Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2005, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST2005
Helgarblað DV
Þann 6. mars 2004 birtist í DV ítarleg umfjöllun um grimmileg örlög ungs ís-
lensks drengs. Aron Pálmi Ágústsson hafði verið stimplaður sem stórfelld-
ur kynferðisbrotamaður eftir sakleysislegan leik 11 ára barns. íslending-
ar rönkuðu heldur betur við sér þegar DV fjallaði um málið og nú
lítur út fyrir að Aron Pálmi sé að losna úr prísund sinni og fái að
koma heim til íslands, en það er hans eina ósk.
Baránan íyri
Fáir vissu um afdrif Arons Pálma
Ágústssonar áður en DV fjallaði um
málið í ítarlegri úttekt þann 6. mars
árið 2004. Vitað er að fjölmiðlamenn
á hinum ýmsu miðlum höfðu grun
um hin hörmulegu örlög íslenska
drengsins, en enginn sá sér fært að
fjalla um málið þar sem það snertir
viðkvæma strengi. DV tók hins vegar
af skarið og hefur sú ákvörðun held-
ur betur skilað sér í baráttu Arons.
Aron Pálmi dvaldi í unglinga-
fangelsi í Texas í sjö ár og var stimpl-
aður sem hættulegur kynferðisaf-
brotamaður. En þegar betur er að
gáð var Aron Pálmi einfaldlega sak-
laust barn sem varð fyrir barðinu á
hinu hefnigjarna ríki Texas. Hann
sat í fangelsi frá 13 ára aldri þar sem
honum var misþyrmt af öðrum
föngum. Síðustu tvö árin hefur Aron
Pálmi setið í stofufangelsi, en eygir
nú loksins von af því að þing Texas
hefur samþykkt lausnarbeiðni, en
hans eina ósk er að komast heim til
Islands.
Kærður fyrir stórfellt kyn-
ferðisbrot
Aron Pálmi flutti ásamt móður
sinni til Bandaríkjanna þegar hann
var aðeins tveggja ára gamall. Móðir
hans hafði kynnst bandarískum
manni á ferðalagi og eftir nokkrar
bréfaskriftir tilkynnti hún fjölskyld-
unni að hún væri á leiðinni út til að
14. júlí 1983
Aron Pálmi fæðist á íslandi.
1985
Þegar hann er tveggja ára flytur hann
ásamt móður til Bandaríkjanna. Hún
hafði þá kynnst manni sem gekk Aroni
í föðurstað.
1994
Ellefu ára í læknisleik. Aron Pálmi var
að tuskast við sex ára gamlan vin sinn
þegar hann var ellefu ára. Litli strákur
inn ögraði Aroni og öðrum börnum,
girti niður um sig og sagði „Suck my
dick," eða sjúgðu á mér typpið, sem
Aron gerði í stutta stund.
Lífshlaup Arons Pálma
Nágrannarnir varaðir
við Aroni
Móðursystir Arons Pálma, Val-
gerður Hermannsdóttir, hefur barist
hetjulega fyrir frænda sínum síðustu
árin. Hún stappaði í hann stálinu
þegar harm dvaldi í fangelsinu
hræddur við hótanir eldri fanga.
Árið 2003 fékk Aron Pálmi reynslu-
lausn úr fangelsinu og flutti í litla
giftast manninum. Æska Arons
Pálma var eðlileg og eiginmaður
móður hans gekk honum í föður-
stað. Líf hans tók hins vegar heldur
óvænta stefnu þegar hann var 11
ára. Hann hafði tuskast við sér mun
yngri dreng sem hafði ögrað honum
og kallað „suck my dick“. Einmitt
það gerði Aron í bókstaflegri merk-
ingu í örskamma stund.
Tveimur árum seinna þegar Aron
Pálmi er 13 ára kemur þetta atvik
upp á yfirborðið. Málið kemur til
kasta lögreglu og saksóknari ákærir
drenginn fyrir stórfellt kynferðis-
brot. Aron er dreginn fyrir dómara
og kviðdóm, fundinn sekur og
dæmdur í tíu ára fangelsisvist. Það
þótti saksóknara léttvægur dómur
enda vildi hann dæma drenginn í 30
ára fangelsi.
Dómarinn í málinu sagði í viðtali
við DV á síðasta ári að saksóknarinn
hefði verið í krossferð gegn Aroni
Pálma. Sjálfur sagði saksóknarinn
að Aron Pálmi væri einn hættuleg-
asti kynferðisafbrotamaður sem
hann hefði komist í kynni við. Þó er
líklegt að ef Aron Pálmi hefði framið
brot sitt annars staðar en í Texas í
Bandaríkjunum að yfirvöld hefðu
ekki blandast í málið og að litið hefði
verið á það sem óvitahátt bams í
stað gjörða samviskulauss kynferð-
isafbrotamanns.
Með Vallí frænku
Aron Pálmi kom oft I
heimsókn til Islands
eftir að hann flutti út.
Á meðan allt lék í
lyndi Með litlu systur.
íbúð í borginni Beaumont. Leigusal-
inn tilkynnti nágrönnunum um að
hættulegur kynferðisafbrotamaður
væri kominn í hverfið auk þess sem
myndum af honum var dreift á net-
ið. Lengst af mátti Aron ekki yfirgefa
heimilið nema til að fara út í búð og
í þvottahús og þá aðeins ganga
gefna leið og innan ákveðinna
tímamarka. Þau fáu skipti sem hann
yfirgefur húsið ber hann með sér
GPS-staðsetningartæki og sendi og
ef hann stendur ekki við gefin skil-
yrði á hann á hættu að vera settur
aftur í fangelsið. Hann hefur ekki
mátt hitta litlu systkinin sín, en fjöl-
skyldan hans býr í tveggja klukku-
stunda fjarðlægð og reynir að heim-
sækja hann nokkrum sinnum í mán-
uði.
Skriður kemst á málið
Nokkrum dögum eftir að fyrsta
fréttin um Aron Pálma birtist í DV
var málið tekið fyrir á Alþingi. Þing-
menn allra flokka lögðu til að Hall-
dór Ásgrímsson, þáverandi utanrík-
isráðherra, skyldi beita sér í máli
drengsins og ef það dygði ekki til þá
ætti forsetinn að taka málið upp.
Halldór lofaði að málið yrði aftur
tekið upp með því að fara fram á
framsal vegna mannúðarástæðna
og sagðist ósáttur við framkomu
Texas-ríkis í málinu. í samtali við DV
sagðist Aron Pálmi glaður og hrærð-
ur yfir að málið væri loksins komið á
skrið. Þremur mánuðum áður hafði
hann nefnilega fengið svar frá fylkis-
stjóranum í Texas þar sem því var al-
farið hafnað að hann fengi að flytjast
til íslands, en að forminu til var beð-
ið um að hann fengi að ljúka afplán-
un sinni hér heima. Neituninni
fýlgdi orðsending um að ekki þýddi
að biðja um endurupptöku né áfrýj-
un á málinu.
Á leiðinni heim?
Lengi vel gerðist lítið í máli Arons
Pálma en á meðan fylgdist íslenska
þjóðin með baráttunni fyrir skák-
manninum Bobby Fischer. Þegar
rúmlega ár hafði liðið frá því íslend-
ingar fengu fyrst að vita af Aroni
Pálma ákvað hópurinn sem barist
1996
Þrettán ára fyrir dómara. Aron var
kærður fyrir alvarlegt kynferðisbrot
gegn öðru barni. Sækjandinn fer fram
á 40 ára fangelsisvist en dómarinn lét
tíu ár nægja.
2000
Þegar Aron var 17 ára fór sækjandinn
fram á að Aron yrði fiuttur í fangelsi
fyrir fullorðna. Kröfunni var neitað.
2003
Aron var settur á reynslulausn fyrir um
tveimur og hálfu ári, eftir að hafa af-
plánað sjö ár í unglingafangelsinu þar
sem hann sætti ofbeldis meðal sam-
fanga sinna. Fósturfaðir Arons leigir
fyrir hann hús í fátækrahverfi í
Beaumont íTexas. Leigusali hanstil-
kynnir nágrönnum um að kynferðis-
brotamaður sé fluttur í hverfið auk
þess sem mynd af honum og upplýs-
ingar um hann eru settar á netið.
2004
Aron Pálmi fær vinnu í einkennisbún-
ingaverslun. Skilorðsfulltrúinn mat