Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2005, Blaðsíða 43
I>V Helgarblað
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST2005 43
Salt: Nýtt
matapgerQanmusteri
Veitingarýni
Fjalakötturinn
Pipar-og-salt litur
Nýtt matargerðarmusteri er
komið til skjalanna. Til viðbótar
við Grillið, Humarhúsið og Sjávar-
kjallarann er komið Salt á hóteli
1919 í gömlu Eimskipafélagshöll-
inni í Pósthússtræti. Aðalsmerki
staðarins er matreiðslan sem er
ekki bundin í viðjar Bocuse, held-
ur leggur meiri áherzlu á eðlis-
bragð hráefna.
50 sæta matsalurinn er hægra
megin við Pósthúsinngang hótels-
ins. Hann er grár, mest í salt-og-
pipar gráu, stólar, borð, skyrtur
þjóna. Veggir eru ljósgráir með
speglum og létt gluggatjöld eru
daufbrún. Þetta er einn naurh-
hyggjustaða nútímans, ber með
sér varfærið yfirbragð brezkra
séntilmanna úr City.
Kitlað við bragðlauka
Ragnar Ómarsson er einn af
stjörnukokkum landsins. Réttir
hans voru samfelld ánægja bragð-
laukanna. Fyrst kom létt og gott
lax- og mangótartar, smásaxað.
Forréttir voru enn betri, óvenju-
lega meyr hörpuskel og krækling-
ur, kryddað með sítrónublandaðri
fenniku, hvítlauk og basil. Sjávar-
réttasúpa var froðukennd og
bragðsterk með hörpuskel og
kræklingi til hliðar.
Annar aðalrétturinn var krydd-
gljáður hlýri blandaður skelfiski,
saffran, ertum og pasta, sem líkist
hrísgrjónum og er kallað orzo.
Hinn aðalrétturinn var salt- og
sítrónubakaður lamba-
hryggvöðvi, skorinn í teninga,
hæfilega eldaður, borinn fram
með kartöflustöppu og rosalega
góðu brisi.
Eftirréttir slakari
Forréttir og aðalréttir voru
spennandi á matseðlinum og gáfu
fullt hús stiga. Minni tilþrif voru í
eftirréttum: Panna cotta-búðing-
ur blandaður kókoshnetum, bor-
inn fram með alltof bragðsterkri
kirsuberja-ísfroðu, og Crema
catalana-búðingur með engifer og
stökkri karamelluskorpu, borinn
fram með hefðbundnum núgatís.
Það kostar 6.400 krónur að
borða þríréttað á Salti, fyrir utan
vín og kaffi. Sæmilegt úrval vína
var selt í glasavís. Þjónusta er i
góðu samræmi við verðlag og
metnað staðarins. Vatnsglösin
voru úr stíl, sennilega óbrjótanleg,
góð fyrir kaffi í sveitinni. Diskar
voru ferkantaðir og háifmattir
glerdiskar.
Fjögurra stjörnu staður
Salt fær fjórar stjörnur og 16
stig af 20 mögulegum, sama og
Humarhúsið og Sjávarkjallarinn,
einu stigi minna en Grillið.
Jónas
Kristjánsson
skrifar um
veitingahús.
Valíð fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
FOSFOSER
MEMORY
Umboðs- og söluaðili
sími: 551 9239
Stafirnir i reitunum mynda nafn á verkalýðsfélagi í Reykjavik.
Lausnarorð síðustu krossgátu var Strákarnir