Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2005, Page 42
42 LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST2005
Helgarblað DV
snui'tiuuciciuna
<íkt
Jónína notar helst brúnleita liti
á veturna en þar sem haustið
nálgast eru þeir komnir í
snyrtibudduna. Hún segir
skaeru tónana tilheyra sumrinu.
Varalitur frá Dior
„Þetta er box sem
inniheldur nokkra
brúnleita tóna af
varalit. Ég nota
dekkri liti á vet-
urna og mun
þetta því vera í
veskinu næstu mánuð-
ma.
Augnskuggi
frá Mac
,Ég
þennan
augnskugga i
eðlilegum lit
því ég nota hann
mikið yfir daginn. Ég nota hann
bara til þess að skyggja smá og
kemur það mjög vel út.“
Púður frá Shiseido
„Ég nota ekki púður eða meik
oft en þegar ég vil vera í fínni kant-
inum opna ég púður-
dolluna. Ég hef notað
púðrið frá Shisiedo
mjög lengi enda
stendur það alltaf
fyrir sínu.“
Maskari frá Helenu Rubin-
stein
„Þetta er þessi mjói og klassíski.
Ég er alltaf að prófa einhveija
undramaskara sem eiga að gera
kraftaverk. Það toppar samt aldrei
neitt þennan gamla og góða því
hann virkar langbest."
Ilmvatn frá The Body Shop
„Ég er ekki mikið fyrir sterka
ilmvatnslykt og er vanilluilmurinn
frá The Body Shop alveg frábær
fyrir mig. Hann er mjög mildur og
léttur."
Jónina Tryggvadóttir, fslandsmeistari kaffibarþjóna hefur haft í nógu að snú-
ast undanfarna mánuði.Tók hún meðal annars þátt í alþjóðlegu móti kaffi-
barþjóna og stóð sig þar með stakri prýði. Þessa dagana er hún hins vegar að
undirbúa sig fyrir liðakeppni á Norðurlandamóti kaffibarþjóna sem haldið
verður f Osló í lok september. Til viðbótar við kaffibransann er Jónína að
hefja nám við Háskóla fslands. „Ég hef verið að læra frönsku f háskólanum en
langar nú að prófa listasögu. Ætli ég dragi svo ekki aðeins úr keppnisskapinu
og einbeiti mér að náminu. Það verður tilbreyting að hafa ekki þúsund hluti
á dagskránni," segir Jónfna.
Athafnakonan
Rope-yoga stöðin var opnuð nýlega í Hafnar-
firðinum en Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir er eigandi hennar.
Frá og með mánudeginum verður opnuð sérstök viðbót við
stöðina og mun hún því verða sú stærsta sinnar tegundar á
landinu. Guðbjörg hefur lengi haft brennandi áhuga á jóga og
heilun. Það var hins vegar ekki fyrr en hún kynntist Rope-
yoga kerfinu að hún ákvað að gerast kennari til að miðla þekk-
ingu sinni til annarra. Starfar hún í dag af fullum krafti í nýju
stöðinni og er svo sannarlega ánægð með að hafa lagt þetta fyr-
ir sig. Enda er þetta sannkallað draumastarf að hennar mati.
Guöbjörg Ósk Friðriksdóttir
hefur alltaf haft áhuga á heilun
°9 jóga. Þegarhún uppgötvaði
Rope-Yoga akvaö hún að miðla
þekkjngu sinni til annarra.
Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir er
eigandi Rope-yoga stöðvarinnar í
Hafnarfirði en hún opnaði stöðina í
janúar. Frá og með mánudeginum
verður þetta stærsta jógastöðin á
landinu því þá verður opnuð sérstök
viðbót sem er ætluð fyrir frekari
starfsemi heilsuræktarinnar. „Rope-
yoga stöðin var fyrsta heilsurækt
sinnar tegundar á höfuðborgar-
svæðinu til að byrja með. Þó svo að
stöðin hafi verið opin síðan í vetur
hef ég enn ekki fundið endanlegt
nafn á hana því mér dettur ekkert
nógu sniðugt í hug," segir Guðbjörg
og hlær. Bendir hún á að ef fólk er
með tillögur um nafn er um að gera
að kíkja á heimasíðuna
ropeyoga.net og senda póst.
Dreymdi um að deila þekk-
ingunni
Jóga hefur lengi verið áhugamál
Guðbjargar því hún hefur stundað
það í rúm tíu ár. „Ég prófað allskyns
tegundir af jóga og heilun en það var
ekki fyrr en nýlega að ég ákvað að
nýta þekkinguna til að kenna
öðrum. Draumurinn var alltaf að
verða jógakennari og ákvað ég því að
skella mér í nám á vegum Guðna
Gunnarssonar sem er höfundur
Rope-yoga kerfisins," tekur Guð-
björg fram.
Rope-yoga frábrugðið öðru
jóga
„Ég valdi að læra Rope-yoga því
hugmyndin á bak við kerfið er svo
góð. Rope-yogakennurunum er
kennt að vinna markvisst með fólki
varðandi sjálfsstyrkingu með því að
ræða um andlegu hliðina. Þetta snýr
því ekki einungis að líkamlegu hlið-
inni eins og margir halda. „Mig
langaði alltaf að kenna jóga eða ein-
hvers konar heilun og kom Rope-
yoga því með lausnina fyrir mig því í
því er öllu blandað saman í eitt.
Þetta er einmitt það sem gerir Rope-
yoga frábrugðið hefðbundnu jóga,"
segir Guðbjörg. Einnig hefur Guð-
björg lært annars konar heilun sem
kallast höfuð-, beina- og spjald-
hryggsmeðferð. Býður hún upp á
meðferðina á nýju stöðinni. Til-
gangur meðferðarinnar er að skapa
heilbrigt jafnvægi á öllum sviðum
líkamsstarfseminnar auk þess sem
tekið er á andlegu hliðinni.
Ferlega gaman að geta hjálp-
að fólki
Eiginmaður Guðbjargar, Domen-
ico Alex Gala kennir einnig á stöð-
inni en hann er menntaður Rope-
yoga kennari. „Hann er ítali og
höfum við því rætt um að opna stöð
á Ítalíu. Það væri mjög spennandi en
í dag er draumurinn að vera áfram á
Fróni og byggja upp stöðina mína.
Þetta er rosalega skemmtilegt starf
enda er yndislegt að geta unnið við
það sem ég elska. Mig hefur alltaf
langað að hjálpa fólki og svo er auð-
vitað ekki verra að ég er að vinna
með jóga sem er ástríðan mín. Það
var auðvitað áhætta að fara út í
þennan bransa enda vissi maður
aldrei hvort reksturinn myndi ganga
upp eða ekki. En starfsemin gengur
mjög vel í dag og er þetta búið að
vera ferlega gaman," segir Guðbjörg.
iris@dv.is
Konur vilja meira kynlífen áður
?amela Anderson hefur sagt að
hún kjósi súkkulaði fram yfir kynlíf
og Jerry Hall heldur því fram að
leiklistin gefi henni mestu ánægj-
una. En helmingur breskra kvenna
hefur aðrar skoðanir á kynlífi ef
marka má könnun sem gerð var á
vegum stefriumótaþjónustu á
Englandi. Stór hluti kvennanna
„segir að eitt af því mikilvægasta í líf-
"inu sé að stunda kynlíf að minnsta
kosti einu sinni á dag eða um tutt-
ugu og sjö prósent. Arið 1993 voru
aðeins átján prósent í þessum hóp
og er því íjóst að mikið hefur gerst á
síðastliðnum tólf árum. Kynhvöt
karla hefur hins vegar haldist
óbreytt. Þetta þýðir að konur eru
smám saman að ná körlum í þessu
samhengi ef þær hafa ekki þegar
toppað þá. Það virðist vera sem
konur séu sjálfsöruggari þegar við-
kemur kynlífi en áður. Fá þær meiri
ánægju út úr kynlífi og eru kröfu-
harðari. Rétt eins og Samantha í
þáttaröðinni vinsælu Beðmál í
Borginni eru konur opinskáar
þegar viðkemur löngunum þeirra.
„Mikið hefur breyst á síðustu
tólf árum," segir kynlífsfræðingur-
inn Julia Cole. „Konur eiga auð-
veldara með að vera sjálfstæðar í
dag. Þær eru jafriari körlum á
ýmsum sviðum samfélagsins. Þær
hafa því einnig verið að fikra sig
upp á sama stig og karlar í sam-
bandi við kynlíf. Þær eiga auðveld-
ara með að tjá tilfinningar sínar á
kynferðislega sviðinu. Hegðun
þeirra og hugarfar hefur því
breyst mikið en það gildir ekki
um karla. Þeir hafa staðið í stað
að þessu leyti á meðan konur
hafa mun frjálslegra viðhorf
gagnvart kynlífi en
áður."
Margar konur
vilja kynlíf á
hverju degi.