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
Ónákvæmni
Á forsíðu DV í gær er
vitnað í Björn Þorra Viktors-
son, formann félags fast-
eignasala, og sagt fortaks-
laust bann fasteignasala við
að selja ættmennum fast-
eignir. Þama gætir óná-
kvæmni í tilvitnun í fréttina
þar sem segir að fortakslaust
bann sé við því að fasteigna-
sali kaupi eign sem hann er
með til sölumeðferðar og nái
það bann einnig til barna hans
og maka. Er Björn Þorri beðinn
velvirðingar á þessu.
bara í það súra epli. Verra fannst mér á
miðvikudaginn þegar ég tók far með leið
26. Strætóinn varð hreinlega bensínlaus
á Kringlumýrarbraut-
inni. Það þurfi mann
með fimm lítra brúsa til að koma skepn-
unni aftur af stað. Ég held að minnsta
sem maður geti farið fram á, ef maður
þarf að ferðast með strætó, að nóg bensín
sé á bilnum.
f frétt sem birtist í DV í gær
um strák sem bíður eftir plássi á
frístundaheimili misritaðist að
Sigríði, móður drengsins, hefði
verið boðið í atvinnuviðtal fyrir
starf á frístundaheimilinu í
Haldið til haqa
Breiðholtsskóla. Hið rétta er að
Miðberg sér um frístundaheimil-
in í Breiðholtinu og var Sigríður
boðuð í atvinnuviðtal fyrir starf í
Hólabrekkuskóla. Þar sem Mið-
berg sér um öll frístundaheimilin
í Breiðholtinu hélt Sigríður að
Ólafur sonur hennar kæmist að á
frístundaheimili Breiðholtsskóla
þægi hún vinnuna. Ekki var hægt
að gefa loforð um það og hætti
Sigríður því við að fara í atvinnu-
viðtalið.
Sylvía Dögg
Halldórsdóttir
skrifar um dálæti
sitt á núinu.
Myndlistarneminn segir
Orðin okkar
Ég hef aldrei verið talin orð-
heppin. Ég er því ósammála -
þannig. Því enginn er raunveru-
lega dómbær á hvað er heppilegt
eða viðeigandi að segja í það og
það skiptið. Normið og núið ráða
þar yfirleitt ríkjum. Einnig er ég
alveg einstaklega lagin í því að
ganga fram af fólki - óviljandi - en
er það orðaval mitt sem sér um
þann pakkann.
Ég er mikill aðdáandi núsins.
Núið gerir mér allt kleift og ég
skýli mér kannski oft á bak við
það. Ef ég geri ekki það sem mig
langar til - núna - eða segi ekki
það sem ég er að hugsa - núna -
gæti ég misst tækifærið. Enginn
veit hvað koma skal. Orðin okkar
verða að hafa tilfinningu. Ef
stoppað er í hvert sinn og ofhugs-
að um allt sem sagt er verður út-
koman ekki jafn einlæg og ella.
Hver kynslóð á sitt orðaval. Orð
eða orðasambönd sem í eina tíð
þóttu niðrandi eða óviðeigandi
flokkast oft sem daglegt tal í núi
líðandi stundar. Það eru engin
stórtíðindi. Samt sem áður er fólk
oft mjög viðkvæmt fyrir því sem
sagt er. Að minnast á hluti sem
sem koma náunganum að óvörum
- því að fólk á að „kunna sig" -
kallar á sannar tilflnningar.
Ég þoli ekki yfirborðskenndar
samræður eða yfirlýsingar. Tíma-
eyðsla fyrir mér! Ég segi aldrei
hluti með það að markmiði að
særa fólk eða móðga. En ég rit-
skoða ekki sjálfa mig. Aldrei!
il i I
1 §
Maður dagsins
Opnar í nýju galleríi á Akureyri
„Ég er að opna sýninguna Stað-
sett í nýju galleríi á Akureyri sem
kallast Gallerí box. Opnunin er á
laugardaginn klukkan sex og sýn-
ingin stendur til 17. september. Gall-
eríið er rétt hjá Listasafni Akureyrar
og það eru nokkrar stelpur í bænum
sem sjá um rekstur þess. Á undan
mér hafa meðal annars Egill
Sæbjömsson og Sigga Björg sýnt
hér," segir Darri Lorensen myndlist-
armaður staddur í höfuðstað Norð-
urlands.
„Það má segja að sýningin sé þrí-
þætt. í fyrstu er um að ræða teikn-
ingu sem er einhvers konar útlínu-
teikning af spegilmynd sýningar-
rýmisins. Það er kannski svolítið
erfitt að útskýra það verk en sjón er
sögu ríkari. Svo er ég með hljóðverk
sem er unnið upp úr hljóðum í sýn-
ingarrýminu og að síðustu em á sýn-
ingunni 30 ljósmyndir af smáatrið-
um.“
Blaðamaður spyr hvernig honum
lítist á listalífið á Akureyri. „Það er
bara ágætt, sýnist mér. Það er alla
vega heljarinnar menningarhátíð
hérna á laugardaginn, svolítið svipað
og menningarnóttin í Reykjavík.
Hellingur af opnunum og listvið-
burðum."
Aðspurður hvort búast megi við
miklu fylleríi og mannskaða um
helgina segist Darri ekki hafa hug-
mynd um það. „Ég vona alla vega
„Berlín er algjör
snilld og miklar hrær-
ingar í gangi þar."
ekki. Akureyringar em ljúfasta fólk,
allir hressir."
Um næstu skref í lífi sínu segir
Darri: „Ég flutti til Berlínar í sumar
og er að setjast á skólabekk þar í
haust. Ég útskrifaðist frá Listahá-
skóla fslands árið 2000 og var svo í
smá námi í Hollandi þar á eftir áður
en ég flutti til út. Berlín er algjör
snilld og mikið af hræringum þar.“
að hefja framhaldsnám í myndlist.