Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2005, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST2005
Helgarblað DV
Sigrún Ólafsdóttir og eiginmaður hennar eiga saman sex börn. Meðfram stóru heimili rekur Sigrún sitt eigið
fyrirtæki. Hún segist vonast til þess að þegar næstu börn láti sjá sig þá verði um ömmubörnin að ræða.
„Ég er löngu hætt að segjast vera
hætt, það þýðir ekkert/' segir Sigrún
Ólafsdóttir sem er sex barna móðir.
Sigrún og eiginmaður hennar reka
sitt stóra heimili í Vogum á Vatns-
leysuströnd. Hjörtur eiginmaður
hennar er smiður en Sigrún er heima
með bömin auk þess sem hún starf-
rækir sitt eigið fyrirtæki. Það er því
nóg að gera hjá fjölskyldunni.
Hætt að segjast vera hætt
Sigrún, sem er aðeins 37 ára, var
tvítug þegar hún varð ófrísk af sínu
fyrsta barni, en hún ætlaði sér alls
ekki að eignast svo mörg böm. „Ég
var hætt eftir tvö böm, þá fannst mér
nóg komið," segir hún brosandi. „Ég
hef sagst vera hætt eftir hvert einasta
svo ég er hætt að segjast vera hætt,"
segir Sigrún, sem vonar að þegar
næstu böm komi þá verði um bama-
böm að ræða.
Dýrt að vera með tvö bleiu-
börn
öll bömin sex, Helgi Fannar, Mar-
ín Ásta, Birkir Freyr, Melkorka Rós,
Stefán Andri og Anna, búa heima og í
hópinn hefur meira að segja bæst
einn tengdasonur. Sigrún segir heim-
ilislífið ekki svo erfitt enda þekkir hún
ekkert eitthvað annað, og auk þess
séu þau eldri farin að hjálpa til við
heimilisstörfin. „Allir í minni fjöl-
skyldu búa einhvers staðar annars
staðar en vinafólk hefur verið tilbúið
til að hjálpa ef eitthvað hefur staðið
til. Mér finnst þetta ekkert svo erfitt
þó það sé dálítið dýrt að vera með tvö
með bleiu í einu," segir hún og bætir
við að oftast hafi hún verið með tvö
lítil böm í einu og það eldra alltaf að
hætta á bleiu þegar það yngra tók við.
Sigrún segir mesta furðu hve greið-
lega gengur að gefa barnaskaranum
að borða, koma honum í bað og í
rúmið á kvöldin. „Þetta gengur bara
sinn vanagang og ég er bara ekkert að
spá í þessu," segir hún.
Yngsta dótturin Sigrún með Önnu sem er
aðems þriggja mánaða og tæpum 17árum
yngri en elsti sonurinn.
"
Systkinin HelgiFannar,
Marín Asta, Birkir Freyr,
Melkorka Rós og Stefán
Andri.
Á eina systur sjálf
Sigrún segir börnin þakklát fyrir
að hafa alltaf einhvern til að leika
við, en að þau geti einnig verið
pirmð á að eiga svona mörg systkini.
„Ég átti bara eina systur þegar ég var
lítil og oftast langaði mig að eiga
fleiri systkini þó hún hafi oft líka far-
ið í taugarnar á mér. Þau kvarta
stundum yfir að eiga of mikið af
systkinum, en ég veit að þau em
glöð yfir þessu líka."
Bömin sex em ekki enn hvert
með sitt herbergi en heimilsfaðir-
inn ætiar að reyna að koma því í lag
sem fyrst. Þau tvö elstu hafa
sérherbergi, þrjú næstu em saman
og Anna litla, sem er aðeins þriggja
mánaða, er að sjáifsögðu inni hjá
foreldrum sínum.
Rekur sitt eigið fyrirtæki
Eins og fyrr segir þá rekur Sigrún
sitt eigið fyrirtæki. Það er skrítið til
þess að hugsa hvenær hún hafi eig-
inlega tíma tii að gera eitthvað ann-
að en að hugsa um bömin sex en
Sigrún segir það lítið mái. Hún vinni
þegar börnin séu sofandi og í skól-
anum. „Ég stofnaði Veffúnu árið
2001 þar sem ég hef mikinn áhuga á
heimasíðugerð. Ég er algjörlega
sjálfmenntuð en þetta hefur gengið
mjög vel og ég er komin með
nokkra stóra kúnna," segir Sigrún,
en hægt er að skoða heimasíðu
hennar og heimasíður aflra bam-
anna á slóðinni www.vefrun.is.
Næst koma ömmubörnin
Sem betur fer fyrir Sigrúnu þá
leggst meðgangan ævilega vel í
hana og er sá tími sem henni iíður
einna best. „Ég veit ekki hvort
börnin verða fleiri, en við fengum
okkur hund um daginn og því
halda margir að við séum búin að
loka þessu. TSIæst koma kannski
bara ömmubörnin."
indiana@dv.is
„Ég átti bara eina
systur þegar ég var
lítíl og oftast langaði
mig að eiga fleiri
systkini þó hún hafi
oft líka farið í taug-
arnarámér."